Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson og Regína Ásvaldsdóttir skrifa 3. nóvember 2026 16:17 Íslenska þjóðin er að eldast hratt og það skiptir okkur öll gríðarlega miklu máli að þjónusta við eldra fólk þróist í takt við tímann og í samræmi við breyttar þarfir. Á næstu tíu árum er spáð að fjölgun landmanna 80 ára og eldri verði 44 % samanborið við um 18 % í öðrum aldurshópum. Þessi ánægjulega þróun kallar á aukna þjónustuþörf í heilbrigðis- og velferðarkerfinu. Gott að eldast aðgerðaáætlunin, sem var samþykkt á Alþingi 2023 með öllum greiddum atkvæðum, felur í sér 19 verkefni sem snúa að sameiningu þjónustu, virkni, miðlun upplýsinga, þróun og nýsköpun og húsnæðismálum. Tuttugu og tvö sveitarfélög á sextán svæðum og sex heilbrigðisumdæmi taka þátt í verkefninu. Flest hafa stóraukið samstarf sín á milli með sameiginlegu verklagi félags- og heilbrigðisþjónustu við mati á þjónustuþörf eldra fólks í heimahúsum. Í sex sveitarfélögum hefur verið gengið skrefinu lengra og skrifað undir samning um samrekstur. Allar aðgerðirnar snúa að því að fólk geti lifað sjálfstæðu lífi sem lengst á eigin heimili. Tengt því markmiði hefur heimaendurhæfing verið aukin og plássum í dagdvölum fjölgað um 100 á þessu tímabili. Þá eru aðrar aðgerðir í verkefninu sem snúa meira að stafrænum lausnum, húsnæðismálum og lýðheilsu. Samhliða þessu er þörf á breyttu lagaumhverfi þjónustunnar, og hluti verkefnanna snýr að því. Frá upphafi var gengið út frá því að samþætting þjónustu kynni að vera mismunandi eftir staðsetningu, og það hefur orðið raunin. Sums staðar eru það hjúkrunarheimilin á staðnum sem taka að sér að samþætta þjónustu í heilu sveitarfélagi, en annars staðar eru það heilbrigðisstofnanir sem halda utan um verkefnin. Í Reykjavík (þar sem samþætting þjónustu hafði hafist áður en Gott að eldast fór af stað) er það svo sveitarfélagið sem sér um skipulag þjónustunnar allrar. Á morgun, þann 4.nóvember verður haldinn árlegur haustfundur Gott að eldast. Þar munu þjónustuveitendur og áhugafólk um þjónustu við eldra fólk koma saman, fræðast hvert af öðru og fara yfir hvernig gengur á hvaða stað. Á fundinum munu einnig Ragnar Þór Ingólfsson félags-og húsnæðismálaráðherra og Alma Möller heilbrigðisráðherra kynna nýja vitundarvakningu. Markmiðið er að vekja fólk til umhugsunar um þær venjur sem við getum tamið okkur snemma til að auka líkurnar á góðum og skemmtilegum efri árum. Það er nefnilega svo margt í okkar höndum. Ef við sem einstaklingar, en líka sem samfélag, hugum að því að efla tengslin hvort við annað, stundum reglulega líkamlega hreyfingu og ræktum hugann, aukum við líkurnar á því að síðustu áratugirnir verði ánægjulegur og gefandi tími, sannkallaður gamansaldur! Höfundar eru Ólafur Þór Gunnarsson, öldrunarlæknir og formaður verkefnisstjórnar Gott að eldast, og Regína Ásvaldsdóttir, verkefnastjóri Gott að eldast Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eldri borgarar Heilbrigðismál Regína Ásvaldsdóttir Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun