Handbolti

KA-menn brotlentu í Garða­bæ

Sindri Sverrisson skrifar
Bjarki Jóhannsson er að láni hjá Stjörnunni frá FH. Hann átti stóran þátt í sigrinum í kvöld.
Bjarki Jóhannsson er að láni hjá Stjörnunni frá FH. Hann átti stóran þátt í sigrinum í kvöld. Stjarnan

Stjörnumenn unnu frábæran sigur gegn heitum KA-mönnum í kvöld, 35-33, í 6. umferð Olís-deildar karla í handbolta. Þetta var annar sigur Stjörnunnar og annað tap KA sem situr í 3. sæti.

Stjarnan var 17-14 yfir í hálfleik og hóf svo seinni hálfleik af gríðarlegum krafti með því að skora fyrstu fimm mörkin og ná átta marka forskoti, 22-14.

KA-menn gáfust þó ekki upp og náðu smám saman að minnka muninn niður í tvö mörk, 31-29, þegar enn voru fimm mínútur eftir.

Spenna var því í leiknum á lokamínútunum en Stjörnumenn stóðust pressuna og lönduðu glæsilegum sigri.

Ísak Logi Einarsson var markahæstur hjá Stjörnunni með 11 mörk en úr 22 skotum og Bjarki Jóhannsson skoraði 8 mörk úr 12 skotum.

Hjá KA var Dagur Árni Heimisson með 11 mörk úr 15 skotum og nafni hans Dagur Gautason kom næstur með 8 mörk úr 12 skotum.

Stjarnan komst með sigrinum upp fyrir Fram, HK og Þór, allavega tímabundið, og er með fimm stig í 7. sæti en KA, sem hafði unnið tvo leiki í röð og alls fjóra af fimm leikjum sínum, er með átta stig í 3. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×