Bíó og sjónvarp

Craig hafi átt hug­myndina að því að drepa hana

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Daniel Craig og Judi Dench léku á móti hvoru öðru í fimm kvikmyndum um James Bond.
Daniel Craig og Judi Dench léku á móti hvoru öðru í fimm kvikmyndum um James Bond. Getty/EPA

Leikkonan Judi Dench segir Bond-leikarann Daniel Craig hafa verið hvatamann að því að MI6-stjórinn M, sem Dench lék um árabil, yrði drepin. Hún hafi í gegnum árin grátbeðið framleiðendurna um að hleypa M út úr skrifstofunni en þegar loksins varð af því var hún drepin. Hún sé þakklát fyrir hlutverkið en hafi þó ekki grátið þegar henni var tilkynnt um örlög persónunnar, líkt og fjölmiðlar héldu fram.

Hin 91 árs gamla Lafði Judi Dench er leiklistargoðsögn og hefur á sínum tæplega sjötíu ára ferli leikið í um sjötíu kvikmyndum, rúmlega fimmtíu sjónvarpsseríum og heimildarmyndum og á sjöunda tug leikrita. Hún greindi nýverið frá því að hún gæti því miður ekki leikið vegna augnsjúkdóms sem gerir henni erfitt fyrir við að greina andlit.

Meðal þekktustu hlutverka Dench eru Elísabet I Bretlandsdrottning í Shakespeare in Love (1998) sem hún hlaut Óskarsverðlaun fyrir, kennarinn Barbara Covett í sálfræðitryllinum Notes on a Scandal (2006) og svo M, yfirmaður leyniþjónustunnar MI6, sem hún lék í átta Bond-myndum, þar af einu sinni í örhlutverki (e. cameo).

Dench fer yfir feril sinn í nýútkomnu æviminningunum Is It to Late to Make a Run for It? og segir þar frá því hvernig kom til að karakterinn M var drepinn í kvikmyndinni Skyfall (2012). Framleiðendurnir Michael G. Wilson og Barbara Broccoli hafi tjáð henni um örlög M á fundi.

„Mér var boðið á veitingastaðinn The Wolseley af Barböru, Michael og Sam [Mendes], ég held að Daniel Craig hafi ekki verið þarna, og þau lýsti fyrir mér framvindunni og sögðu mér að þau ætluðu að kála mér,“ segir Dench í æviminningunum.

Michael G. Wilson og Barbara Broccoli í Hollywood í síðasta mánuði.Getty/Gilbert Flores

„Ætli þetta hafi ekki verið mér sjálfri að kenna. Alveg síðan í Goldeney þegar allt tökuliðið fór til Monte Carlo og Sankti Pétursborgar og fékk bara þrjá daga í Watford hafði ég grátbeðið þau um að hleypa mér frá skrifborðinu,“ segir hún og bætir við: „Þau hleyptu mér loksins frá skrifborðinu... og þau skutu mig.“

„Greinilega var hugmyndin um að drepa mig komin frá Daniel. En fyrst þurfti ég að þola þá niðurlægingu að vera rekin af Ralph Fiennes. Fáviti.“

Daniel Craig lék James Bond í fimm myndum yfir fimmtán ára tímabil.Getty

Dench fann sig sömuleiðis knúna til að leiðrétta ákveðna rangfærslu um málalokin sem breska pressan hélt fram á sínum tíma.

„Það var sagt frá því í blöðunum að ég hefði grátið þegar þau sögðu mér að þau ætluðu að skipta mér út. Auðvitað grét ég ekki. Af hverju ætti ég að gráta eftir tuttugu dýrðleg ár og átta Bond-myndir, sem er, vel á minnst, einni mynd meira en Roger Moore, langlífasti 007 til dagsins í dag, var í.“

Um þessar mundir stendur einmitt yfir val á nýjum James Bond og eru fjórir leikarar sagðir hafa tekið þátt í lokaprufunum í Lundúnum í októberlok: Jack Lowden, Callum Turner, Josh O’Connor og dularfullur ónefndur leikari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.