Hætta að meta tjón í Grindavík í bili Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur gert hlé á tjónamati í Grindavík í ljósi atburða vikunnar. Stofnunin hefur unnið að mati á tjóni á fasteignum og innviðum í bænum frá því náttúruhamfarirnar hófust í nóvember síðastliðnum. Innlent 13. janúar 2024 10:31
Hætta leitinni að manninum Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum segir að leitin að manninum sem féll ofan í sprungu í Grindavík sé hætt vegna hve erfiðar aðstæður eru. Innlent 12. janúar 2024 19:14
Breytt hættumatskort vegna sprungna í Grindavík Veðurstofa Íslands hefur uppfært hættumatskort sitt vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Það er að mestu óbreytt en hefur þó verið breytt að hluta vegna sprungna undir Grindavík. Innlent 12. janúar 2024 16:46
Enn líkur á eldgosi og von á nýju hættumatskorti í dag Áfram mælist landris við Svartsengi vegna kvikusöfnunar sem getur leitt til eldgoss. Enn er líklegast að ef til eldgoss komi gjósi á svipuðum slóðum og í desember á síðasta ári. Eldgos getur hafist með litlum fyrirvara. Innlent 12. janúar 2024 13:51
Engir skjálftar í Grímsvötnum frá miðnætti Frá miðnætti hafa engir jarðskjálftar mælst í Grímsvötnum. Náttúrvársérfræðingur hjá Veðustofu telur líklegt að jökulhlaupið nái hámarki á sunnudag. Innlent 12. janúar 2024 07:22
Hrun í miðri sprungu dró manninn með sér Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir mál mannsins sem talinn er hafa fallið ofan í við sprunguinnfyllingu vera bakslag fyrir Grindvíkinga. Þetta segir hann í viðtali við Stöð 2 í dag. Innlent 11. janúar 2024 18:41
„Við erum bæði sorgmædd og slegin“ Bæjarstjóri Grindavíkur segir bæjarbúa bæði vera sorgmædda og slegna eftir atburði gærdagsins og yfirstandandi leit að manni, sem talinn er hafa fallið ofan í sprungu í bænum. Hugur allra Grindvíkinga sé hjá aðstandendum mannsins. Innlent 11. janúar 2024 11:41
Mikið vatn í djúpri sprungunni „Leit stendur yfir, maðurinn er ekki fundinn,“ sagði Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, í morgun um leitina að manninum sem er talinn hafa fallið ofan í sprungu í Grindavík í gær. Mikið vatn er í sprungunni að hans sögn. Innlent 11. janúar 2024 06:59
Fresta íbúafundi vegna leitarinnar Grindavíkurbær hefur ákveðið að fresta íbúafundi sem var á dagskrá á morgun. Ástæðan er sögð „hörmulegt slys“ sem átti sér stað í dag. Innlent 10. janúar 2024 16:13
Lægðin hefur áhrif á mælana Líkur á eldgosi á Reykjanesskaga á næstu dögum aukast stöðugt, að mati jarðeðlisfræðings. Ekki sé sjálfgefið að atburðarásin verði með sama hætti og síðast. Veður hefur áhrif á mæla á svæðinu þessa dagana og náið er fylgst með vefmyndavélum. Innlent 10. janúar 2024 14:52
Leita manns sem talinn er hafa fallið í sprungu í Grindavík Viðbragðsaðilar á Suðurnesjum leita nú manns sem talinn er að hafi fallið ofan í sprungu í Grindavík. Lögreglustjóri segir manninn hafa verið að störfum við að fylla í sprunguna. Enginn sjónarvottur hafi verið að atvikinu en grunur þó vaknað um slysið. Innlent 10. janúar 2024 11:32
Hvað með Grindvíkinga? Ráðherrarnir í ríkisstjórn Íslands verða ekki sakaðir um að leiðast það að þræta og á sama tíma eru fjölmiðlar í fullri vinnu við að fjalla um sandkassaleik þeirra. Nú bíður hluti ráðherranna eftir því (og vonar) að stjórnarandstaðan leggi fram vantrauststillögu á matvælaráðherra. Svona rær ríkisstjórnin lífróður sinn. Skoðun 10. janúar 2024 07:02
Blendnar tilfinningar fylgja opnun fiskvinnslunnar í Grindavík Hjól atvinnulífsins eru smám saman farin að snúast í Grindavík, þrátt fyrir yfirvofandi hættu á eldgosi nálægt bæjarmörkunum. Framkvæmdastjóri fiskvinnslufyrirtækis, sem opnaði í dag í fyrsta sinn frá rýmingu, segir tilfinningarnar blendnar. Innlent 9. janúar 2024 21:00
Búin að fá allar viðvaranir sem munu koma Víðir Reynisson, sviðstjóri Almannavarna, segir fregnir af því að rúmmál kvikunnar á Reykjanesskaga sé orðið svipað og fyrir síðasta gos, breyta stöðunni. Innlent 9. janúar 2024 19:15
Fólk geri ráð fyrir að geta yfirgefið Grindavík í flýti Prófessor í jarðeðlisfræði segir að þeir sem kjósi að dvelja í Grindavík ættu að vera undir það búnir að yfirgefa bæinn mjög hratt. Rúmmál kviku er svipað og í aðdraganda gossins í desember. Ef til eldgoss kæmi sé ekki hægt að útiloka að gossprungur opnist innan bæjarmarkanna. Innlent 9. janúar 2024 11:40
