Bandaríkin

Bandaríkin

Höfuðborg: Washington DC. Mannfjöldi: 347,2 milljónir (2025). Flatarmál: 9.833.517 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Á­hrifa­valdur lést í mótorhjólaslysi

Áhrifavaldurinn Liam Fitzgerald lést síðastliðinn föstudag eftir mótorhjólaslys, aðeins 29 ára gamall. Fitzgerald var bandarískur einkaþjálfari og boxari, með rúmlega milljón fylgjendur á Instagram. 

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Skaut sig ó­vart í fótinn

Hollywood-leikstjórinn Michael Mann lenti í því óhappi að skjóta sig í fótinn á skotsvæði í Los Angeles á laugardag. Leikstjórinn var fluttur á sjúkrahús þar sem hlúð var að sárum hans sem reyndust vera minniháttar.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Ríkin sem barist er um: Blá flóð­bylgja eða smáskvetta?

Bandarískir kjósendur ganga að kjörborðinu á morgun, þriðjudag, í kosningum sem bera þess merki að geta markað svokallaða bláa flóðbylgju. Demókratar eru með byr undir báðum vængjum fyrir kosningarnar, ef marka má kannanir, og má meðal annars rekja þennan meðbyr til sögulegra óvinsælda Donalds Trump.

Erlent
Fréttamynd

Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes

Heimildarmyndin Tíminn og vatnið eftir Söru Dosa, byggð á sögu Andra Snæs Magnasonar, er tilnefnd til áhorfendaverðlauna Cinema Eye Honors. Opinni kosningu lýkur þann 2. nóvember og fækkar þá myndunum í tíu sem bítast um verðlaunin. Meðal keppinauta er umtöluð heimildarmynd um svikakvendið Elizabeth Holmes.

Lífið
Fréttamynd

Sam­þykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga

Bandaríkjastjórn hefur samþykkt sölu á fimm hundruð Patriot-eldflaugum til Úlraínumanna en Patriot-varnarkerfið er Úkraínumönnum nauðsynlegt í vörnum sínum gegn rússneskum skotflaugum. 

Erlent
Fréttamynd

„Þú ert ó­geðs­legur, komdu þér í form“

Donald Trump hætti í gær við að fara á tvo kosningafundi í Iowa og Kansas um helgina. Kannanir benda til þess að jafnt sé á milli frambjóðenda í báðum ríkjum og er stjórn Repúblikanaflokksins á öldungadeildinni í óvissu. Þrátt fyrir það sögðu leiðtogar Repúblikanaflokksins að hætt hefði verið við kosningafundina vegna þess að frambjóðendum flokksins vegnaði svo vel þar og að Trump þyrfti því ekki að heimsækja ríkin.

Erlent
Fréttamynd

Sagður hafa átt í sam­skiptum við kín­verskan njósnara

Jensen Huang, forstjóri Nvidia, verðmætasta fyrirtækis heims, er sagður hafa átt í samskiptum við konu sem talin er vera kínverskur njósnari. Konan er sögð hafa stofnað gagnaverafyrirtæki í Singapore sem hún notaði til að smygla tölvuflögum fyrir gervigreind til Kína, auk þess sem hún á að hafa deilt upplýsingum með leyniþjónustum Kína.

Erlent
Fréttamynd

Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks

Plötusnúðurinn Mellí Þorkelsdóttir, eða Mellí 777, hefur hætt við að hita upp fyrir bandarísku tónlistarkonuna Azealiu Banks í Austurbæjarbíói þann 3. desember. Í kjölfar úrslita forsetakosninganna í Brasilíu síðustu helgi ákvað Mellí að taka afstöðu gegn síónískum skoðunum Banks og með Palestínu og hætta við að hita upp fyrir hana.

Tónlist
Fréttamynd

Missti röddina á ögur­stundu

Lyfjafræðingurinn Hannes Þórður Hafstein Þorvaldsson þurfti að draga sig úr keppni á Heimsmeistaramótinu í karóki í Las Vegas í gærkvöldi eftir að hann missti röddina vegna veikinda. Hann segir verst að hafa ekki náð að syngja íslenska þýðingu sína á „My Way“ eftir Frank Sinatra.

