Erlent

Heimili rýmd nærri herflugstöð

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Fairford-herflugvöllurinn er í Suður-Englandi.  Myndin er úr safni.
Fairford-herflugvöllurinn er í Suður-Englandi. Myndin er úr safni. Getty/Horwood

Heimili nærri herflugstöð í Gloucester-skíri á Englandi voru rýmd í morgun að sögn lögreglu þar í landi. Nokkrir voru handteknir grunaðir um brot á lögum er varða sprengiefni nærri stöðinni en bandaríski flugherinn hefur þar aðsetur.

Nokkrir handteknir snemma í morgun og er mikill viðbúnaður viðbragðsaðila á svæðinu. Rannsókn sé nú í höndum sérsveitarlögreglu gegn hryðjuverkum, segir í breskum miðlum á borð við Sky News og BBC.

Lögreglan í Gloucester-skíri greindi frá því að íbúar í Whelford, bæ rúmum sex kílómetrum frá Fairford-flugstöð breska flughersins, hefðu verið látnir yfirgefa heimili sín „í kjölfar tilkynningar um meiriháttar atvik.“

Bandaríski herinn hefur haft aðsetur á flugstöðinni frá því að átök Bandaríkjanna og Írans hófust í febrúar síðastliðnum.

Wes Streeting varnarmálaráðherra þakkaði viðbragðsaðilum fyrir skjót viðbrögð í færslu á miðlinum X. 

„Við getum verið fullviss um að verið sé að takast á við þetta,“ skrifar hann. Andy Burnham forsætisráðherra er sagður fylgjast grannt með málum. 

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×