Messi spilaði tvo góðgerðaleiki á tveimur dögum Lionel Messi er ekki enn kominn til nýja félagsins í Bandaríkjunum því hann hefur verið upptekinn við að heiðra gamla liðsfélaga í heimalandi sínu. Fótbolti 26. júní 2023 16:01
Stoltir af að fá Daníel til SönderjyskE og hafa góða reynslu af Íslendingum Landsliðsmaðurinn Daníel Leó Grétarsson er genginn í raðir danska knattspyrnufélagsins SönderjyskE. Þessi 27 ára gamli, örvfætti miðvörður skrifaði undir samning sem gildir til fjögurra ára. Fótbolti 26. júní 2023 15:44
Daníel sá þriðji sem fær ekki að fara á EM Tvær breytingar hafa orðið á leikmannahópi Íslands sem í næstu viku hefur keppni á Evrópumóti U19-landsliða karla, á Möltu. Fótbolti 26. júní 2023 15:18
Gylfi gæti orðið liðsfélagi Guðlaugs Victors | Liðið lætur rannsaka bakgrunn Gylfa Mikið hefur verið rætt og ritað um mögulega endurkomu Gylfa Þórs Sigurðssonar á knattspyrnuvöllinn undanfarnar vikur og mánuði. Nú fullyrða einhverjir að Gylfi sé í viðræðum við DC United í bandarísku MLS-deildinni. Fótbolti 26. júní 2023 15:01
Modric tekur í það minnsta eitt ár í viðbót með Madrídingum Króatíski knattspyrnumaðurinn Luka Modric hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum við spænska stórveldið Real Madrid. Fótbolti 26. júní 2023 13:01
Fékk óvænta aðstoð við að fá eiginhandaráritun frá Ronaldinho Samfélagsstjarnan Khaby Lame kom einum áköfum aðdáenda brasilísku knattspyrnugoðsagnarinnar Ronaldinho til bjargar um helgina. Fótbolti 26. júní 2023 11:01
Man City staðfestir að Gundogan fari til Barcelona Ilkay Gundogan, fyrirliði Manchester City, hefur spilað sinn síðasta leik fyrir ensku meistarana. Enski boltinn 26. júní 2023 08:13
Svava áfram út í kuldanum í New York Íslenska landsliðskonan Svava Rós Guðmundsdóttir var ónotaður varamaður í fimmta leiknum í röð þegar Gotham FC vann 2-1 sigur á Chicago Red Stars í bandarísku atvinnumannadeildinni í nótt. Fótbolti 26. júní 2023 07:31
Vilja byggja liðið í kringum unga og hungraða leikmenn Enska knattspyrnufélagið Chelsea hefur undanfarnar vikur losað hvern leikmanninn á fætur öðrum. Virðist skipta litlu máli hvert þeir fara og í sumum tilvikum fá þeir jafnvel að fara frítt. Stóra spurningin er af hverju og hvað er Chelsea að pæla? Enski boltinn 25. júní 2023 23:31
„Mér fannst tíminn ekkert líða“ Ásmundur Arnarson, þjálfari Breiðabliks, var sigurreifur eftir 2-1 sigur á Val í stórleik tíundu umferðar Bestu deildar kvenna í kvöld. Úrslitin þýða að Breiðablik jafnar Val á stigum og sitja liðin í efstu tveimur sætum deildarinnar. Fótbolti 25. júní 2023 22:05
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Valur 2-1 | Breiðablik upp fyrir Val á toppi deildarinnar Breiðablik vann afar þýðingarmikinn 2-1 sigur þegar liðið mætti Val í toppslag í 10. umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld. Liðin eru nú jöfn að stigum á toppi deildarinnar en og Breiðablik hirti toppsætið af Val þar sem Blikaliðið hefur betri markatölu. Fótbolti 25. júní 2023 21:11
Michael Olise hetja franska liðsins Michael Olise skoraði sigurmark Frakklands þegar liðið lagði Noreg að velli með einu marki gegn engu í riðlakeppni Evrópumótsins í fótbolta karla skipuðu leikmönnum 21 árs og yngri. Fótbolti 25. júní 2023 20:43
Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - Stjarnan 3-3 | Endurkoma heimakvenna í ótrúlegum leik Þór/KA og Stjarnan fengu sitthvort stigið í hreint ótrúlegum leik norðan heiða í dag. Gestirnir leiddu 3-0 eftir fyrri hálfleikinn en heimakonur björguðu stigi með jöfnunarmarki á 89. mínútu leiksins. Lokatölur því 3-3 í frábærum fótboltaleik. Fótbolti 25. júní 2023 19:47
Morgan Gibbs-White lagði upp bæði mörk Englands Morgan Gibbs-White, leikmaður Nottingham Forest, lagði upp bæði mörk enska karlalandsliðsins í fótbolta þegar liðið fór með 2-0 sigur af hólmi á móti Ísrael í riðlakeppni Evrópumótsins í fótbolta karla sem fram fer í Georgíu þessa dagana. Fótbolti 25. júní 2023 19:08
Leikmenn halda áfram að streyma til Sádí-Arabíu Senegalski landsliðsmiðvörðuinn Kalidou Koulibaly hefur samið við sádí-arabíska félagið Al-Hilal er en hann kemur til félagsins Chelsea. Fótbolti 25. júní 2023 18:42
