Íslenski boltinn

Emil skrifar undir hjá Fram

Valur Páll Eiríksson skrifar
Emil Atlason skrifar undir hjá Fram.
Emil Atlason skrifar undir hjá Fram. Fram

Emil Atlason hefur skrifað undir samning við Fram sem nýr leikmaður liðsins í Bestu deild karla í fótbolta. Skiptin höfðu legið í loftinu.

Ekki fylgir sögunni í færslu Framara hversu langan samning hinn 33 ára gamli Emil gerir við Fram. Hann kemur frá Stjörnunni þar sem hann hefur verið frá árinu 2020.

Emil skoraði tíu mörk í Bestu deildinni í sumar, öll í sautján leikjum fyrir tvískiptingu deildarinnar.

„Það er mikið gleðiefni að Emil hafi valið að koma til okkar í FRAM, enda eftirsóknarverður leikmaður sem flest lið í deildinni myndu vilja hafa í sínum röðum. Emil kemur inn í hópinn með gríðarlega reynslu, markanef og sterkan karakter. Emil mun koma til með að vera mjög góð viðbót við annars sterkan leikmannahóp okkar og verður spennandi að fylgjast með honum í FRAM treyjunni,“ er haft eftir Páli Árnasyni, yfirmanni knattspyrnumála hjá Fram.

Endurnýjar kynnin við Rúnar

Emil endurnýjar kynnin við Rúnar Kristinsson en Rúnar fékk Emil til KR frá FH þegar hann var enn í 2. flokki. Hann spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki undir stjórn Rúnars.

Emil var nokkuð óvænt í stóru hlutverki hjá KR strax sumarið 2012, þá á elsta ári í 2. flokki, eftir að hafa ekki fengið tækifæri hjá FH.

Hann var fastamaður í liði KR undir stjórn Rúnars árin 2012 til 2014 þar sem þeir félagar unnu saman einn Íslandsmeistaratitil og tvo bikartitla.

Hlutverk Emils minnkaði sumarið 2015 þegar Bjarni Guðjónsson tók við KR og hann skipti yfir í Val á miðju því sumri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×