Bandaríkin

Bandaríkin

Höfuðborg: Washington DC. Mannfjöldi: 347,2 milljónir (2025). Flatarmál: 9.833.517 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Fyrstu við­ræður Ísraela og Líbana

Fulltrúar Ísraels og Líbanon áttu í sínum fyrstu diplómatísku viðræðum í meira en þrjá áratugi í dag. Markmið fundarins var að binda enda á átökin á milli Ísraels og Hezbollah-samtakanna.

Erlent
Fréttamynd

Bryn­dís Líf orðin móðir

Áhrifavaldurinn og fegurðardrottningin Bryndís Líf Eiríksdóttir er orðin móðir. Hún eignaðist frumburðinn 10. apríl með kærasta sínum Stefáni Jónssyni en þau eru búsett í San Diego borg í Kaliforníu.

Lífið
Fréttamynd

Segist ekki munu biðja páfa af­sökunar

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir ekki koma til greina að biðja Leó páfa afsökunar á því að hafa gagnrýnt hann harðlega fyrir afstöðu hans til stríðsins í Íran.

Erlent
Fréttamynd

Hezbollah mót­mælir við­ræðum og Íranir krefjast skaða­bóta

Forsvarsmenn Hezbollah segjast ekki munu beygja sig undir mögulegt samkomulag milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael. Sendiherrar ríkjanna munu funda í Washington í dag. Naim Kassem, leiðtogi Hezbollah, hefur hvatt ráðamenn í Líbanon til að ganga ekki til viðræðna við Ísrael.

Erlent
Fréttamynd

Mót­mæla sam­runa Paramount og Warner Bros

Emma Thompson, Pedro Pascal, Jane Fonda og Joaquin Phoenix eru meðal þúsund starfsmanna innan Hollywood sem undirritað hafa opið bréf til að mótmæla samruna Paramount og Warner Bros. Discovery.

Erlent
Fréttamynd

Öllum írönskum skipum út­rýmt nálgist þau her­kví

Boðuð herkví Bandaríkjaforseta á ströndum Írans tók gildi nú síðdegis og samkvæmt forsetanum hafa skip þegar fengið að sigla um Hormússund. Hann hótar því að öllum írönskum skipum sem nálgist skip bandaríska sjóhersins verði útrýmt.

Erlent
Fréttamynd

Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump

Leó fjórtándi páfi segist ekki óttast ríkisstjórn Donalds Trump eftir að bandaríski forsetinn hellti úr skálum reiði sinnar yfir hann á samfélagsmiði í nótt. Hann ætli að halda áfram að tala máli friðar.

Erlent
Fréttamynd

Britney farin í með­ferð

Britney Spears hefur ákveðið að fara í meðferð eftir að hafa verið handtekin vegna gruns um að keyra undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna í síðasta mánuði.

Lífið
Fréttamynd

Lauf­ey Lín sló í gegn á Coachella

Stórstjarnan Laufey Lín tróð í gær upp á einni vinsælustu tónlistarhátíð í heimi, Coachella sem haldin er í eyðimörk við borgina Palm Desert í Coachella Valley í Kaliforníu. 

Tónlist
Fréttamynd

Trump hjólar í páfa

Donald Trump Bandaríkjaforseti fór mikinn gegn Leó páfa á samfélagsmiðlum í nótt og í samtali við fréttamenn. Hann sagðist ekki aðdáandi páfa, sakaði hann um að ganga erinda vinstri manna og sagðist ekki vilja páfa sem þætti það í lagi að Íranir eignuðust kjarnavopn.

Erlent
Fréttamynd

Olíu­verð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps

Alþjóðlegt olíuverð hefur hækkað um 7 prósent frá því að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist myndu láta loka fyrir umferð um Hormússund við Persaflóa. Blátt bann á að taka gildi klukkan 15 á morgun, mánudag, en óskýrt er hvort skipum sem tengjast ekki Íran verði hleypt í gegn þar sem misræmis gætir í málflutningi Trump og hersins í þeim efnum.

Erlent
Fréttamynd

Fortíðarþrá ein­kenndi endur­komuna á stóra sviðið

Tónlistarmaðurinn og Íslandsvinurinn Justin Bieber sneri aftur á stóra sviðið í gærkvöldi. Hann steig þá á stokk á bandarísku tónlistarhátíðinni Coachella sem eitt af aðalnúmerum hennar. Hinn 32 ára gamli söngvari varði stórum hluta tónleikanna sitjandi fyrir framan fartölvu og syngjandi með YouTube-tónlistarmyndböndum við eldri slagara sína, eins og „Baby“ og „Never Say Never“.

