Innlent

Þúsundir hvetja til út­tektar og ríkis­sak­sóknari í­hugar á­frýjun

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir, verkefnastjóri við Háskóla Íslands telur dómara í Landsrétti í mótsögn við sjálfan sig í nýlegum dómi. Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja málinu.
Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir, verkefnastjóri við Háskóla Íslands telur dómara í Landsrétti í mótsögn við sjálfan sig í nýlegum dómi. Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja málinu. Vísir

Undirskriftasöfnun er hafin í kjölfar umdeilds dóms Landsréttar þar sem maður var sýknaður af nauðgun eftir að hafa áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi. Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja málinu til hæstaréttar. Verkefnastjóri við Háskóla Íslands segir dómarana tvo sem sýknuðu manninn í mótsögn við eigin rökstuðning og hafi varpað ábyrgðinni á ofbeldinu yfir á konuna.

Maður sem sýknaður var af nauðgun í Landsrétti í síðustu viku hafði áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Konan í málinu hlaut alvarlega áverka, meðal annars rifbeinsbrot og heyrnartap. Meirihluti Landsréttar, tveir dómarar af þremur, taldi ósannað að maðurinn hefði af ásetningi gengið lengra en hann hafði réttmæta ástæðu til að ætla að konan samþykkti. Þriðji dómarinn skilaði sératkvæði og vildi staðfesta sakfellinguna.

Undirskriftarsöfnun hafin

Við meðferð málsins í héraði kom fram að maðurinn ætti að baki dóm frá árinu 2020 fyrir nauðgun, kynferðislega áreitni og ofbeldi í nánu sambandi.

Í kjölfar sýknudómsins, sem féll á fimmtudag, hófst í morgun undirskriftasöfnun á Ísland.is, þar sem krafist er úttektar á meðferð kynferðis- og kynbundinna ofbeldismála. Tæplega tvö þúsund manns höfðu skrifað undir fyrir hádegi.

Segir dómarana í mótsögn við eigin rökstuðning

Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir, verkefnastjóri við Háskóla Íslands og fyrrverandi talskona samtakanna Líf án ofbeldis, gagnrýnir sýknudóminn harðlega. Hún segir dómarana tvo viðurkenna í forsendum sínum að þolendur nauðgana geti frosið af hræðslu en telji engu að síður að konan hafi ekki gert nóg til að stöðva manninn.

Að hennar mati byggist sýknan á því að ekki hafi tekist að sanna að maðurinn hafi af ásetningi farið út fyrir mörk samþykkis konunnar, þrátt fyrir að alvarlegir áverkar hennar séu óumdeildir. Með þessu sé ábyrgðinni á að stöðva ofbeldið varpað yfir á konuna. Þetta kallar hún „lögfræðilegan gervivafa“.

„Þessi dómur er mjög sláandi. Það er farið rækilega yfir í dómsorðunum hvað felst í samþykki, lögum samkvæmt og hvað felst ekki í samþykki. Það er auk þess viðurkennd þekking á viðbrögðum þolenda nauðgana sem eru lífeðlisleg viðbrögð þannig að viðkomandi getur frosið. Samt komast þeir að þeirri niðurstöðu að konan hafi í þessu máli ekki gert nóg til að stoppa manninn. Þeir leggja alla ábyrgðina á konuna þó að hún hafi ekki getað andað, þó að hún hafi í rauninni afturkallað samþykki sitt með nægilegum hætti með því að segja umsamið öryggisorð sem talað er um í dómnum líka. Þannig að dómararnir tveir eru að mínu mati í mótsögn við sjálfa sig í dómnum,“ segir Sigrún Sif.

Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja málinu

Sigrún segir niðurstöðuna senda hættuleg skilaboð um að samþykki fyrir harkalegu kynlífi geti réttlætt alvarlegt ofbeldi. Hún telur mikilvægt að málið fari fyrir Hæstarétt og að niðurstaða Landsréttar verði ekki fordæmisgefandi í kynferðisbrotamálum.

„Ég myndi náttúrulega vilja að ríkissaksóknari áfrýjaði málinu til Hæstaréttar,“ segir hún.

Ríkissaksóknari kannar nú hvort leita eigi leyfis til að áfrýja sýknudóminum til Hæstaréttar, samkvæmt svari embættisins við fyrirspurn fréttastofu.

 Sigrún leggur jafnframt til að Alþingi skoði hvort gera eigi nauðgun af gáleysi refsiverða í tilvikum þar sem sýnt sé fram á að ofbeldið hafi valdið alvarlegu líkamlegu eða andlegu tjóni.

„Við viljum ekki hafa svona, segir hún að lokum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×