Sport

Af botninum og varð Evrópu­meistari eftir 324 daga fjar­veru vegna meiðsla

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Enginn hefur unnið fleiri gullverðlaun í sögunni á EM utanhúss en Jakob Ingebrigtsen.
Enginn hefur unnið fleiri gullverðlaun í sögunni á EM utanhúss en Jakob Ingebrigtsen. epa/TOLGA AKMEN

Eftir tæplega árs fjarveru vegna meiðsla sneri Jakob Ingebrigtsen aftur með stæl og varð Evrópumeistari í fimm þúsund metra hlaupi í gær.

Ingebrigtsen gekkst undir aðgerð á hásin í janúar og ekki eru nema sex vikur síðan hann byrjaði að æfa á nýjan leik. En það var ekki að sjá í úrslitahlaupinu í gær.

„Þegar sex hundruð metrar voru eftir vissi ég að ég myndi vinna. Ég vonaði bara að ég yrði ekki of þreyttur,“ sagði Ingebrigtsen eftir hlaupið í gær, sem var hans fyrsta síðan á HM í september í fyrra.

„Ég efaðist um sjálfan mig á hverjum degi og hverri einustu mínútu fram að síðasta hringnum en ég var alltaf vongóður. Að fara af botninum og verða Evrópumeistari aftur skiptir öllu fyrir mig. Ég trúði því ekki einu sinni sjálfur að þetta gæti gerst.“

Ingebrigtsen fór rólega af stað í hlaupinu í gær en átti frábæran endasprett og komst að lokum fram úr Frakkanum Jimmy Gresner. Sigurtími þess norska var þrettán mínútur og 15,29 sekúndur.

Ingebrigtsen hefur nú unnið gull í fimm þúsund metra hlaupi á fjórum Evrópumótum í röð. Hann hefur alls unnið til sjö gullverðlauna á EM utanhúss auk sjö gullverðlauna á EM innanhúss. Ingebrigtsen er einnig Ólympíumeistari í fimm þúsund metra hlaupi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×