Lífið
Fréttamynd

Friðar­við­ræður runnu út í sandinn

JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, hefur yfirgefið Islamabad, höfuðborg Pakistan, eftir að friðarviðræðum við Íran lauk án samkomulags. Hann sagðist hafa lagt fram „besta og endanlegasta tilboð“ sem hann væri fær um fyrir hönd Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

Aug­liti til aug­litis í fyrsta sinn frá ís­lömsku byltingunni

J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna fer fyrir samninganefnd sem fundar nú með Abbas Araghchi utanríkisráðherra Írans og fleiri háttsettum embættismönnum í Islamabad í Pakistan. Um er að ræða fyrsta fund bandarískra og íranskra stjórnvalda augliti til auglitis frá íslömsku byltingunni 1979.

Erlent
Fréttamynd

„Arc de Trump“ rísi í Washington

Ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta birti teikningar af sigurboga sem til stendur að reisa við Arlington-kirkjugarðinn í Washington. Boginn hefur víða verið kallaður „Arc de Trump“.

Erlent
Fréttamynd

Full­komin lending eftir sögu­lega ferð

Geimfarar Artemis II eru komnir heilir á húfi aftur til jarðar eftir „fullkomna lendingu“ og hafa þar með lokið sinni sögulegu 10 daga geimferð. Reid Wiseman, Victor Glover, Christina Koch og Jermey Hansen lögðu af stað þann 1. apríl út í geim og er þetta í fyrsta skipti frá árinu 1972 sem menn eru sendir til tunglsins.

Erlent
Fréttamynd

Máttu fella úr gildi skráningu Stripa­dvis­or

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði nýlega Hugverkastofuna af kröfum Stripadvisor en fyrirtækið krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður áfrýjunarnefndar hugverkaréttinda á sviði iðnaðar í máli nr. 3/2022, kveðinn upp 20. febrúar 2025, þar sem staðfest var ákvörðun Hugverkastofunnar um að fella úr gildi skráningu merkisins Stripadvisor.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt út­lit í könnunum

Kálið er ekki endilega sopið þótt í ausuna sé komið hjá ungversku stjórnarandstöðunni þrátt fyrir að hún mælist með töluvert forskot á flokk Viktors Orbán forsætisráðherra fyrir kosningar sem fara fram á sunnudag. Stórveldi fylgjast grannt með úrslitunum en Orbán er helsti bandamaður bæði Rússa og Bandaríkjamanna í Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Um­deildi braut­ryðjandinn Afrika Bambaataa allur

Afrika Bambaataa, plötusnúður, rappari og einn af guðfeðrum hipp-hopps, er látinn, 68 ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein. Bambaataa átti stóran þátt í að móta hipphopp á níunda áratugnum og vann að útbreiðslu þess með stofnun hópsins Universal Zulu Nation. Síðustu tíu ár ævinnar var hann borinn þungum sökum um barnaníð og mansal sem hann neitaði staðfast. 

Lífið
Fréttamynd

Hótaði Rutte hefndarað­gerðum í reiði­lestri í Hvíta húsinu

Fundur Marks Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu í vikunni er sagður hafa einkennst af fúkyrðaflaumi forsetans. Hann á að hafa hótað NATO-ríkjum hefndaraðgerðum vegna þess að þau hafa ekki viljað taka þátt í aðgerðum Bandaríkjamanna í Íran.

Erlent
Fréttamynd

Þver­tekur fyrir nokkur tengsl

Líkt og fjölmargir aðrir hefur Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, verið bendluð við hin svokölluðu Epstein-skjöl. Hún tók sig til í dag og boðaði alla fréttamenn Hvíta hússins á fund en þar tilkynnti forsetafrúin að hvers kyns lygum sem tengdu hana við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein „yrði að linna í dag“.

Erlent
Fréttamynd

Fundaði með Trump eftir harða gagn­rýni á NATO

Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins sótti fund með Bandaríkjaforseta til að tala gegn því að Bandaríkin gangi úr bandalaginu. Forsetinn hefur gagnrýnt bandalagið ítrekað, sem hafi snúið baki við bandarísku þjóðinni, og íhugar að ganga úr því.

Erlent