Kristianstad kom til baka og tryggði sér sigur Kristianstad sýndi mikinn karakter þegar liðið lagði Kalmar að velli, 3-2, í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta kvenna í dag. Fótbolti 25. júní 2023 18:32
Elías Rafn gæti verið á leið til Portúgals Markvörðurinn Elías Rafn Ólafsson gæti verið á leið til Portúgals á láni frá Midtjylland í Danmörku. Fótbolti 25. júní 2023 16:45
Chelsea nælir í framherja Villareal Framherjinn Nicolas Jackson hefur staðist læknisskoðun hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea og styttist í að hann verði kynntur til leiks sem nýjasti leikmaður liðsins. Talið er að samningur hans gildi til ársins 2031. Enski boltinn 25. júní 2023 15:01
Fyrrverandi landsliðsmaður Belgíu fór í hjartastopp og lést Cédric Roussel, fyrrverandi leikmaður Coventry City í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu sem og belgíska landsliðsins er látinn aðeins 45 ára að aldri. Dánarorsök var hjartastopp. Fótbolti 25. júní 2023 14:01
Segja að Gylfi Þór íhugi að spila í Bandaríkjunum eða Katar Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson virðist ekki hættur að spila þrátt fyrir að hafa ekki spilað fótbolta síðan í maí 2021. Hann virðist stefna á að spila í Katar eða í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. Fótbolti 25. júní 2023 12:30
Besta upphitunin: „Auðvitað hefur maður líka metnað að vera aðalþjálfari“ Edda Garðarsdóttir, aðstoðarþjálfari Þróttar, og Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, aðstoðarþjálfari Keflavíkur, voru gestir Helenu Ólafsdóttur í upphitun fyrir 10. umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Íslenski boltinn 25. júní 2023 12:09
Ægir Jarl með stórskemmtilegt skallamark, þrumufleygar Arons Jó og Danijels Djuric Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla í knattspyrnu á laugardag. KR vann KA 2-0, Víkingur vann Stjörnuna 2-0 og Valur vann ÍBV 3-0 í Vestmannaeyjum. Íslenski boltinn 25. júní 2023 11:01
Englandsmeistararnir að fá einn eftirsóttasta varnarmann heims Joško Gvardiol, leikmaður RB Leipzig í Þýskalandi, hefur komist að samkomulagi við Manchester City og mun leika með liðinu á næsti leiktíð ef Englandsmeistararnir ná samkomulagi við Leipzig. Enski boltinn 25. júní 2023 10:15
Lærisveinar Heimis óheppnir að ná bara í stig gegn Bandaríkjunum Jamaíka mætti Bandaríkjunum í Gullbikarnum [e. Gold Cup] í nótt. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en Jamaíka komst yfir og brenndi af vítaspyrnu áður en Bandaríkin jöfnuðu metin undir lok leiks. Þetta var 11. leikur Jamaíka án sigurs. Fótbolti 25. júní 2023 09:30
Ísak Bergmann hefur mögulega spilað sinn síðasta leik fyrir FCK Íslenski landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson hefur að öllum líkindum spilað sinn síðasta leik fyrir FC Kaupmannahöfn. Á dögunum gagnrýndi hann félagið opinberlega en það hefur ekki farið vel í stjórnarmenn danska stórveldisins. Fótbolti 25. júní 2023 07:00
Dagskráin í dag: Besta deildin og golf Besta deild kvenna í knattspyrnu og golf er í fyrirrúmi hjá okkur á Stöð 2 Sport í dag. Fótbolti 25. júní 2023 06:00
Davíð Örn: Sama uppskrift og í síðasta leik Davíð Örn Atlason lék vel í hægri bakvarðarstöðunni hjá Víkingi þegar liðið bar sigur úr býtum gegn Stjörnunni í 12. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Víkingsvellinum í kvöld. Fótbolti 24. júní 2023 23:00
Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - Stjarnan 2-0 | Víkingur heldur áfram fimm stiga forystu á toppnum Víkingur lagði Stjörnuna að velli með tveimur mörkum gegn engu þegar liðin áttust við í 12. umferð Bestu-deildar karla í kvöld á Víkingsvellinum í Fossvoginum í kvöld. Víkingur hefur áfram fimm stiga forskot á toppi deildarinnar en Stjarnan er áfram í námunda við fallsvæðið. Fótbolti 24. júní 2023 21:04
Mark Ingibjargar dugði ekki til sigurs Íslensku landsliðskonurnar Ingibjörg Sigurðardóttir og Selma Sól Magnússdóttir léku með liðum sínum í norska boltanum fyrr í dag. Fótbolti 24. júní 2023 18:08
Löng leikbönn eftir lætin í leik Bandaríkjanna og Mexíkó Bandaríkin og Mexíkó áttust við í undanúrslitum Þjóðadeildar Norður- og Mið-Ameríku á dögunum. Þar fór allt í bál og brand undir lok leiks. Endaði dómarinn á að gefa fjögur rauð spjöld. Leikmennirnir sem hlutu spjöldin hafa nú allir fengið löng leikbönn. Fótbolti 24. júní 2023 15:30