Fundu veg nær gosinu fyrir tilviljun Æ fleiri hafa undanfarið reynt að komast að eldgosinu við Sundhnjúk og bera það augum undanfarið þrátt fyrir að svæðið sé lokað. Bandarískir ferðamenn sem fréttastofa ræddi við voru himinlifandi með útsýnið. Innlent 14. apríl 2024 21:40
Hafa tapað milljörðum vegna endurtekinna lokana Forsvarsmenn Bláa lónsins áætla að beinn kostnaður vegna lokana sökum jarðhræringa sé um fimm milljarðar króna. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem rætt var við Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra sölu, rekstrar og þjónustu Bláa lónsins. Viðskipti innlent 14. apríl 2024 20:45
Ekki merki um að kvika sé á ferðinni Skjálftavirkni sem mælst hefur í dag norðvestur af Grindavík er sambærileg virkni sem mældist á svæðinu um miðjan mars. Skjálftavirknin er því ekki merki um einhverjar breytingar í virkni í eldgosinu á Reykjanesi, né að kvika sé á ferðinni á svæðinu. Innlent 14. apríl 2024 18:38
Smáskjálftahrina á Reykjanesi Fjölmargir smáir jarðskjálftar hafa greinst á Reykjanesi í dag. Fáir þeirra hafa náði yfir eitt stig að styrk en skjálftavirknin hefur ekki verið meiri frá því eldgosið við Sundhnjúka hófst þann 16. mars. Innlent 14. apríl 2024 16:34
Loka Bláa lóninu vegna gasmengunar Vegna mengunar frá eldgosinu í Sundnhjúkagígaröðinni á Reykjanesskaga þurfti að loka öllum starfsstöðvum Bláa lónsins í morgun. Opnað verður aftur klukkan 14. Innlent 14. apríl 2024 11:15
Skjálfti á Reykjanesi fannst á höfuðborgarsvæðinu Jarðskjálfti varð á Reykjanesi um klukkan tíu í morgun og fannst hann á höfuðborgarsvæðinu. Skálftinn var 3,3 stig, samkvæmt upplýsingum frá Náttúruvárvakt Veðurstofu íslands. Innlent 13. apríl 2024 10:06
Alls 42 andmælt ástandsskoðunum NTÍ í Grindavík Alls hafa 42 sent inn andmæli vegna matsgerðar Náttúruhamfaratryggingar Íslands (NTÍ) vegna tjónamála í kjölfar náttúruhamfaranna í Grindavík. Alls hafa borist 495 tilkynningar til NTÍ þannig um er að ræða um 8,5 prósent tilkynninga. Innlent 13. apríl 2024 08:59
Horfa til þess að leigja húsin sem þau selja í Grindavík Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segist vita til þess að íbúar bæjarins horfi til þess að geta jafnvel leigt húsin sín aftur þrátt fyrir að þeir selji þau ríkinu. Gengið var frá fyrstu kaupsamningunum um íbúðarhúsnæði í Grindavík í dag. Innlent 12. apríl 2024 22:29
Almannavarnir greiða umframorkunotkun í Grindavík Almannavarnir hafa ákveðið að hjálpa fasteignaeigendum í Grindavík við að standa straum af kostnaði vegna hærri rafmagns- og hitaveitureikninga á meðan aðgerðir til að verja hús fyrir frostskemmdum í kjölfar náttúruhamfaranna stóðu yfir. Innlent 12. apríl 2024 16:49
Fyrstu kaup Þórkötlu í Grindavík gengin í gegn Fasteignafélagið Þórkatla gekk í dag frá fyrstu kaupsamningunum um kaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík. Viðkomandi fasteignareigendur munu fá greitt út 95 prósent af kaupverði eigna þeirra í næstu viku. Innlent 12. apríl 2024 15:15
Gosið helst stöðugt og landris heldur áfram Eldgos sem hófst í Sundhnúksgígsröðinni þann 16. mars síðastliðinn helst enn stöðugt og hefur landris í Svartsengi haldið áfram á svipuðum hraða síðan í byrjun apríl. Innlent 12. apríl 2024 14:30
Skilur mikla örvæntingu og reiði Grindvíkinga Reiði og örvænting fer vaxandi meðal Grindvíkinga vegna óvissuástands í húsnæðismálum og skorts á upplýsingagjöf vegna uppkaupa. Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segist hafa verulegar áhyggjur af andlegri líðan bæjarbúa. Innlent 12. apríl 2024 13:00
Opna Grindavíkurveg fyrir íbúa, starfsfólk og viðbragðsaðila Vegagerðin opnaði Grindavíkurveg frá Reykjanesbraut eða Grindavík þeim sem eiga erindi þar í dag. Aðeins Grindvíkingar, viðbragðsaðilar og starfsfólk fyrirtækja í bænum og við Svartsengi mega aka veginn. Innlent 11. apríl 2024 21:45
Upplifir stjórnleysi í málefnum Grindvíkinga Um tvö hundruð manns með lögheimili í Grindavík búa nú í Vogum án lögbundinna réttinda og þjónustu. Bæjarstjóri Voga segir innviði bæjarins að þolmörkum komna og stutt í að neyðst verði til að grípa til aðgerða sem enginn vilji grípa til. Innlent 11. apríl 2024 13:00
