Íslenski boltinn

Gylfi: „Við erum ó­dýrasta liðið í þessari deild“

Gunnar Berg Stefánsson skrifar
Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, er þakklátur fyrir tímabilið.
Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, er þakklátur fyrir tímabilið. Vísir/Guðmundur

Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, var þakklátur fyrir tímabilið þrátt fyrir 3-2 tap gegn Þrótti í lokaumferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Hann segir liðið hafa náð frábærum árangri miðað við fjárhagslega stöðu félagsins.

„Ég er bara þakklátur fyrir að hafa fengið að upplifa þetta tímabil,“ sagði Gylfi eftir leik og bætti við að tímabilið hefði verið draumatímabil að mörgu leyti.

Gylfi hefur farið ítarlega yfir frammistöðu liðsins og segir niðurstöðuna skýra.

„Ég er búinn að rannsaka þetta vel og vandlega, ólíkt kannski því sem er stundum í umræðunni, við erum samkvæmt mínum rannsóknum með minnsta budgetið í deildinni,“ sagði Gylfi og bætti við:

„Við erum ódýrasta liðið í þessari deild.“

Hann benti á að liðið hefði engu að síður komist í bikarúrslit og verið í hópi bestu liða deildarinnar samkvæmt tölfræðinni. Hann telur því að liðið hafi staðið sig afar vel miðað við þær bjargir sem það hefur.

Aðspurður hvort næsta skref væri að berjast um Íslandsmeistaratitilinn sagði Gylfi að það færi eftir því hvernig litið væri á málið. Hann vonaðist til að félagið gæti fengið fleiri styrktaraðila og aukið fjármagn til að halda áfram uppbyggingunni.

„Ég væri alveg til í að vera ekki með ódýrasta lið deildarinnar. Það eru tvö lið sem eru með yfirburði þar og við þurfum allavega að reyna að nálgast þessi lið fyrst.”

Framtíð Gylfa hjá félaginu er hins vegar óljós.

„Þegar stórt er spurt,“ sagði hann þegar hann var spurður hvort hann myndi halda áfram sem þjálfari liðsins.

„Ég veit það ekki, ef ég á að vera alveg hreinskilinn, sko.“

Gylfi sagðist vera að renna út á samningi eftir tímabilið og að framhaldið yrði rætt á næstunni. Hann vildi ekki fara nánar út í þær viðræður að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×