Körfubolti

Setti niður fjór­tán þrista: „Aldrei verið mikill skorari“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Chloe Donnell var að spila sinn fyrsta leik með Northwestern State-háskólanum og setti á svið sögulega skotsýningu.
Chloe Donnell var að spila sinn fyrsta leik með Northwestern State-háskólanum og setti á svið sögulega skotsýningu. @chloe_donnell0

Chloe Donnell, nemandi á öðru ári við Northwestern State-háskólanna, setti niður fjórtán þriggja stiga körfur í fyrsta leik tímabilsins og jafnaði þar með NCAA-metið.

Eftir leikinn talaði hún um að vera ekki vön að skora mikið í leikjum sínum enda bætti hún sitt persónulega met í háskólaboltanum um 42 stig sem gerir frammistöðu hennar enn merkilegri.

Donnell, sem skipti yfir í skólann í Louisiana í ár frá South Alabama-háskólanum, skoraði alls 46 stig og hitti úr 14 af 23 þriggja stiga skotum sínum í 120-40 sigri á Ecclesia.

„Ég held að ekkert geti jafnast á við þetta,“ sagði Donnell eftir sigurinn. „Ég hef aldrei verið mikill skorari. Ég legg mitt af mörkum í vörninni og á öðrum sviðum, en ég hitti bara vel. Ég vissi að skotin voru að fara ofan í, en ég áttaði mig ekki á því að þau væru svona mörg fyrr en í fjórða leikhluta,“ sagði Donnell.

Donnell jafnaði met Juicy Landrum hjá Baylor, sem afrekaði þetta árið 2019. Fyrir mánudaginn var hæsta stigaskor Donnell á háskólaferlinum aðeins fjögur stig. Stigin 46 eru þriðja hæsta skor í sögu skólans, en aðeins Pam Hudson (48) og Linda Grayson (47) hafa skorað meira.

„Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt,“ sagði Alan Frey, sem er á sínu fyrsta ári sem þjálfari. „Það þarf ansi margt að ganga upp. Við vorum að setja hindranir fyrir hana og stundum greip hún bara boltann og sagði: „Ég er heit, nú reyni ég.“ Við ætlum að halda okkur við það. Þegar einhver er í ham, þá nýtum við okkur það.“

Donnell skoraði 20 stig í fyrri hálfleik og bætti svo við 17 í þriðja leikhluta, þar á meðal fjórum þriggja stiga körfum. Hún setti niður þriggja stiga körfuna sem jafnaði metið þegar 1:18 voru eftir og kom liði sínu í 120-36.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×