„Það má ekki missa kjarkinn“ Átta manns fengu heiðursviðurkenningu frá bæjarstjórn Grindavíkur í dag í tilefni þess að fimmtíu ár er frá því bærinn fékk kaupstaðarréttindi. Þeirra á meðal er Alli á Eyri sem hvetur Grindvíkinga til að missa ekki kjarkinn. Lífið 10. apríl 2024 20:01
Afmælishátíð í skugga hamfara Alltof margar fjölskyldur í Grindavík eru enn á hrakhólum. Þetta var meðal þess sem kom fram á afmælishátíð bæjarins sem var haldin í skugga hamfara. Forseti Íslands hvetur fólk til að gefast ekki upp og sýna áfram kjark. Innlent 10. apríl 2024 19:01
Byggja þurfi upp örugga framtíð fyrir börnin í Grindavík Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands segir brýnt að leita allra leiða til að tryggja að börnin í Grindavík geti snúið þangað aftur og litið glaðan dag. Grindvíkingar kunni vel að meta samhuginn sem þjóðin hefur sýnt undanfarna mánuði. Innlent 10. apríl 2024 13:49
Vilja flytja heilt raðhús úr Grindavík í Garðinn Verktakafyrirtækið Kimar ehf. hefur óskað eftir lóð í Garði fyrir nýtt fimm íbúða einingaraðhús, sem yrði flutt af grunni úr Grindavík á nýja lóð. Innlent 9. apríl 2024 16:53
Hraunbreiðan orðin rúmir sex ferkílómetrar Þrátt fyrir að dregið hafi úr krafti eldgossins eru ekki merki um að heildar kvikuflæði frá dýpi sé að minnka. Það er samanlagt magn sem safnast saman undir Svartsengi auk þeirra kviku sem flæðir upp á yfirborð í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 9. apríl 2024 15:46
Byrja að kaupa fasteignir Grindvíkinga í vikunni Fasteignafélagið Þórkatlar byrjar að kaupa íbúðarhúsnæði í Grindavík í þessari viku. Stefnt er að því að klára afgreiðslu þorra á sjöunda hundrað umsókna sem hafa borist í þessum mánuði. Innlent 9. apríl 2024 14:01
Lítil gasmengun mælst um helgina Eldgosið við Sundhnúksgígaröðina mallar áfram og er nú einn gígur virkur. Hraunflæði er nú aftur farið að renna að megninu til suðurs eftir að það flæddi til norðurs um tíma í gær. Lítil gasmengun hefur mælst um helgina. Innlent 8. apríl 2024 16:27
Gígbarmurinn brostinn og hraun rennur í norðurátt Barmur eina gígsins sem enn gýs úr milli Hagafells og Stóra-Skógfells virðist hafa brostið norðanmegin í kvöld. Innlent 7. apríl 2024 23:42
Hraunfossinn í nærmynd Hraunfoss rennur nú yfir gígbarminn í eina gígnum sem enn lifir í eldgosinu við Sundhnúka. Björn Steinbekk flaug dróna yfir gosið fyrr í dag og fangaði sjónarspilið í nærmynd. Innlent 7. apríl 2024 22:44
Hraun flæðir úr gígnum við Sundhnúka Mikið yfirfall er nú úr gígnum við Sundhnúka og tilkomumikið sjónarspil sést á vefmyndavélum. Innlent 7. apríl 2024 16:27
„Aldrei teflt í tvísýnu með öryggi gesta eða starfsfólks“ Fyrstu gestirnir í þrjár vikur dýfðu tánum í Bláa lónið klukkan tólf á hádegi. Framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu fagnar opnuninni og segir fyllsta öryggis gætt. Innlent 6. apríl 2024 13:23
Tímaspursmál hvenær hraun fari að renna til norðurs Aðeins gýs í einum gíg við Sundhnúka. Fjarað hefur út í syðri og smærri gígnum. Sá sem enn gýs í hækkar jafnt og þétt og gnæfir um 25 metra yfir hraunbreiðunni. Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands segir það vera tímaspursmál hvenær hraun fer að renna til norðurs. Innlent 6. apríl 2024 10:46
Opna Bláa lónið þrátt fyrir hættu á gasmengun Bláa lónið opnar dyr sínar á ný á hádegi á morgun. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir ákvörðunin alfarið forsvarsmanna fyrirtækisins. Áfram sé hætta á gasmengun á svæðinu. Innlent 5. apríl 2024 14:50
„Takk Þórkatla fyrir ekki neitt“ Soffía Snædís Sveinsdóttir er fyrrverandi íbúi í Grindavík er ósátt hvernig gengur að gera upp við eigendur húsnæðis í Grindavík - hún vandar Þórkötlu ekki kveðjurnar. Innlent 5. apríl 2024 10:32
Þórkatla heldur Grindvíkingum í heljargreipum Í dag eru fjórar vikur liðnar frá því að opnað var fyrir umsóknir um uppkaup eigna Grindvíkinga. Frumvarpið er auðvitað ekki gallalaust og margir sitja eftir með sárt ennið og tapa öllu sínu. Enginn græðir á þessari sölu og fæstir fá til baka þær fjárfestingar sem settar hafa verið í heimilin. Skoðun 5. apríl 2024 09:30
Tveir gígar enn virkir Tveir gígar eru enn virkir í eldgosinu á Reykjanesskaga og er sá nyrðri stærri. Áfram mælast gildi brennisteinsdíoxíðs í kringum eldgosið og í byggð á Reykjanesskaga há. Innlent 4. apríl 2024 16:52
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent