Brýtur tíu prósenta múrinn í Skaga og fær heimild til virks eignarhlutar
Fjárfestingafélag Bjarna Ármannssonar hefur fengið heimild frá Seðlabankanum til að fara með yfir tíu prósenta eignarhlut í Skaga, sem á meðal annars VÍS og Fossar fjárfestingabanka, eftir að hafa stækkað enn frekar stöðu sína í félaginu. Bjarni er eini einkafjárfestirinn í dag með heimild til að fara með virkan eignarhlut í einu af stærri fjármálafyrirtækjum landsins.
Tengdar fréttir
Telur stjórnarmenn þurfa að útskýra fyrir hluthöfum breytta afstöðu til samruna
Fjárfestirinn Bjarni Ármannsson segist „ekki trúa öðru“ en að stjórnir Íslandsbanka og Skaga muni á aðalfundi félaganna í komandi viku gera efnislega grein fyrir því gagnvart hluthöfum af hverju samrunaviðræðum var slitið og kallar eftir því að lífeyrissjóðir hafi skoðun á slíkum „strategískum ákvörðunum.“ Þá er Bjarni, annar stærsti hluthafi Skaga, afar gagnrýninn á að ekki hafi verið upplýst um hvaða fjárfestar voru í samfloti með Heiðari Guðjónssyni þegar óskað var eftir hluthafafundi í Íslandsbanka í því skyni að efna til stjórnarkjörs og segir slíka „leyndarhyggju ekki vera í lagi“ þegar um sé að ræða kerfislega mikilvægan banka.
Hlutafé Fossa aukið um 300 milljónir til að styðja við vöxt á efnahag bankans
Á meðan afkoman hjá Skaga var dræm af fjármálastarfsemi og fjárfestingum, meðal annars talsvert rekstrartap hjá Fossum, þá náði að vega á móti að áfram var góður gangur í tryggingarekstrinum á öðrum fjórðungi. Í lok síðasta mánaðar stóð móðurfélagið að baki hlutafjáraukningu í Fossum upp á þrjú hundruð milljónir sem á að styðja við aukna lánastarfsemi fjárfestingabankans.
Gengishækkun bréfa ISB vegna mikilla endurkaupa var „ekki forsendubrestur“
Þegar samið var um helstu skilmála samruna Íslandsbanka og Skaga í október, meðal annars með því að festa gagngjaldið til hluthafa Skaga í tilteknum fjölda hluta, var gert ráð fyrir áframhaldandi kaupum bankans á eigin bréfum sem hafði „óhjákvæmilega áhrif til hækkunar“ á hlutabréfaverðinu, að sögn stjórnarformanns Skaga. Hann segir það hafa verið „veruleg vonbrigði“ þegar Íslandsbanki setti fram kröfur um mikla lækkun á gagngjaldinu á grundvelli ólíkrar þróunar á markaðsvirði félaganna sem hafi ekki átt sér stoð sem ein forsenda breytinga á samkomulaginu.
Minni fjármálafyrirtæki draga saman seglin við erfiðar markaðsaðstæður
Smærri fjármálafyrirtæki, meðal annars Fossar og Acro, leita nú leiða til hagræðingar samhliða erfiðu árferði á verbréfamörkuðum og hafa þurft að segja upp starfsfólki á undanförnum dögum. Velta á hlutabréfamarkaði skrapp saman um nærri fimmtíu prósent á fyrri árshelmingi.