„Fannst á tímabili eins og við gætum spilað í 200 mínútur án þess að skora” Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar 18. september 2026 19:42 Guðni Eiríksson, þjálfari FH, er feginn að sigurmarkið kom í lokin. Anton/Vísir Guðni Eiríksson þjálfari FH var fyrst og fremst feginn eftir dramatískan 1-0 sigur liðsins á Stjörnunni í Kaplakrika. FH skapaði sér nóg af færum en þurfti að bíða fram á 90. mínútu eftir sigurmarki Andreu Ránar Snæfeld Hauksdóttur. „
Bara feginn og ánægður með að fara með þrjú stig. Mér fannst við gera nóg til þess að vinna þennan leik klárlega en við vorum algjörlega í krummafæti með að koma boltanum í markið,“ sagði Guðni eftir leik. „Mér fannst á tímabili eins og við gætum spilað í 200 mínútur án þess að skora, þannig að það var mjög sætt að sjá boltann loksins í netinu undir lok leiks.“ Guðni viðurkenndi að sú hugsun hefði farið að læðast að honum að þetta yrði einfaldlega einn af þeim dögum þar sem boltinn vildi ekki inn. „Já, klárlega. Það fór í kollinn á mér. Við höfum svo sem verið í þessari stöðu áður þar sem það er bara bras að koma boltanum inn. Mér fannst við samt gera nóg til að koma okkur í góðar stöður.“ FH fékk svo loksins markið sem liðið hafði leitað að þegar Andrea Rán skoraði á 90. mínútu og tryggði heimakonum sigurinn. „Við unnum leikinn og skoruðum markið sem skipti sköpum. Svo héldum við líka hreinu og það er langt síðan FH-liðið gerði það síðast í deildinni. Það eru því fullt af góðum punktum sem við tökum með okkur.“ Aldís Guðlaugsdóttir, aðalmarkvörður FH, þurfti að fara af velli í hálfleik eftir samstuð við leikmann Stjörnunnar í fyrri hálfleik en Guðni sagðist ekki hafa miklar áhyggjur af meiðslunum. „Hún fékk högg á lærið, svona „dead leg“. Þá missirðu mátt í lærvöðvanum. Nú þarf hún bara að fara í gott nudd og kælingu og vonandi verður hún klár í næsta leik.“ Fram undan er þétt leikjadagskrá hjá FH og Guðni segir hópinn tilbúinn í verkefnið. „Stemningin hefur verið frábær hjá FH-liðinu í allt sumar og hún heldur bara áfram þannig. Við erum að fara í hörkuverkefni, fimm leiki á 17 dögum, en við erum með mannskap sem er klár og tilbúinn.“ Guðni býst við að þurfa að rótera liðinu á næstu vikum en segir FH nákvæmlega vilja vera í þessari stöðu. „Við munum hreyfa við liðinu í þessum fimm leikjum. Við viljum vera í þessari stöðu, við viljum vera í Evrópuleiknum og við viljum spila þessa leiki sem við fáum.“
Fótbolti Besta deild kvenna Íslenski boltinn FH Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira