Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Kolbeinn Kristinsson skrifar 24. október 2026 16:46 Jóhannes Karl Guðjónsson er bjartsýnn fyrir komandi tímabil með FH eftir erfiða byrjun í ár. Anton/Vísir Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH var svekktur og í senn bjartsýnn eftir 2-1 tap liðsins gegn Þór í lokaumferð Bestu deildar karla á Pepsi-vellinum í Laugardal í dag. Hann taldi FH-inga hafa gert margt vel í leiknum en sagði liðið hafa gert Þórsurum of auðvelt fyrir þegar gestirnir sneru leiknum sér í vil í fyrri hálfleik. „
Ég held að við höfum komið með miklum krafti inn í leikinn, skapað okkur færi og komist náttúrulega yfir. Auðvitað fengu Þórsararnir líka færi en mér fannst við vera að skjóta okkur svolítið sjálfir í fótinn með því hvernig við fengum þessi tvö mörk á okkur,“ sagði Jóhannes Karl eftir leik. Þórsarar skoruðu tvö mörk á tveimur mínútum í fyrri hálfleik og sneru stöðunni úr 1-0 í 1-2. Jóhannes sagði FH-inga hafa verið meðvitaða um styrkleika gestanna en ekki tekist nægilega vel að bregðast við þeim. „Við vissum alveg að þeir eru mikið skyndisóknarlið og eru fljótir að fara fram. Við erum að fá á okkur hættulegar stöður eftir föst leikatriði þar sem við höfum verið að gera virkilega vel.“ „Ég er alveg drullusvekktur“ Jóhannes sagði FH-inga hafa búist við miklum krafti frá Þórsurum enda mikið undir hjá gestunum í lokaumferðinni. „Við vissum að þeir myndu koma alveg brjálaðir í þennan leik og það var ekki við neinu öðru að búast. Mér fannst við alveg vera klárir í það á köflum. Þeir gerðu bara vel að einhverju leyti en það breytir því ekki að ég er alveg drullusvekktur.“ Þótt leikurinn hafi farið fram í Laugardalnum en ekki í Kaplakrika lagði Jóhannes áherslu á að FH-ingar hefðu ætlað sér að ljúka tímabilinu með sigri á heimavelli. „Þetta var okkar heimaleikur þó að við höfum ekki spilað í Krikanum. Við ætluðum að enda tímabilið betur en þetta.“ Þurfa að vera hugrakkari og ákveðnari Þrátt fyrir tapið sá Jóhannes ýmislegt jákvætt í frammistöðu sinna manna. Hann sagði þó ljóst að liðið þyrfti að bæta ákveðna þætti fyrir næsta tímabil. „Þó að við höfum tapað leiknum var samt margt jákvætt í okkar frammistöðu. En það sem við þurfum að bæta, og munum hugsa um inn í langt undirbúningstímabil, er að við þurfum að bæta okkur í varnarstöðunum einn á einn.“ Hann vill sjá meiri ákveðni og hugrekki í varnarleik FH á næsta tímabili. „Við þurfum að vinna einvígin okkar enn betur, vera aggressífari, þora að standa hátt á vellinum og díla við hætturnar sem koma upp. Vera hugrakkari. Það er bara stanslaus vinna hjá okkur fram undan í því.“ „Eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Þegar Jóhannes leit yfir tímabilið í heild sagði hann það hafa verið kaflaskipt. FH-ingar áttu erfitt uppdráttar framan af en náðu að snúa þróuninni við þegar leið á sumarið. „Við komum inn í tímabilið á okkar hátt sem við vorum búnir að vera að vinna í allan vetur. Úrslitin duttu ekki með okkur og fyrri hluta tímabilsins var þetta kannski svolítið stöngin út. En við héldum áfram og létum það þjappa okkur saman.“ FH náði góðum kafla um mitt tímabil og Jóhannes var sérstaklega ánægður með hvernig leikmenn brugðust við mótlætinu. „Við náðum mjög góðum kafla um mitt tímabil, fullt af góðum frammistöðum og fórum svo að tengja saman sigra, sem skiptir okkur náttúrulega langmestu máli.“ „Ég var ánægður með hvernig menn, og við sem lið, unnum okkur út úr þessum erfiðleikum til að byrja með. Ég fann bara að það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu, og við fórum að sjá fullt af góðum frammistöðum hjá einstaklingunum líka.“ Mikilvæg reynsla fyrir unga leikmenn Jóhannes Karl verður áfram við stjórnvölinn hjá FH og telur liðið hafa lagt mikilvægan grunn á tímabilinu, þótt enn sé mikið verk óunnið. „Það er fullt af jákvæðum hlutum sem við getum tekið með okkur út úr þessu tímabili en að sama skapi er fullt af vinnu fram undan. Við þurfum að halda áfram að styrkja okkur og bæta okkur og leggja hart að okkur.“ Hann segir reynsluna sem ungir leikmenn FH hafi öðlast á tímabilinu geta reynst liðinu dýrmæta til framtíðar. „Það er gríðarleg reynsla sem ungir leikmenn fá þetta tímabil. Við þurfum að sjá til þess að við tökum þá reynslu með okkur inn í það næsta, byggjum ofan á það sem við gerðum vel og lærum af því sem við gerðum ekki nógu vel á þessu tímabili,“ sagði Jóhannes Karl að lokum.
Íslenski boltinn Fótbolti FH Mest lesið Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum Handbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Íslenski boltinn Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Enski boltinn Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Gylfi valinn besti leikmaður ársins Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Sjá meira
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn