Íslenski boltinn

„Fólk var al­veg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta”

Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoraði fimm mörk í kvöld og nítján í Besyu deildinni í sumar.
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoraði fimm mörk í kvöld og nítján í Besyu deildinni í sumar. Vísir/Guðmundur

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir lauk tímabilinu með látum þegar hún skoraði fimm mörk í sigri Breiðabliks á FH, sex gegn tveimur, í lokaumferð Bestu deildar kvenna. Hún tryggði sér Gullskóinn með nítján mörkum og skoraði átta þeirra í síðustu þremur leikjum Íslandsmeistaranna.

Hrafnhildur Ása byrjaði tímabilið af krafti en síðan tók við kafli þar sem erfiðara gekk að finna netmöskvana. Hún sagðist þó aldrei hafa misst trúna á sjálfa sig.

„Nei, fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta,“ sagði Hrafnhildur Ása eftir leik.

Árangur liðsins hefði skipt hana meira máli en hver sæi um markaskorunina.

„Já, þú veist, meðan liðið er að vinna þá skiptir ekkert endilega máli hvort ég sé að skora eða einhver annar.“

Þótt Hrafnhildur Ása hefði raðað inn mörkunum í sumar hafði hún ekki vanist því að leika sem fremsti sóknarmaður. Hún benti á að mikið flæði væri í sóknarleik Breiðabliks og hlutverkið fælist ekki í því að vera fastur viðmiðunarpunktur fremst á vellinum.

„Ég hef aldrei verið að spila neitt sem einhver striker, ég hef eiginlega alltaf verið meira á miðjunni þannig að ég veit það ekki, kannski eitthvað nýtt núna bara.“

Miklar væntingar höfðu verið gerðar til hennar fyrir tímabilið og henni meðal annars verið spáð góðu gengi í baráttunni um Gullskóinn. Hún viðurkenndi að því hefði fylgt einhver pressa en tók væntingunum vel.

„Já, kannski smá en ég veit alveg hvað ég get þannig að þetta kom mér ekkert á óvart og það er bara gaman að sjá að fólk hefur trú á mér.“

Hrafnhildur Ása sagðist ekki hafa unnið mikið með sérstaka markmiðaþjálfun eða andlegan undirbúning þrátt fyrir væntingarnar.

„Nei, ég hef ekkert verið eitthvað mikið að vinna í því en ég er bara með ágætan haus þannig að ég held það hafi alveg hjálpað mér.“

Eftir slíkt tímabil lá beint við að spyrja hvort næsta skref gæti verið í atvinnumennsku erlendis. Hrafnhildur Ása gaf lítið upp um það.

„Ég bara veit það ekki, það verður bara að koma í ljós.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×