Segir líkur á gosi ef til vill mestar við Krísuvík Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir dreif af grunnum og nokkrum dýpri skjálftum á svæðinu umhverfis Krísuvík geta verið merki um stórt lárétt kvikuinnskot. Ef svo sé geti það verið fimmtíu til eitthundrað ferkílómetrar. Líkurnar á eldgosi séu ef til vill mestar þar, segir hann. Innlent 9. janúar 2024 06:36
„Líf í Grindavík ætti að færast nær eðlilegum skorðum“ Ármann Höskuldsson, prófessor í eldfjallafræði, telur varnargarða sem hafa verið reistir á Reykjanesskaga koma að góðum notum, bæði fyrir Grindavíkurbæ, sem og Bláa lónið og Svartsengi. Innlent 9. janúar 2024 00:19
Flökunarvélarnar settar í gang á morgun í fyrsta sinn í tvo mánuði Afli af grindvísku bátunum Gísla Súrssyni GK og Vésteini GK var slægður í morgun en á morgun verða flökunarvélar Einhamars Seafood í Grindavík svo settar af stað í fyrsta sinn í tvo mánuði. Innlent 8. janúar 2024 14:45
Enn af Bláa lóninu Undanfarið hef ég skrifað nokkrar greinar um það sem ég tel að sé vanmat á hættu af völdum jarðhræringa á Reykjanesskaga. Ég hef bent á að óvissa sé mikil og að best sé að fara varlega þegar ákvarðanir eru teknar varðandi það hvað er leyft og hvað ekki á svæðinu þar sem jarðhræringar eiga sér nú stað á Reykjanesskaga. Skoðun 8. janúar 2024 14:00
Land rís enn og áfram talið líklegast að gjósi Land rís áfram jafnt og þétt við Svartsengi og það er mat náttúruvársérfræðinga að líklegast sé að þessi atburður endi með gosi líkt og gerðist þann 18. desember. Tugir skjálfta mælast á svæðinu á hverjum sólarhring. Innlent 8. janúar 2024 13:17
Segir „forkastanlegt“ að Sigurður Ingi virðist koma af fjöllum „Að mínu mati er þetta bara forkastanlegt; að Sigurður Ingi virðist koma af fjöllum,“ segir Grindvíkingurinn Hilmar Gunnarsson um viðbrögð innviðaráðherra við viðtali við Gunnar í Bítínu á Bylgjunni í síðustu viku, þar sem hann sagði hluta Grindvíkinga á leið í þrot. Innlent 8. janúar 2024 10:26
Enn mælist landris við Svartsengi Enn mælist landris við Svartsengi með svipuðum hraða og undanfarna daga samkvæmt GPS gögnum Veðurstofunnar. Innlent 6. janúar 2024 18:49
Bláa lónið opnar á morgun Bláa lónið opnar aftur á morgun. Allar rekstrareiningar lónsins opna í fyrramálið fyrir utan hótelin Silica og Retreat og veitingastaðinn Moss sem verða lokuð út mánudag. Innlent 5. janúar 2024 23:01
Sundhnúkagígaröð „langlanglíklegasta“ upptakasvæði eldgoss Í uppfærðu hættumatskorti Veðurstofunnar eru líkur á eldgosi við Svartsengi lækkaðar úr töluverðum líkum í nokkrar. Jarðeðlisfræðingur segir að breytingin sé fyrst og fremst til marks um að öll gögn bendi til að það verði eldgos á Sundhnjúkagígaröð. Innlent 5. janúar 2024 18:39
Vísbending um að kvikuþrýstingur sé að byggjast upp Enn hægist á landrisi við Svartsengi, en það er vísbending um að kvikuþrýstingur sé að byggjast upp og þar með aukist líkur á nýju kvikuhlaupi og eldgosi. Þetta kemur fram í uppfærslu frá Veðurstofu Íslands, en þar segir að ekki sé útilokað að það dragi úr kvikuinnflæði. Innlent 5. janúar 2024 13:55
Ráðherra eigi að vita betur en að kalla ákvörðunina óskiljanlega Innviðaráðherra segir ákvörðun lífeyrissjóða um að fella ekki niður vexti og verðbætur Grindvíkinga óskiljanlega. Framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða segir að ráðherra eigi að vita betur. Innlent 5. janúar 2024 12:08
Óskiljanlegt að lífeyrissjóðir taki ekki utan um Grindvíkinga Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, segir stjórnvöld hafa staðið í þeirri trú að lífeyrissjóðir myndu fylgja fordæmi bankanna og standa með lántakendum sínum í Grindavík. Hann segir illskiljanlegt hvers vegna einstaka lífeyrissjóðir taki ekki utan um einstaka lántaka. Innlent 5. janúar 2024 08:55
Skjálftinn þýði lítið sem ekki neitt Bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir ekki tímabært að ræða varnargarða við bæinn þrátt fyrir að eldfjallafræðingar segja það skynsamlegast. Jarðeðlisfræðingur segir stóran skjálfta sem varð í gær, í raun og veru þýða lítið sem ekki neitt. Innlent 4. janúar 2024 20:00
Ekki tímabært að ræða varnargarða í Hafnarfirði Sviðsstjóri almannavarna segir það ótímabært að fara að reisa varnargarða við Hafnarfjörð líkt og eldfjallafræðingar hafa kallað eftir. Unnið er að hættumati vegna eldgosahættu fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Innlent 4. janúar 2024 11:45
Drottningin áhugasöm um Grindavík í síðasta nýárspartýinu Margrét Þórhildur Danadrottning var forvitin um stöðu mála í Grindavík og jarðhræringar á Reykjanesskaga þegar hún ræddi við sendiherra Íslands í Danmörku í nýársmóttöku í Kristjánsborgarhöll í gær. Innlent 4. janúar 2024 11:08