Kærir leikskóla heyrnarlauss sonar síns og segir hann stundum hafa engan til að eiga samskipti við
Móðir heyrnarlauss drengs treystir sér oft ekki til að senda son sinn á leikskólann þótt skólinn sérhæfi sig í að mæta þörfum heyrnarlausra barna. Stundum hafi drengurinn engan til að eiga samskipti við þar sem oft vanti táknmálstalandi starfsmann á vakt. Hún hefur kært skólann til menntamálaráðuneytisins.