Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Samúel Karl Ólason skrifar 27. september 2026 13:14 Fjöldi lögregluþjóna eru á vettvangi nærri herstöðinni og er öryggisgæsla gífurleg. AP/Ben Birchall, PA Fimm voru handteknir nærri herflugstöðinni Fairford í Englandi í nótt eftir að íbúar þorps á svæðinu hringdu í lögreglu vegna þriggja sendiferðabíla sem þóttu grunsamlegir. Hringt var á lögregluna skömmu fyrir klukkan eitt í nótt en mennirnir sem voru í kjölfarið handteknir hafa verið sakaðir um brot á lögum um sprengiefni. Þeir liggja einnig undir grun um skipulagningu hryðjuverka.
Í kjöfarið var stórt svæði kringum bílana, í um fjögur hundruð metra radíus frá bílunum þremur, rýmt. Þá voru 85 heimili í þorpinu Whelford rýmd. Sjá einnig: Heimili rýmd nærri herflugstöð Myndefni frá Whelford hefur í morgun sýnt sprengjusérfræðinga nota róbóta til að skoða sendiferðabílana en lögreglan hefur ekki staðfest að sprengjur hafi fundist í þeim. A bomb disposal robot has been used at the scene of the incident in the village of Whelford.The vehicle appeared to be inspecting large white vans.Sky's @KamaliMelbourne reports on what is known so far.https://t.co/pbFbjT2Ano Sky 501, Virgin 602, Freeview 233 pic.twitter.com/hwH9iQgxgH— Sky News (@SkyNews) September 27, 2026 Aðrar myndir sem hafa verið í dreifingu í morgun hafa sýnt stærðarinnar traktora sem búið var að leggja fyrir innganga í herstöðina. Umrædd herstöð er í eigu breska flughersins er einnig mikið notuð af Bandaríkjamönnum og meðal annars til árása í Íran. Þaðan hefur bandarískum sprengjuflugvélum verið flogið til árása í Íran og eru bandarískar sprengjuflugvélar þar núna. Mennirnir fimm voru fyrst sakaðir um brot á lögum um sprengiefni en seinna meir var opinberað að þeir liggja einnig undir grun um skipulagningu hryðjuverks. Það og hvernig traktorunum var lagt fyrir innganga herstöðvarinnar, þykir benda til þess að mögulega hafi verið komið í veg fyrir árás á herstöðina. Lögreglan hefur þó ekkert staðfest í þeim efnum. Í yfirlýsingu frá lögreglunni skömmu fyrir klukkan eitt kom fram að rannsókn væri enn yfirstandandi og að and-hryðjuverkasveitir kæmu að þeirri rannsókn. UK counter-terrorism police seems to have intercepted a terrorist cell planning to strike RAF Fairford with (multiple) SVBIEDs. Army heavy tractors blocking base access points as bomb robots examine seized vans pic.twitter.com/VCvWp4gmjR— Hugo Kaaman (@HKaaman) September 27, 2026
England Bretland Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ekið á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Sjá meira