Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Freyja Þórisdóttir skrifar 25. ágúst 2026 14:29 Það hafa oft komið upp tilfelli þar sem áskoranir og keppnir í kimum krókum TikTok valda því að börn og ungmenni skaða sig eða aðra. AP/Getty Um tuttugu og fimm mínútum áður en lögreglunni í nágrenni Fagersta barst tilkynning um að maður hefði ráðist á nemendur í Brinell-skólanum með sverð að vopni var mynd af sverði birt á TikTok-aðgangi. Aðgangurinn tengist undirmenningu á netinu sem snýst um dýrkun á fjöldamorðingjum og þeim sem gera skólaárásir.
Þetta kemur fram á fjölda mismunandi staðarmiðla í Svíþjóð en í umfjöllun SVT Nyheder segir að ekki hafi tekist að bendla aðganginn með óyggjandi hætti við hinn átján ára gamla Liam Nebel, sem nú situr í gæsluvarðhaldi grunaður um morð og morðtilraun. Nýr og nýr aðgangur Það sé þó staðfest að aðgangurinn hafi verið virkur í TCC, sem er skammstöfun á True Crime Community, en það er sem fyrr segir undirmenning sem snýst um dýrkun á fjöldamorðingjum og þeim sem gera skólaárásir. Áður en aðganginum var lokað á föstudag hafi hann verið með ríflega þrjú þúsund og sjö hundruð fylgjendur, yfir hálfa milljón áhorfa á myndbönd og um fimmtíu þúsund „like“. Þar höfðu verið birt 17 svokölluð „edit“ – stutt myndskeið, aðallega gervigreindarmyndbönd sem sýna ofbeldismenn dansa. Fjórum aðgöngum með svipuðum notendanöfnum hafði verið eytt frá því í upphafi maímánaðar. Gera lítið úr morðinu Eftir árásina hafi aðrir TCC-notendur hafist handa við að birta sín eigin myndbönd sem eiga að sýna gerandann, þar sem hann sést dansa á meðan talan -1 birtist, sem er vísun í morðið á 17 ára stúlkunni sem lést í árásinni. Í straumi eins aðgangsins skrifa notendur athugasemdir eins og „til hamingju maður“ og í athugasemdakerfi Tiktok lýsa sumir yfir undrun. „Ég er í sjokki yfir því að hann hafi látið af því verða að framkvæma árásina,“ skrifar einn TikTok-notandi en aðrir gera grín að eiganda aðgangsins. „Hann fékk bara -1.“
Erlend sakamál TikTok Börn og uppeldi Ofbeldi barna Ofbeldi gegn börnum Netglæpir Netöryggi Svíþjóð Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Sjá meira