Viðskipti innlent

Ferða­menn verða rukkaðir um að­gang að ferða­manna­stöðum

Oddur Ævar Gunnarsson og Sunna Sæmundsdóttir skrifa
Daði Már Kristófersson segir nýtt gjald á ferðamenn tíðkast víða.
Daði Már Kristófersson segir nýtt gjald á ferðamenn tíðkast víða. Vísir/Anton Brink

Ríkisstjórnin hyggst kynna nýja gjaldtöku á ferðamannastöðum sem felur í sér að ferðamenn verða rukkaðir um sérstakan aðgöngumiða. Fjármálaráðherra segir um að ræða fyrirkomulag sem þekkist víða annars staðar en með þessu á að afla fimm milljarða króna til ríkissjóðs.

Fram kemur í fjárlagafrumvarpinu að gjaldið eigi að leggjast á ferðamannastaði og að ferðamenn greiði fyrir aðgang að þeim ferðamannastöðum og náttúruperlum sem eru í eigu íslenska ríkisins. Tilgangurinn sé að stuðla að jafnari dreifingu ferðamanna um landið, tryggja réttlát auðlindagjöld, vernda náttúru og stuðla að sjálfbærri nýtingu náttúruperla.

„Það hefur lengi verið umræða um það að taka upp einhverskonar aðgangsgjald. Hlutverk þessa gjalds er margþætt, bæði að stýra flæði en líka að tryggja þjóðinni ákveðna hlutdeild, það er alveg ljóst að þeir ferðamannastaðir sem flestir sækja eru í eigu ríkisins, aðgengi að þeim hefur verið ókeypis, á því þarf að verða breyting en þó ekki þannig að Íslendingar greiði fyrir það heldur þeir sem koma hér um langan veg til þess að heimsækja þessa staði. Það í sjálfu sér er eðlilegt að þegar ríkið á einhvern hátt afhendir auðlindir sínar til atvinnufyrirtækja til þess að þau geti nýtt þær, að það komi í staðinn einhverskonar árgjald,“ sagði Daði í morgun í samtali við fréttastofu.

Ekki Íslendingar segirðu, er þetta þá einhverskonar gjald á ferðamenn einungis?

„Gjald á ferðamenn einungis.“

Hvernig virkar það?

„Þetta verður aðgöngumiður sem verður tryggður og það eru mjög víða fordæmi fyrir sambærilegri gjaldtöku. Þetta er verkefni á hendi atvinnuvegaráðherra sem ég held að yrði skynsamlegt að þú spyrðir út í nákvæmlega nánari útfærslur á því.“


Tengdar fréttir

Bankaskattur hækkaður um 75 prósent

Áformað er að hækka bankaskatt úr 0,145 prósentum í 0,254 prósent eða því sem nemur rúmlega 75 prósenta hækkun í nýju fjárlagafrumvarpi. Með þessu er áformað að styrkja tekjugrunn ríkissjóðs.

Kílómetragjaldið hækkar

Lagt verður til að kílómetragjald á ökutæki auk bifreiðagjalda verði hækkuð samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í morgun. Kílómetragjald var kynnt til sögunnar í upphafi þessa árs og kom í staðinn fyrir skatta á eldsneyti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×