Viðskipti erlent

Novo hættir að vera Nordisk

Kjartan Kjartansson skrifar
Eldra vörumerki Novo. Nautið Apis mun héðan í frá snúa til hægri í vörumerki danska lyfjarisans.
Eldra vörumerki Novo. Nautið Apis mun héðan í frá snúa til hægri í vörumerki danska lyfjarisans. Vísir/EPA

Danska lyfjafyrirtækið Novo Nordisk ætlar að fríska upp á ímynd sína með nýju nafni og vörumerki og gengur héðan í frá aðeins undir nafninu Novo. Þá ætlar fyrirtækið, sem hefur orðið undir í samkeppni að undanförnu, að kynna nýja viðskiptaáætlun á næstu dögum.

Novo komst í álnir með þyngdarstjórnunarlyfjunum Ozempic og Wegovy. Fyrirtækið, sem er um hundrað ára gamalt, hefur þó ekki náð að fylgja eftir velgengni lyfjanna og glímir við vaxandi samkeppni á markaði með þyngdarstjórnunarlyf.

Fyrir utan að stytta nafn fyrirtækisins verða breytingar gerðar á vörumerki þess, egypska guðinum Apis í nautslíki sem er tákn frjósemi og styrks. Nautið, sem hefur verið í vörumerki Novo frá upphafi, verður þar áfram en snýr nú til hægri í stað vinstri.

Danska ríkisútvarpið segir að Novo ætli að kynna nýja markaðssókn sína á viðburði í London í næstu viku.

Novo sagði upp þúsundum starfsmanna sinna, þar af um fimm þúsund í Danmörku, fyrir ári. Fyrirtækið var um tíma það verðmætasta í Evrópu en hefur glímt við lækkandi tekjur. Þá rak það forstjóra sinn til átta ára í maí í fyrra.


Tengdar fréttir

Gengi Novo Nordisk steypist niður

Hlutabréfaverð í danska lyfjafyrirtækinu Novo Nordisk hefur steypst um hátt í tuttugu prósent um leið og væntingar af lyfjasölu í Bandaríkjunum hafa dregist saman. Í miðju blóðbaðinu tilkynnti fyrirtækið að það hafi valið sér nýjan forstjóra.

Reka for­stjóra danska lyfjarisans sem malar gull á Ozempic

Danska lyfjafyrirtækið Novo Nordisk, eitt verðmætasta fyrirtæki Evrópu, tilkynnti í dag að það hefði rekið forstjóra sinn í skugga vaxandi samkeppni. Í tíð forstjórans hefur hagnaður fyrirtækisins nærri þrefaldast þökk sé þyngdarstjórnunar- og sykursýkislyfja þess.

Novo Nordisk orðið verðmætasta fyrirtæki Evrópu

Danska lyfjafyrirtækið Novo Nordisk hefur hagnast um rúmlega tólf hundruð milljarða íslenskra króna það sem af er ári. Þessi methagnaður einn og sér er ástæða þess að hagvöxtur í Danmörku er jákvæður í stað þess að vera neikvæður, en fyrirtækið er nú talið verðmætasta fyrirtæki Evrópu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×