Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar 8. október 2026 07:45 Um skóladaga, kennslutíma og villandi samanburð Í umræðu um skóladaga íslenskra barna er auðvelt að festa sig í einni tölu: 180 dagar á Íslandi, 200 dagar í Danmörku. Sú tala segir þó ekki alla söguna. Ef bera á saman skólagöngu barna milli landa þarf að greina á milli skóladaga, viðveru í skóla og hreinnar kennslu. Í íslenskum lögum segir að starfstími nemenda í grunnskóla skuli vera að lágmarki 180 skóladagar á ári. Þar er jafnframt kveðið á um að vikulegur kennslutími í 1.-4. bekk skuli vera 1.200 mínútur, eða 20 klukkustundir á viku. Það jafngildir 240 mínútum á dag ef kennslunni er dreift jafnt á fimm daga. Heimild: Lög um grunnskóla nr. 91/2008 Í Danmörku er kerfið sett upp með öðrum hætti. Þar segir menntamálaráðuneytið að nemendur í børnehaveklasse og 1.-3. bekk skuli fá að lágmarki 1.030 klukkustundir á skólaári. En lykilatriðið er að þessar klukkustundir innihalda ekki eingöngu hreina kennslu. Danska ráðuneytið tekur sérstaklega fram að talan feli í sér allt sem er hluti af skóladeginum: fagkennslu, aðrar skólatengdar athafnir og pásur/frímínútur. Heimild: Undervisningsministeriet Þess vegna er villandi að bera saman íslensku 720 kennslustundirnar við dönsku 1.030 viðverustundirnar eins og þetta séu sömu stærðir. Það er ekki verið að mæla nákvæmlega sama hlutinn. Erindi Heimilis og skóla Þetta skiptir máli vegna þess að umræðan er ekki lengur bara almenn. Í formlegu erindi Heimilis og skóla til stjórnar Kennarasambands Íslands, dagsettu 6. október 2026, er óskað eftir því að stjórn KÍ skoði opinber ummæli formanns KÍ um 180 kennsludaga. Þar er réttilega bent á að skólasetning, jólaball, foreldraviðtal og skólaslit séu ekki hefðbundnir kennsludagar þótt þeir geti talist inn í 180 skóladaga nemenda. Heimild: Heimili og skóli, erindi til stjórnar KÍ Sú ábending er mikilvæg. En vandinn er að sama nákvæmni virðist ekki notuð þegar Ísland er borið saman við Danmörku. Í sama erindi er fullyrt að dönsk börn fái um 40% fleiri kennslustundir en íslensk börn. Slík fullyrðing þarf að standast þá einföldu kröfu að verið sé að bera saman sömu hluti: kennslu við kennslu, ekki íslenska kennslu við danska viðveru með frímínútum. Hvað sýna raunverulegar stundaskrár? Þegar raunverulegar dagskrár danskra skóla eru skoðaðar sést að yngstu börnin eru ekki endilega með lengri hreina kennslu á dag en íslensk börn. Í mörgum dæmum eru yngstu nemendur með um 225 mínútur af kennslu á dag, eða fimm 45 mínútna kennslulotur. Heimildir fyrir dönsku dæmunum: Sølvgades Skole, Firhøjskolen, Tranegårdskolen Ef danskt barn fær 225 mínútur af hreinni kennslu í 200 daga, þá eru það 45.000 mínútur, eða 750 klukkustundir. Ef íslenskt barn fær 240 mínútur af hreinni kennslu í 180 daga, þá eru það 43.200 mínútur, eða 720 klukkustundir. Munurinn er þá 30 klukkustundir á ári, ekki 20 eða 30 heilir skóladagar. Það jafngildir um 7,5 íslenskum kennsludögum eða um 8 dönskum 225 mínútna kennsludögum. Skertir dagar eru beggja vegna Það er líka rétt að 180 íslenskir skóladagar eru ekki allir hefðbundnir heilir kennsludagar. Í nokkrum íslenskum skóladagatölum er beinlínis gert ráð fyrir 10 skertum dögum innan 180 nemendadaga. Grunnskóli Bolungarvíkur segir til dæmis að skóladagar nemenda séu 180 og þar af séu 10 skertir dagar, meðal annars vegna foreldraviðtala, öskudags og vordaga. Myllubakkaskóli útskýrir einnig að á skertum dögum mæti nemendur styttra, til dæmis á skólasetningu, samskiptadögum, jólahátíð, árshátíð og öskudegi. Heimildir: Grunnskóli Bolungarvíkur, Myllubakkaskóli En sama þarf að skoða í Danmörku. Þar er algengt að tala um 200 skóladaga, en danskt skóladagatal inniheldur líka styttri eða breytta daga. Í dagatali Grøndalsvængets Skole fyrir 2026-2027 kemur fram að skólaárið hefst 11. ágúst hjá 1.-9. bekk og lýkur 25. júní, með hefðbundnum fríum inn á milli. Þegar virkir dagar eru taldir frá þessum dagsetningum, að frídögum frádregnum, fæst 200 skóladagar fyrir 1.