Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar 9. október 2026 08:02 Í desember 2023 skrifaði útvarpsstjóri undir samning, ásamt þáverandi menningarmálaráðherra, um fjölmiðlaþjónustu RÚV í almannaþágu. Samningurinn er í gildi frá 2024 til 2027. Í viðauka við samninginn stendur meðal annars: „Unnið verður að því á gildistíma samningsins að minnka umsvif Ríkisútvarpsins á samkeppnismarkaði, t.d. með frekari takmörkunum á birtingu viðskiptaboða og/eða með því að breyta eðli og umfangi auglýsingasölu.“ Þetta var skýrt fyrirheit sem snýst ekki um að halda áfram á sömu braut eða hægja aðeins á vexti. Samkomulagið kveður á um að draga úr umsvifum RÚV á auglýsingamarkaði. Tekjur hafa ekki dregist saman og auglýsingahólf hafa ekki styst Tekjur hafa aukist lítillega frá undirritun samningsins en ekki dregist saman. Gögn um auglýsingahólf á aðalsjónvarpstíma segja svipaða sögu. Meðallengd auglýsingahólfs var 2,6 mínútur árið 2023 en 2,8 mínútur árið 2024. Það er um 7,7% lenging á fyrsta ári samningsins. Þessar tölur sýna ekki samdrátt sem er einmitt sameiginlega markmiðið. Hafa ber í huga að RÚV starfar á þroskuðum markaði og því eru sveiflur milli ára litlar og minni en til dæmis á vaxtarmörkuðum. Einnig taka tæknirisarnir Alphabet (Google og YouTube) og Meta (Facebook og Instagram) sífellt meira til sín af heildar auglýsingamarkaðnum. Auglýsingatekjur RÚV hafa haldist nokkuð stöðugar að nafnvirði á meðan auglýsingatekjur innlendra miðla hafa dregist saman að raunvirði. Þróunin hefur því styrkt hlutfallslega stöðu RÚV gagnvart frjálsum íslenskum fjölmiðlum. Eins og ég hef áður farið yfir er ætlað þak í frumvarpinu langt yfir þróun síðustu ára. Því má ætla að RÚV hyggist sækja fram enda koma frumvarpsdrögin í engu í veg fyrir það þótt það gangi þvert gegn markmiði frumvarpsins. RÚV er byrjað að sækja í auknar auglýsingatekjur Það eru blikur á lofti. RÚV hefur nýlega hafið sókn á auglýsingamarkaði þrátt fyrir samkomulag útvarpsstjóra og markmið menningarmálaráðherra um að draga úr umsvifum RÚV á auglýsingamarkaði. Ætlar menningarmálaráðherra að láta það viðgangast? RÚV er byrjað að lengja þætti á vinsælum dagskrártímum til að auka auglýsingatekjur. Skýrasta dæmið er þátturinn Vikan með Gísla Marteini, sem er sýndur á föstudagskvöldum. Ef eigin framleiðsla RÚV er 60 mínútur eða lengri telur RÚV sig hafa heimild til að bæta auglýsingahléi inn í þáttinn og þar með auka auglýsingatekjur. Það hefur alls ekki verið venjan frá því að þátturinn hóf göngu sína. Árið 2023 voru aðeins 3 af 27 þáttum 60 mínútur eða lengri. Í ár hafa allir þættirnir verið lengri en 60 mínútur, að einum undanskildum. Það sem áður var undantekning er nú almenna reglan. Þetta þýðir að RÚV fær meiri auglýsingatekjur. Það sama á við um nýja laugardagsþáttinn Landsleikana, en í honum er auglýsingahlé í miðjum þætti. Í Kappsmálum, sem áður voru á dagskrá á sama degi, var slíkt hlé ekki til staðar. Aftur, RÚV fær meiri auglýsingatekjur. Hvar eru auknu takmarkanirnar? Nú liggja fyrir drög að breytingum á lögum um RÚV. Í þeim er vitnað til markmiðsins um að draga úr umsvifum RÚV á auglýsingamarkaði. Samt er þar ekki að finna beinar og mælanlegar takmarkanir sem tryggja slíka þróun. Ekki er lagt til að auglýsingamínútum fækki. Ekki er sett hámark á fjölda auglýsingahléa eða auglýsingabirtinga. Ekki er komið í veg fyrir að auglýsingahléum sé bætt inn í dagskrárliði. Ekki eru settar skýrar skorður við afsláttum eða viðbótarbirtingum. Ekki er sett mælanlegt markmið um lægri auglýsingatekjur eða minni markaðshlutdeild RÚV. Ekki er sett raunverulegt þak á auglýsingatekjur RÚV. Menningarmálaráðherra og útvarpsstjóri lofa öllu fögru og setja undirskriftir á blað, en setja síðan á svið pólitískt leikrit. Hvar er heiðarleikinn, hvar er traustið. Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli. Ég trúi því að almenningur vilji öfluga og frjálsa íslenska fjölmiðla. Ég skil þó vel að fólk átti sig ekki alltaf á því hvernig þessum málum er háttað. Sjálfur sá ég ekki heildarmyndina fyrr en ég var beðinn um að ræða íslenska auglýsingamarkaðinn í útvarpi og fór að kynna mér hann betur. Nú er kominn tími til að stíga raunveruleg skref til að styrkja frjálsa íslenska fjölmiðla. Öll aðstoð við að vekja athygli á málinu er vel þegin. Höfundur er framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála hjá Sýn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Auglýsinga- og markaðsmál Fjölmiðlar Sýn Ríkisútvarpið Mest lesið Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar