Formúla 1

Formúla 1

Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.

Fréttamynd

Kubica þakklátur öryggiskröfum eftir óhapp

Formúlu 1 ökumenn keppa í Montreal í Kanada um helgina og Robert Kubica vann þegar keppt var síðast á brautinni. Það var árið 2008 og hann vann sinn fyrsta sigur í Formúlu 1. Árið áður þótti hann heppinn að sleppa með skrámur eftir að hann kútveltist á brautinni.

Formúla 1
Fréttamynd

Meistarinn býst við jöfnum slag

Jenson Button hjá McLarenl, sem er núverandi Formúlu 1 meistari býst við að McLaren, Red Bull og jafnvel Mercedes verði í toppbaráttunni í Montreal í Kanada um helgina. Þá telur hann að Ferrari gæti átt möguleika, eftir fremur slaka frammistöðu í Tyrklandi á dögunum.

Formúla 1
Fréttamynd

Scumacher: Get ekki keppt um titilinn

Michael Schumacher hefur sett stefnuna á titilsók árið 2011, þar sem hann telur titilvonir þessa árs frekar dræmar. Hann segir þó mörg mót eftir, en hann líti samt meira á tímabilið sem undirbúning fyrir næsta tímabi

Formúla 1
Fréttamynd

Hamilton: Montreal hentar McLaren

Bretinn Lewis Hamilton vann síðustu keppni, sem fram fór í Tyrklandi og telur að McLaren bíll sinn henti vel á götubrautina í Montreal í Kanada þar sem keppt er um helgina. Hann vann mótið í Kanada árið 2007, en Robert Kubica vann 2008, en ekki var keppt 2009.

Formúla 1
Fréttamynd

Ekki hyglað að Vettel hjá Red Bull

Sebastian Vettel segir að hann fái ekkert umfram Mark Webber, hvorki varðandi búnað né leikplan í mótum hjá Red Bull liðinu. Báðir fái jafna möguleika á því að vinna mót.

Formúla 1
Fréttamynd

McLaren ekkert að svindla í Tyrklandi

McLaren beitti ekki neinskonar liðsskipunum í tyrkneska kappakstrinum á dögunum til að breyta því hvort Lewis Hamilton eða Jenson Button ynni mótið. Hamilton kom fyrstur í mark á undan Button.

Formúla 1
Fréttamynd

Webber áfram hjá Red Bull 2011

Ástralinn Mark Webber hefur fengið árs framlengingu á samningi sínum við Red Bull liðið, en það hentar honum ágætlega þar sem hann segist ekki ætla að vera í Formúlu 1 til eilífðarnóns, bara til að vera í Formúlu 1.

Formúla 1
Fréttamynd

Hamilton ætlar sér fleiri sigra

Bretinn Lewis Hamilton hjá McLaren vann sinn fyrsta sigur um síðustu helgi og um aðra helgi keppir hann í Montreal í Kanada. Ekki hefur verið keppt þar síðan 2007, en þá vann einmitt Hamilton.

Formúla 1
Fréttamynd

Red Bull, Vettel og Webber sættast

Red Bull liðið sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem segir að sátt sé á milli Mark Webber og Sebastian Vettel og atvikið í tyrkneska kappakstrinum sé nú að baki.

Formúla 1
Fréttamynd

Webber vildi láta hægja á Vettel

Christian Horner hjá Red Bull segir í samtali við autosport.com í dag að Mark Webber hafi beðið lið sitt að hægja Vettel áður en áreksturinn milli þeirra varð staðreynd í Tyrklandi á sunnudaginn.

Formúla 1
Fréttamynd

Force India lögsækir Lotus

Force India tilkynnti í dag að liðið hefur lögsótt Lotus keppnisliðið,. Mike Gascoyne og fyrirtæki sem heitir Aerilab SRL fyrir að nota upplýsingar sem tilheyra Force India við smíði 2010 keppnisbíls Lotus.

Formúla 1
Fréttamynd

Óhapp sem átti ekki að gerast

Christian Horner, framkvæmdarstjóri Red Bull hefur farið yfir öll gögn varðandi áreksturinn á milli Mark Webber og Sebastian Vettel í Tyrkklandi á sunnudag og hefur fríað Webber af sök og segir að óhappið vera atvik sem geti hent í kappakstri.

Formúla 1
Fréttamynd

Webber vill ræða áreksturinn við Vettel

Mark Webber og Sebastian Vettel lentu í árekstri þegar þeir voru í forystuhlutverki í tyrkneska kappakstrinum á sunnudaginn. Vettel reyndi að fara framúr Webber, en þeir skullu saman með þeim afleiðingum að Vettel féll úr leik, en Webber náði þriðja sæti á eftir Lewis Hamilton og Jenson Button.

Formúla 1
Fréttamynd

Hamilton vill frekar stýra bíl en dansa

Lewis Hamilton og kærasta hans Nicole Shwarzinger söngkona hafa ýmsu fagnað síðustu vikuna. Hamilton vann Formúlu 1 mótið í Tyrklandi í gær og fyrr í vikunni vann Nicole þetkkta danskeppni í sjónvarpi í Bandaríkjunum sem kallast "Dancing with the stars".

