Johnson rétt slapp við árás Rússa Smári Jökull Jónsson skrifar 14. september 2026 06:40 Boris Johnson var í lest á leið frá ráðstefnu í Kænugarði þegar árásin var gerð. Vísir/Getty Rússneskur dróni hæfði lest í bænum Yahodyn í Úkraínu, skammt frá landamærunum að Póllandi, skömmu eftir að fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands Boris Johnson og hátt settir öryggisráðgjafar Evrópuríkja höfðu farið sömu leið.
Breska ríkisútvarpið greinir frá en í frétt miðilsins segir að dróninn hafi hæft vélarrými lestarinnar en samkvæmt tilkynningu úkraínskra stjórnvalda hafði öllum farþegum verið komið í öruggt skjól áður. Engin slys urðu á fólki en skipun um rýmingu var gefin aðeins fimmtán mínútum áður en árásin var gerð. Boris Johnson sem var forsætisráðherra Bretlands á árunum 2019 til 2022 hafði farið sömu leið með annarri lest skömmu áður, ásamt fleiri háttsettum öryggisráðgjöfum Evrópu ríkja og þar á meðal embættismanninum Jonathan Powell frá Bretlandi. Voru þeir á leið til baka eftir ráðstefnu í Kænugarði. Árásin gerð aðeins tveimur kílómetrum frá landamærum Póllands Rússar fullyrða að árásin hafi beinst að járnbrautarinnviðum í vesturhluta Úkraínu en ríkislestarfyrirtækið Ukrzaliznytsia segir að líklegt sé að skotmarkið hafi verið hin diplómatíska lest. Fyrrverandi forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar CIA, David Petraeus, var um borð í annarri lest á stöðunni í Yahodin þegar árásin átti sér stað. Í samtali við New York Times sagði hann atvikið hafi verið skelfilegt og sannarlega verk villimanslegs leiðtoga sem reyni að hræða úkraínska leiðtoga. Þá segja úkraínsk og pólsk yfirvöld að rússneski dróninn hafi hæft skotmark aðeins tvo kílómetra frá pólsku landamærunum. Bildt þurfti að rýma og Tusk boðaði til neyðarfundar Fyrrverandi forsætisráðherra Svía, Carl Bildt, sat einnig ráðstefnuna í Kænugarði og í samtali við BBC sgaði hann að farþegum í hans lest hafi verið sagt að búa sig undir rýmingu eftir að lestin stöðvaðist. „Við fengum skipun um að rýma en eftir nokkrar mínútur var okkur tilkynnt að allt væri í lagi og við gætum haldið áfram,“ sagði Bildt en sú lest komst heilu og höldnu til landamærastöðvar í Dorohusk í Póllandi. Johnson hefur sjálfur skrifað á X að hann skildi ekki hvaða brenglaða hugsun hafi fengið Pútín Rússlandsforseta til að ráðast á kyrrstæða úkraínska eimreið á landamærum Póllands þennan morgun. Árásin væri dæmigerð fyrir þær handahófskenndu og tilgangslausu árásir sem Úkraínumenn þurfi að þola daglega. I don’t know what warped logic drove Putin to blow up a stationary Ukrainian locomotive on the Polish border this morning. What we can say for sure is that this is the kind of random and senseless attack Ukrainians are enduring every day - even on civilian railways. So far Putin…— Boris Johnson (@BorisJohnson) September 13, 2026 Úkraínumenn hafa ítrekað óskað eftir því við bandamenn sína, einkum Bandaríkin, að fá fleiri gagneldflaugakerfi til að verjast daglegum árásum Rússa sem í auknum mæli beita hröðum eldflaugum og þotuknúnum drónum. Utanríkisráðherran Andrii Sybiha sagði árásirnar í Yahodin jafngilda því að hryðjuverk Pútíns banki upp á dyrnar hjá Evrópusambandinu og NATO og ítrekaði fyrri kröfur um refsiaðgerðir gegn MOskvu. Þá boðaði pólski forsætisráðherrann Donald Tusk til neyðarfundar vegna atviksins. Árásir Rússa hafa í auknum mæli beinst gegn lestum, járnbrautargeymslum, bensínstöðvum og landamærastöðvum. Fyrr í vikunni létust tveir þegar rússneskir drónar hæfðu landamærastöð á milli Úkraínu og Moldóvu og þá lest kvenkyns lestarstjóri í árás á farþegalest í suðurhluta Úkraínu og sex starfsmenn í árás á lestargeymslu í Kænugarði.
Úkraína Pólland Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Bretland Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira