Samningaviðræðum Sýnar og Símans lokið án samkomulags Freyja Þórisdóttir skrifar 23. ágúst 2026 22:18 Heildarvirði vef- og útvarpsmiðla Sýnar er sagt um 5,2 milljarðar króna. Vísir Kaup Ása hf. á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar hf. verða ekki að veruleika. Frestur til að ganga frá endanlegum kaupsamningi er liðinn án þess að samningur hafi verið undirritaður en ákveðið var að falla frá viðskiptum eftir viðræður í kjölfar áreiðanleikakönnunar.
Er þetta meðal þess sem fram kemur í tilkynningu Sýnar til Kauphallar en Sýn og Ásar, móðurfélag Símans, undirrituðu skilmálaskjal um fyrirhuguð kaup 12. mars síðastliðinn. Samkvæmt tilkynningunni er frestur samkvæmt skilmálaskjalinu nú liðinn og samningaviðræðum félaganna þar með lokið. Einkaréttur Ása til samningaviðræðna er jafnframt fallinn niður. Sýn segir að félagið hafi uppfyllt þær forsendur sem settar voru í skilmálaskjalið, þar á meðal forsendur fyrir umsömdu kaupverði sem tengdust tekjum og rekstrarafkomu miðlanna. Náðu ekki saman um viðskiptin Vefmiðlar og útvarpsstöðvar Sýnar verða því áfram innan félagsins. Í tilkynningunni segir að um sé að ræða öflugar einingar í góðum rekstri sem muni áfram styðja við kjarnastarfsemi Sýnar. Niðurstaðan hafi ekki áhrif á útgefna afkomuspá Sýnar fyrir árið 2026. Í tilkynningu Ása hf. til kauphallar segir jafnframt að eftir viðræður aðila í kjölfar áreiðanleikakönnunar sé ljóst að aðilar munu ekki ná saman um viðskiptin. Því hafi verið ákveðið að falla frá viðskiptunum. Rekstrareiningin sem um ræddi inniheldur vefmiðlana Vísi, Já.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveitunni Tal. Vísir er í eigu Sýnar.
Sýn Síminn Kaup og sala fyrirtækja Kauphöllin Fjarskipti Tengdar fréttir Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Síminn og Sýn hafa náð samkomulagi um að Síminn kaupi alla vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Heildarvirði miðlanna er sagt um 5,2 milljarðar króna. Viðskiptin eru sögð háð niðurstöðum áreiðanaleikakönnunar og samþykki samkeppnisyfirvalda. 12. mars 2026 09:05 Mest lesið Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Viðskipti innlent Samningaviðræðum Sýnar og Símans lokið án samkomulags Viðskipti innlent Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samningaviðræðum Sýnar og Símans lokið án samkomulags Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Sjá meira
Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Síminn og Sýn hafa náð samkomulagi um að Síminn kaupi alla vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Heildarvirði miðlanna er sagt um 5,2 milljarðar króna. Viðskiptin eru sögð háð niðurstöðum áreiðanaleikakönnunar og samþykki samkeppnisyfirvalda. 12. mars 2026 09:05