Formúla 1
Fréttamynd

Red Bull vill varna deilum ökumanna

Christian Horner, framkvæmdarstjóri Red Bull liðsins segir í samtali við autosport.com að hann vilji varna því að Mark Webber og Sebastian Vettel verði ósáttir hvor við annan eftir áreksturinn í Formúlu 1 mótinu í Istanbúl í gær. Þeir lentu í árekstri þegar þeir voru í forystuhlutverki, Vettel féll úr leik, en Webber náði að klára mótið í þriðja sæti.

Formúla 1
Fréttamynd

Hamilton stefnir á tvo titla

Lewis Hamilton hjá McLaren vann óvæntan sigur í dag, eftir afhroð Red Bull liðsins, en ökumennirnir Mark Webber og Sebastian Vettel óku hver á annan þegar þeir voru í fyrsta og öðru sæti.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel og Webber ósamála um áreksturinn

Sebastian Vettel og Mark Webber eru ekki sammála um atburðarrásina í Formúlu 1 mótinu í Tyrklandi í dag. Vettel segist ekki hafa gert mistök þegar hann reyndi framúrakstur á Webber, en þeir voru í forystu í mótinu og aka báðir fyrir Red Bull.

Formúla 1
Fréttamynd

Hamilton vann í dramatískri keppni

Bretinn Lewis Hamilton landaði sigri í Formúlu 1 mótinu í Tyrklandi, eftir mikla dramatík á milli Red Bull ökumannanna Mark Webber og Sebastian Vettel, sem leiddu mótið en lentu í árekstri.

Formúla 1
Fréttamynd

Titilslagurinn galopinn í Istanbúl í dag

Formúlu 1 mótið í Istanbúl fer fram í dag og Martin Whitmarsh hjá McLaren segir að allt sé galopið hvað titilslaginn varðar, eftir að Lewis Hamilton stakk sér á milli Mark Webber og Sebastian Vettel á ráslínunni.

Formúla 1
Fréttamynd

Slök rásstaða Ferrari í tímamótakeppni

Ferrari eru aðeins í áttunda og tólfta sæti á ráslínu í mótinu á Istanbúl brautinni á morgun, Felipe Massa á undan Fernando Alonso. Liðið hafði einfaldlega ekki hraðann sem þarf í sjálfu afmælistmóti liðsins, en Ferrari ræsir af stað í 800 skipti á sunnudag.

Formúla 1
Fréttamynd

Webber kátur, Vettel hundfúll

Mark Webber náði besta tíma í tímatökum í þriðja mótinu í röð og hefur unnið tvö síðustu mót á sannfærandi hátt. Hann er með forystu í stigamótinu ásamt Sebastian Vettel, liðsfélaga sínum sem ræsir þriðji af stað í Istanbúl kappakstrinum í Tyrklandi á morgun.

Formúla 1
Fréttamynd

Webber fremstur þriðja mótið í röð

Ástralinn Mark Webber á Red Bull fljóiastur alrla í tímatökunni í Istanbúl lí dag og náði fremsta stað á ráslínu í þriðja mótinu í röð. Hann er efstur í stigamótinu ásamt Sebastian Vettel, sem varð þriðji í rímatökunni, en Lewis Hamilton stakk sér á milli þeirra.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel fljótastur á lokaæfingu í Istanbúl

Sebastian Vettel á Red Bull var fljótastur á lokaæfingu keppnisliða á Istanbúl brautinni í dag. Hann varð á undan Nico Rosberg á Mercedes, en Lewis Hamilton á McLaren varð þriðji. Tímatakan fer fram kl. 10.45 í dag í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Formúla 1
Fréttamynd

Hamilton stakk af í Tyrklandi

Bretinn Lewis Hamilton var langfljótastur i á fyrstu æfingu keppnisliða í Istanbúl í Tyrklandi í morgun. Hann og félagi hans hjá McLaren voru tveir fljótustu ökumennirnir á svæðinu, en Michael Schumacher og Nico Rosberg hjá Mercdedes voru næstir í röðinni.

Formúla 1
Fréttamynd

Formúlu 1 kappar spá i HM í fótbolta

Á blaðamannafundi Formúlu 1 ökumanna í Tyrklandi í dag voru nokkrir ökumenn fengnir til að spá í spilin varðandi væntanlegt heimsmeistaramót í fótbolta. Mark Webber er efstur í stigamótinu og var tíðrætt að Ástralía keppti fyrst við Þýskland, land Michaels Schumachers sem einnig var á fundinum.

Formúla 1
Fréttamynd

McLaren til varnar mistökum í mótum

McLaren liðið hefur glutrað niður stigaforystunni sem Jenson Button var kominn með í stigakeppni ökumanna og liðið í keppni bílasmiða, eftir mótið í Mónakó á dögunum. McLaren keppir í Istanbúl í Tyrklandi um helgina.

Formúla 1