Lífið
Fréttamynd

Barbara Barrie lést með að­stoð lækna

Leikkonan Barbara Barrie lést í gær í New York borg með aðstoð lækna. Barrie var mikill stuðningsmaður dánaraðstoðar en hún var orðin 95 ára gömul og hafði glímt við ólæknandi krabbamein í tólf ár. 

Lífið
Fréttamynd

Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið

Eitt þekktasta, og að margra mati mikilvægasta, tímarit sem birti og skrásetti fréttaljósmyndir 20. aldarinnar, snýr nú aftur en það kom fyrst inn á sjónarsviðið fyrir níutíu árum. Útgáfu blaðsins var hætt upp úr 1970 þegar sjónvarpið ruddi sér rúms en það var svo endurvakið átta árum síðar og gefið út einu sinni í mánuði þar til um aldamótin.

Menning
Fréttamynd

Stýrivextir ó­breyttir og stutt í kosningar

Seðlabanki Bandaríkjanna ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum og standa þeir enn í 3,75-4 prósentum. Líklegt þykir að ákvörðunin eigi eftir að reita Bandaríkjaforseta til reiði enda stutt í þingkosningar í landinu.

Erlent
Fréttamynd

Gefa út öryggisviðvörun vegna mót­mæla

Bandaríska sendiráðið á Íslandi hefur gefið út sérstaka öryggisviðvörun vegna fyrirhugaðra mótmæla vinafélags Íslands og Kúbu fyrir utan húsnæði þeirra. Sendiráðinu verður lokað snemma.

Innlent
Fréttamynd

Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt ó­leyst morð

Yfirvöld í Utah í Bandaríkjunum hafa komist að því, með því að nota háþróaða erfðatækni, að hinn alræmdi raðmorðingi Ted Bundy var sá sem myrti hina sautján ára Melissa Ann Smith, dóttur lögreglustjóra. Smith fannst látin 27. október 1974 og bar merki um nauðgun og pyntingar. 52 ár eru síðan lík hennar fannst af veiðimönnum.

Erlent
Fréttamynd

Tekur við Bolsonaro opnum örmum

Brasilíski öldungadeildarþingmaðurinn Flávio Bolsonaro er sagður hafa flúið land til Bandaríkjanna í kjölfar þess að neita að viðurkenna ósigur sinn í forsetakosningum. Bandaríkjaforseti ætlar að veita Bolsonoro og fjölskyldu hans vegabréfsáritanir er brasilísk stjórnvöld hafa fellt vegabréf hans úr gildi, segir í umfjöllun bandarískra miðla.

Erlent
Fréttamynd

Sjá fram á aukin inn­grip seðla­banka og mikla hættu fyrir evru­sam­starfið

Sjóðstjóri Visku Macro, sem hefur einkum veðjað á fjárfestingar í málmum, hrávörum og innviðum tengdum gervigreind og orkuframleiðslu, telur að vaxandi skuldavandi ríkja muni knýja seðlabanka til aukinna inngripa á skuldabréfamörkuðum og varar við því að evrusamstarfið geti komist í verulega hættu. Erfitt verður að viðhalda háum raunvöxtum í skuldsettum hagkerfum án þess að það setji þrýsting á ríkisfjármálin og fjármálakerifð, að mati sjóðastýringarfélagsins, og því sé líklegt að ákall um aðgerðir fari vaxandi eftir því sem þau áhrif koma skýrar fram.

Innherji
Fréttamynd

Noah Wyle sá kyn­þokka­fyllsti í heimi

Bandaríska tímaritið People hefur krýnt leikarann Noah Wyle sem kynþokkafyllsta mann í heimi. Leikarinn sló fyrst í gegn sem Dr. John Carter í læknaþáttunum ER og hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga í læknaþáttunum The Pitt á HBO MAX.

Lífið
Fréttamynd

Á­kæra Comey enn eina ferðina

James Comey, fyrrverandi yfirmaður Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI), hefur verið ákærður. Að þessu sinni er hann sakaður um að hafa lekið leynilegum upplýsingum fyrir rúmum áratug en þetta er í þriðja sinn sem hann er ákærður síðan Donald Trump varð aftur forseti fyrir tæpum tveimur árum.

Erlent
Fréttamynd

Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum

Donald Trump Bandaríkjaforseti dró í dag úrslit forsetakosninganna í Brasilíu í efa og sagði þær líta út fyrir að hafa verið sviknar. Hann lagði ekki fram nein gögn máli sínu til stuðnings.

Erlent