

Eldgos á Reykjanesskaga
Hrina eldgosa á Reykjanesskaga hófst í mars 2021 í Geldingadölum. Það tíunda varð norðan Grindavíkur í nóvember 2024.

„Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“
Skjálftavirkni við Sundhnúksgígaröðina fer vaxandi og hefur verið töluverð síðasta sólarhringinn. Fagstjóri á Veðurstofu Íslands mælir eindregið gegn því að fólk gisti í húsum í norðurhluta bæjarins, líkt og einhverjir hafa verið að gera.

Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík
Hafsteinn Sævarsson hafði ekki búið lengi í Grindavík þegar hörmungarnar dundu yfir í nóvember í fyrra. Hann og konan hans keyptu sér eign þar í júlí í fyrra og ætluðu að búa sér til framtíðarheimili í Grindavík. Í dag búa þau í Þorlákshöfn en greiða enn af húsnæði í Grindavík sem þau geta ekki selt Þórkötlu nema með milljónatapi.

Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru
„Það er bara svo sem sama, mest lítið að frétta,” segir vakthafandi náttúrrvársérfræðingur sem líkt og fleiri á von á því að gos geti hafist hvað úr hverju á Reykjanesskaga.

Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum mælir eindregið gegn því að fólk dvelji í Grindavík nú þegar búist er við að gos hefjist á hverri stundu. Óásættanleg hætta er talin fyrir hendi í hluta bæjarins en dvalið hefur verið í um 24 húsum síðustu nætur og dæmi um að barnafólk sé í Grindavík.

„Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“
Kvikumagnið undir Svartsengi er orðið meira en fyrir síðasta eldgos og gögn benda til þess að þrýstingur sé að aukast. Töluvert hefur verið um skjálfta á svæðinu í dag og telja þeir nú hátt í hundrað á sólarhring. Náttúruvársérfræðingur segir að gos gæti í raun byrjað hvenær sem er en líka teygst fram í september.

Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram
Náttúruvársérfræðingur segir litlar líkur á að gos hefjist innan bæjarmarka Grindavíkur. Starfsmenn Veðurstofunnar eru nú í biðstöðu og bíða eftir kvikuhlaupi eða eldgosi sem gæti hafist hvenær sem er.

Stærra eldgos væntanlegt
Búast má við stærra eldgosi á Reykjanesi á næstu dögum miðað við kvikusöfnun, að sögn eldfjallafræðings. Mjög ólíklegt er að kvika komi upp innan bæjarmarka.

Fyrrum húsnæðiseigendur í Grindavík fá að leigja hús
Grindvíkingum sem hafa selt hús sín fasteignafélaginu Þórkötlu stendur til boða að gera leigusamning um húsnæðið eða svokallaða hollvinasamninga. Nú hefur verið gengið frá kaupum á fasteignum 93 prósent þeirra sem sóttu um þau.

Titringurinn á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram að magnast
Um þrjú hundruð smáskjálftar hafa mælst á Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesi frá því á mánudag og heldur skjálftavirknin áfram að aukast. Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi er sögð svipuð og síðustu daga.

Eðlilegt að setja hálfan milljarð í framkvæmdir í Grindavík
Nefndarmaður í framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavík segir eðlilegt að verja hundruðum milljóna til að verja innviði í bænum þrátt fyrir yfirvofandi eldgos. Það sé eðlilegt framhald af fyrri aðgerðum á borð við uppsetningu varnargarða.

Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti
Slökkviliðsmenn æfðu sig í að kæla hraun með nýjum kröftugum dælum frá Bretlandi við Svartsengi í dag. Vatni er meðal annars dælt úr Bláa lóninu á margföldum krafti á við dælur slökkviliðsins.

Setja 470 milljónir í viðgerð í Grindavík
Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ, Grindavíkurnefnd hefur kynnt aðgerðaáætlun vegna viðgerða á innviðum innan þéttbýlis Grindavíkur. Aðgerðirnar miða að því að tryggja virkni og öryggi innviða, þar á meðal á gatnakerfi, lögnum og opnum svæðum.

Enn rólegt á Reykjanesskaga þótt gosið gæti á hverri stundu
Óbreytt staða er enn á Reykjanesskaga þar sem áfram eru taldar auknar líkur á kvikuhlaupi eða eldgosi á næstu dögum. Skjálftavirkni fer áfram rólega vaxandi og mældist á sjötta tug jarðskjálfta í nótt.

Skjálftavirkni meiri en landris hægara
Skjálftavirkni á Reykjanesi hefur aukist en hægt á landrisi. Enn eru taldar líkur á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á svæðinu á næstu dögum.

Allar vefmyndavélarnar á einum stað
Eldgos hófst á Sundhnúksgígaröðinni klukkan 21:26 fimmtudaginn 22. ágúst, það níunda i röð gosa á Reykjanesskaga undanfarin ár.

Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum
Auknar líkur eru á kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á Reykjanesskaga á næstu dögum, að mati náttúruvásérfræðinga hjá Veðurstofunni. Fjöldi daglegra skjálfta á Sundhnúksgígaröðinni fer hægt vaxandi.

Íbúum með skráð lögheimili í Grindavík fækkað um tæpan þriðjung
Íbúum með skráð lögheimili í Grindavík fækkaði um 1.172 frá því í nóvember í fyrra þar til í lok júnímánaðar, þegar íbúar bæjarins töldu 2.570 manns.

Þurfi að fylgja betur eftir reglum um byggð við sprungur
Jarðfræðingar við Háskóla Íslands sem stóðu að rannsókn um sigdalinn í Grindavík segja tímabært að fylgja eftir reglum um byggingar við misgengi og sprungur og segja mikilvægt að kortleggja þannig svæði á landsvísu.

Segist ekki geta ábyrgst öryggi þeirra sem dvelja næturlangt í Grindavík
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur sent tilkynningu til fjölmiðla þar sem hann ítrekar meðal annars að Grindavík sé ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik.

Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá
Klukkan 21:11 í kvöld varð skjálfti á Reykjanestá að stærð 3. Nokkrir minni skjálftar hafa fylgt í kjölfarið.

„Munum hafa nægan tíma til að bregðast við ef við þurfum“
Prófessor í eldfjallafræði segir mestar líkur á að næsta eldgos á Reykjanesskaga verði á sama stað og síðustu gos á svæðinu. Ólíklega muni gjósa inni í Grindavík og því sé skammur viðbragðstími ekki endilega áhyggjuefni.

Gæti gosið á næstu dögum
Spenna heldur áfram að aukast á Reykjanesi en nú hafa rúmlega 16 milljón rúmmetrar af kviku safnast undir Svartsengi. Veðurstofa Íslands varar við því að kvikuhlaup án eldgoss nægi til að skapa hættu og valda tjóni í Grindavík en því fylgi jarðskjálftar og sprungur.

Ný líkön sýna umfang hraunsins
Fyrirtækið Loftmyndir ehf. hefur mælt rúmmál og flatarmál hraunsins við Grindavík og birti í gær myndir á síðu sinni á Facebook þar sem hægt er að sjá flæði og magn hraunsins.

Ekki á því að yfirgefa Grindavík endanlega
Þrátt fyrir að nýtt hættumat bendi til að miklar líkur séu á að hraun komi upp innan Grindavíkur á næstu vikum verður ráðist í framkvæmdir innan bæjarmarka eftir Verslunarmannahelgi. Brottfluttir íbúar eru bjartsýnir á að komast aftur heim.

Fyrirvari fyrir næsta gos gæti verið nokkrar mínútur
Hættustig almannavarna var virkjað í dag vegna yfirvofandi eldoss í grennd við Grindavík. Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, segir það áhyggjuefni að viðvörunartími styttist með hverju gosinu sem verður en telur þó öruggt að fólk sé í bænum að degi til.

Loftefni hrundi í húsi sem fæst ekki uppkeypt
Halla Kristín Sveinsdóttir Grindvíkingur rak upp stór augu þegar hún uppgötvaði að loftefni hefði hrunið til jarðar í aðalrými húss í hennar eigu við Borgarhraun í dag. Vegna þess að húsið er í eigu félags hennar fæst það ekki uppkeypt af Þórkötlu og Halla situr uppi með skuldirnar.

Lýsa yfir hættustigi
Hættustigi verður lýst yfir vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Hættumat Veðurstofu Íslands verður uppfært í gær en kvika heldur áfram að safnast undir Svartsengi og búist er við kvikuhlaupi eða eldgosi á næstunni.

„Auðvitað mjög margir sem eru óttaslegnir“
Enn er stefnt að umfangsmiklum framkvæmdum í Grindavík þrátt fyrir uppfært hættumat Veðurstofunnar sem segir mikla hættu á eldgosi innan bæjarmarkanna. Þetta segir formaður Grindavíkurnefndar en kostnaður hleypur á hundruðum milljóna.

Hraunflæði það hratt að ekki yrði hlaupið undan því
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir að komi til goss á byggðu svæði geti hraunflæðið verið það hratt að ekki sé hægt að hlaupa undan því. Þó telji hann mjög ólíklegt að gjósi innan bæjarmarka Grindavíkur.

Ekki æskilegt að hafa fólk í bænum
Veðurstofa Íslands hefur uppfært hættumat sitt en þar kemur fram að mikil hætta sé á gosopnun og hraunflæði innan Grindavíkur. Að mati Páls Einarssonar, jarðeðlisfræðings, er ekki æskilegt að halda til í bænum og bendir hann á að erfiðara sé að meta hvenær gos hefst með hverju gosinu sem verður.