Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar 7. október 2026 08:02 Dómsmálaráðherra kynnti nú nýverið fyrirhugaðar breytingar um að lögregluembættum verði fækkað úr níu í þrjú. Samkvæmt tillögunni eiga lögregluembættin á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra að sameinast í eitt embætti. Þetta er ein stærsta breyting á skipulagi löggæslu á landsbyggðinni um árabil og gefur tilefni til að skoða ekki aðeins hvar yfirstjórn verður staðsett heldur einnig hvernig stjórnunar-, samræmingar- og sérverkefnum verður dreift um hið nýja umdæmi. Lögreglan hefur enga almennilega aðstöðu í Búðardal og aðeins er starfandi einn lögreglumaður í hálfu starfi í Dalabyggð en samkvæmt þarfagreiningu og viðmiðum ríkislögreglustjóra þyrftu að vera á bilinu fjórir til níu starfandi lögreglumenn. Búðardalur – miðlægur staður til löggæslu Lögreglustjórinn á Vesturlandi lét vinna sérstakt minnisblað árið 2023 undir heitinu „Búðardalur – miðlægur staður til löggæslu“ sem ríkislögreglustjóri birti svo skýrslu upp úr í kjölfarið og fór ítarlegar yfir þau viðmið sem hann vill hafa á löggæslu og viðbragði og tækifæri sem felast í að hafa lögreglustöð í Búðardal hvernig sem starfsemi innan hennar væri háttað. Meðal viðmiða ríkislögreglustjóra er að um 90% íbúa séu innan 45 mínútna aksturs frá næstu lögreglustöð. Áætlaður viðbragðstími frá Búðardal og í Borgarnes, Hólmavík, Hvammstanga og Reykhóla er á bilinu 43-46 mínútur. Undantekningin í þessu tilviki er Stykkishólmur þar sem eru 54 mínútna viðbragðstími en þar spilar inn í að vegurinn um Skógarströnd er eini stofnvegurinn í byggð á Vesturlandi sem ekki er með bundnu slitlagi, en það er nú annar kapítuli út af fyrir sig. Frá jaðri fjögurra umdæma að miðlægum stað innan eins embættis Við sameiningu þessara fjögurra stóru umdæma verður Búðardalur ekki miðpunktur alls hins nýja umdæmis í bókstaflegum skilningi, enda nær það austur um allt Norðurland. Búðardalur liggur hins vegar mjög miðlægt gagnvart Vesturlandi, Vestfjörðum og vestari hluta Norðurlands, á mikilvægum samgönguás milli þessara svæða. Núna þegar lögregluumdæmin eiga að stækka verulega viljum við líka að horft verði á þetta augljósa tækifæri fyrir Dalabyggð. Því er ástæða til að skoða vandlega þann möguleika að við endurskipulagninguna sé sérstaklega skoðað að efla lögreglustöðina í Búðardal, að staðsetja þar stjórnunar- og samræmingarhlutverk innan hins nýja embættis og vinna þar sérhæfð verkefni sem ekki eru bundin við stærstu þéttbýliskjarnana og með því nýta Búðardal sem viðbragðsmiðju fyrir svæði sem nú liggja á mörkum Vesturlands, Vestfjarða og Norðurlands vestra. Höfundur er varaoddviti sveitarstjórnar Dalabyggðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dalabyggð Lögreglan Sveitarstjórnarmál Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Dómsmálaráðherra kynnti nú nýverið fyrirhugaðar breytingar um að lögregluembættum verði fækkað úr níu í þrjú. Samkvæmt tillögunni eiga lögregluembættin á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra að sameinast í eitt embætti. Þetta er ein stærsta breyting á skipulagi löggæslu á landsbyggðinni um árabil og gefur tilefni til að skoða ekki aðeins hvar yfirstjórn verður staðsett heldur einnig hvernig stjórnunar-, samræmingar- og sérverkefnum verður dreift um hið nýja umdæmi. Lögreglan hefur enga almennilega aðstöðu í Búðardal og aðeins er starfandi einn lögreglumaður í hálfu starfi í Dalabyggð en samkvæmt þarfagreiningu og viðmiðum ríkislögreglustjóra þyrftu að vera á bilinu fjórir til níu starfandi lögreglumenn. Búðardalur – miðlægur staður til löggæslu Lögreglustjórinn á Vesturlandi lét vinna sérstakt minnisblað árið 2023 undir heitinu „Búðardalur – miðlægur staður til löggæslu“ sem ríkislögreglustjóri birti svo skýrslu upp úr í kjölfarið og fór ítarlegar yfir þau viðmið sem hann vill hafa á löggæslu og viðbragði og tækifæri sem felast í að hafa lögreglustöð í Búðardal hvernig sem starfsemi innan hennar væri háttað. Meðal viðmiða ríkislögreglustjóra er að um 90% íbúa séu innan 45 mínútna aksturs frá næstu lögreglustöð. Áætlaður viðbragðstími frá Búðardal og í Borgarnes, Hólmavík, Hvammstanga og Reykhóla er á bilinu 43-46 mínútur. Undantekningin í þessu tilviki er Stykkishólmur þar sem eru 54 mínútna viðbragðstími en þar spilar inn í að vegurinn um Skógarströnd er eini stofnvegurinn í byggð á Vesturlandi sem ekki er með bundnu slitlagi, en það er nú annar kapítuli út af fyrir sig. Frá jaðri fjögurra umdæma að miðlægum stað innan eins embættis Við sameiningu þessara fjögurra stóru umdæma verður Búðardalur ekki miðpunktur alls hins nýja umdæmis í bókstaflegum skilningi, enda nær það austur um allt Norðurland. Búðardalur liggur hins vegar mjög miðlægt gagnvart Vesturlandi, Vestfjörðum og vestari hluta Norðurlands, á mikilvægum samgönguás milli þessara svæða. Núna þegar lögregluumdæmin eiga að stækka verulega viljum við líka að horft verði á þetta augljósa tækifæri fyrir Dalabyggð. Því er ástæða til að skoða vandlega þann möguleika að við endurskipulagninguna sé sérstaklega skoðað að efla lögreglustöðina í Búðardal, að staðsetja þar stjórnunar- og samræmingarhlutverk innan hins nýja embættis og vinna þar sérhæfð verkefni sem ekki eru bundin við stærstu þéttbýliskjarnana og með því nýta Búðardal sem viðbragðsmiðju fyrir svæði sem nú liggja á mörkum Vesturlands, Vestfjarða og Norðurlands vestra. Höfundur er varaoddviti sveitarstjórnar Dalabyggðar.
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun