Sport

„Búinn að missa töluna af leik­mönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“

Andri Már Eggertsson skrifar
Lárus Orri hefði viljað þrjú stig miðað við síðari hálfleik liðsins
Lárus Orri hefði viljað þrjú stig miðað við síðari hálfleik liðsins Vísir / Anton Brink

ÍA gerði 1-1 jafntefli við FH á heimavelli. Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, var ekki sáttur með fyrri hálfleik liðsins.

„Ég er svekktur að hafa ekki tekið þrjú stig. Við vorum ekki ánægðir með fyrri hálfleikinn þó við vorum ekkert lakari aðilinn heldur var þetta of mikið borðtennis og við héldum boltanum ekki niðri. Þetta var fínasta lexía fyrir okkur að sjá að ef þú tekur fótinn af bensíngjöfinni þá gerist þetta.“

„Í seinni hálfleik kannaðist ég aftur við mitt lið. Ef við eigum að vera sanngjarnir áttum við skilið þrjú stig úr þessum leik en maður fær ekki alltaf allt sem maður vill,“ sagði Lárus Orri í viðtali eftir leik.

Lárus tók undir að það hafi gengið betur hjá hans liði eftir að hann gerði tvöfalda skiptingu eftir tæplega klukkutíma leik og Lárus var ánægður með framlagið hjá þeim sem komu inn á.

„Þeir stóðu sig vel strákarnir sem komu inn á og Gísli Eyjólfsson fór inn á miðjuna. Breytingin var bara að við vorum ákveðnari og vorum að vinna einvígin okkar sem við höfum verið að gera.“

„FH liðið er með helling af góðum leikmönnum. Ég er löngu búinn að missa töluna af leikmönnum sem þeir eru búnir að fá. Við tökum stigið en ég hefði viljað hafa þau þrjú.“

Aðspurður út í markið sem Gísli Eyjólfsson skoraði sagði Lárus að það hafi ekki komið af æfingasvæðinu.

„Ég hefði gjarnan verið til í að ljúga því að svo hafi verið en þetta kom ekki af æfingasvæðinu.“

Lárus Orri óskaði eftir því að sérfræðingarnir í Stúkunni myndu skoða atvikið þegar Skagamenn vildu fá vítaspyrnu í fyrri hálfleik þar sem boltin fór í hendina á Baldvin Kára Helgasyni.

„Það væri ágætt ef sérfræðingarnir myndu kíkja á hendina í fyrri hálfleik. Ég veit ekki hvað við höfum fengið á okkur mörg víti fyrir hendi og svo var neglt í hendina á honum og þeir verða að skoða það í stúkunni,“ sagði Lárus að lokum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×