-9. bekk. Heimild: Grøndalsvængets Skole Sama danska dagatal sýnir þó líka lista yfir „anderledes dage“, eða breytta/skerta daga. Þar eru meðal annars fyrsti skóladagur 1.-9. bekkjar frá 8:00-11:40, fyrsti skóladagur 0. bekkjar frá 9:30-11:00, jólalok frá 8:00-11:40 og síðasti skóladagur frá 8:00-11:40. Þar eru einnig dagar eins og Fart over feltet, Høstfest, Skolernes motionsdag, Temauge og Featureuge, þar sem yngri nemendur eru oft skráðir 8:00-12:50. Þemavikur og breyttir dagar eru ekki óþekkt fyrirbæri í dönskum skólum. Danska orðið „temauge“ merkir viku þar sem skóli eða bekkir vinna með ákveðið þema, oft þvert á fög. Einnig má finna skóla sem lýsa „anderledes dage“, þar sem venjuleg stundaskrá er breytt, til dæmis með fagdögum eða bekkjardögum. Samtals geta þetta þá verið um 16 skertir dagar í Danmörku. Heimildir: Den Danske Ordbog, Frijsendal Friskole Þetta þýðir ekki að allir slíkir dagar séu ókennsludagar. Þvert á móti geta þemadagar og uppbrotsdagar verið mjög markvissir kennsludagar. En þeir eru ekki endilega sambærilegir við hefðbundinn fullan kennsludag, sérstaklega ef mætingartími nemenda er styttur. Finnland sýnir hversu varasamt er að telja bara daga Finnland er gott dæmi um hversu varasamt er að bera saman skóladaga án þess að skoða hvað er inni í deginum. Samkvæmt finnskri reglugerð um grunnskóla skal nemandi í 1. bekk fá að meðaltali að minnsta kosti 21 skólatíma á viku, og af hverjum tíma skulu að minnsta kosti 45 mínútur fara í kennslu. Það jafngildir 945 kennslumínútum á viku, eða um 189 mínútum á dag ef dreift er jafnt á fimm daga. Til samanburðar er lágmarkið á Íslandi 1.200 kennslumínútur á viku í 1.-4. bekk, eða 240 mínútur á dag miðað við fimm daga viku. Með öðrum orðum getur íslenskt 6 ára barn, miðað við þessi lágmörk, verið með um 51 mínútu meiri hreina kennslu á dag en finnskt barn í 1. bekk, þótt Finnland sé með fleiri skóladaga á ári. Það sýnir hversu villandi það getur verið að telja daga án þess að telja mínútur. Heimild: Perusopetusasetus 852/1998, 3. gr. og 4. gr., Finlex. Niðurstaða Það er rétt að íslensk börn eru skráð með færri skóladaga en dönsk börn. Það er líka rétt að íslensk skóladagatöl innihalda oft um 10 skerta daga. En það er ekki rétt að bera 180 íslenska daga saman við 200 danska daga eins og dönsku dagarnir séu allir fullir hefðbundnir kennsludagar og íslensku dagarnir einir skertir. Það er heldur ekki rétt að bera saman íslenskar 720 hreinar kennslustundir við danskar 1.030 viðverustundir með frímínútum eins og um sama mælikvarða sé að ræða. Ef gagnrýnin á að snúast um nákvæmni í orðalagi verður sama krafa að gilda báðum megin í samanburðinum. Það má ekki gagnrýna einn aðila fyrir að rugla saman skóladögum og kennsludögum, en gera svo sjálfur sambærilega skekkju með því að rugla saman viðverustundum og kennslustundum. Í erindi Heimilis og skóla er munurinn málaður upp sem 30 skóladaga gjá milli Íslands og Danmerkur. En þegar frímínútur eru teknar úr dönsku tölunni og kennsla borin saman við kennslu, stendur eftir munur sem jafngildir um 7,5 íslenskum kennsludögum eða samtals 30 klukkutímum á ári.Þegar frímínútur verða að kennslu og 7,5 kennsludagar að 30 skóladögum, er spurningin ekki lengur bara hvað var talið. Spurningin er hvort viljandi hafi verið verið að villa um fyrir foreldrum? Höfundur er með kennsluréttindi og áhugamaður um að segja satt og rétt frá. Heimildir Lög um grunnskóla nr. 91/2008 Undervisningsministeriet: Undervisningstidens samlede længde Heimili og skóli: Erindi til stjórnar Kennarasambands Íslands Sølvgades Skole: Ringetider Firhøjskolen: Ringetider Tranegårdskolen: Ringetider Grunnskóli Bolungarvíkur: Skóladagatal Myllubakkaskóli: Skóladagatal Grøndalsvængets Skole: Begivenheder og ferie Den Danske Ordbog: temauge Frijsendal Friskole: Anderledes dage Perusopetusasetus 852/1998 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Þegar heimilið hættir að vera öruggt heimili Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind kallar á nýja hugsun í rekstri Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Sjá meira
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar