Benítez tilbúinn að snúa aftur til Napoli Hinn spænski Rafael Benítez segist vera tilbúinn að taka aftur við stjórn Napoli en hann stýrði liðinu frá 2013 til 2015. Fótbolti 11. júní 2023 09:30
Sigurmark Rodri og magnaðar markvörslur Ederson Manchester City vann Meistaradeild Evrópu í gær, laugardag, þökk sé marki Rodri í síðari hálfleik sem og nokkrum mögnuðum markvörslum frá Ederson. Markið sem og vörslurnar má sjá hér að neðan. Fótbolti 11. júní 2023 09:01
Messi í Miami mun bylta MLS-deildinni þökk sé Apple og Adidas Lionel Messi hefur ákveðið að hans næsta skref á knattspyrnuferlinum verði tekið í Miami í Bandaríkjunum. Heimsmeistarinn hefur samið við Inter Miami og stefnir á að gera slökustu sóknarlínu MLS-deildarinnar samkeppnishæfa. Ljóst er að koma hans í deildina mun auka áhuga á henni til muna. Fótbolti 11. júní 2023 07:57
Þreyttur Pep sendi UEFA og FIFA tóninn eftir Meistaradeildarsigurinn „Þreyttur, rólegur og ánægður. Það er svo erfitt að vinna þessa keppni,“ sagði Evrópumeistarinn Pep Guardiola þegar hann ræddi við blaðamenn eftir Meistaradeildarsigur Manchester City í kvöld. Fótbolti 10. júní 2023 23:01
Markaskorarinn Rodri: „Draumur að rætast“ Spænski miðjumaðurinn Rodri tryggði Manchester City 1-0 sigur á Inter í úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Hann átti erfitt með að lýsa tilfinningunni þegar hann ræddi við blaðamenn að leik loknum. Fótbolti 10. júní 2023 22:30
Pep sá fyrsti í sögunni Manchester City vann Inter frá Mílanó í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Þar með unnu lærisveinar Pep Guardiola þrennuna svokölluðu. Þeir eru Englands-, FA bikar- og Evrópumeistarar. Er þetta önnur þrennan sem Pep vinnur á ferli sínum sem þjálfari. Fótbolti 10. júní 2023 21:46
Manchester City Evrópumeistari 2023 Manchester City er Evrópumeistari í fyrsta sinn eftir 1-0 sigur á Inter frá Mílanó í úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Man City varð þar með annað lið í sögu Englands til að vinna þrennuna. Fótbolti 10. júní 2023 21:00
Sjáðu markið: Yngstur til að bæði spila og skora fyrir ÍA Daníel Ingi Jóhannesson, leikmaður ÍA, varð á föstudagskvöld yngsti markaskorari í sögu félagsins. Hann átti þegar metið yfir yngsta leikmann félagsins frá upphafi. Íslenski boltinn 10. júní 2023 19:46
Tielemans á leið til Villa Youri Tielemans, miðjumaður Leicester City, hefur samþykkt að ganga til liðs við Aston Villa þegar samningur hans við Refina rennur út í sumar. Enski boltinn 10. júní 2023 19:00
Sævar Atli mættur í gæsluna og sá Leikni koma til baka Sævar Atli Magnússon, leikmaður íslenska landsliðsins og Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni, var mættur að sjá sína menn í Leikni Reykjavík spila við Grindavík í Lengjudeild karla í knattspyrnu. Ekki nóg með það heldur skellti hann sér í gæslu. Íslenski boltinn 10. júní 2023 18:00
„Vorum góðir í þrjár mínútur“ Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var ekkert að skafa af hlutunum eftir að lið hans gerði 1-1 jafntefli gegn ÍBV á heimavelli í Bestu deild karla í fótbolta fyrr í dag. Íslenski boltinn 10. júní 2023 17:15
Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - ÍBV 1-1 | Dramatík í Vesturbænum þar sem gestirnir fengu færin KR og ÍBV gerðu 1-1 jafntefli í 10. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Sigurður Bjartur Hallsson kom KR yfir en Felix Örn Friðriksson jafnaði metin í uppbótartíma með marki úr vítaspyrnu eftir að Eyjamenn höfðu brennt af víti og skotið þrívegis í stöngina. Íslenski boltinn 10. júní 2023 17:00
Eigandinn mætir loks á völlinn Sheikh Mansour, eigandi Englandsmeistara Manchester City, verður á vellinum þegar lið hans mætir Inter frá Mílanó í úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Eigandinn hefur ekki mætt á leik undanfarin 13 ár Fótbolti 10. júní 2023 16:30
Landsliðskonan Ingibjörg Sigurðardóttir skoraði fyrir Vålerenga Landsliðskonan Ingibjörg Sigurðardóttir og varnarmaður Vålerenga skoraði mark í 1-1 jafntefli gegn Brann í dag. Liðið er ósigrað á toppi norsku úrvalsdeildarinnar þegar einungis þrír leikir eru eftir af deildinni. Fótbolti 10. júní 2023 15:14
Yfir tuttugu handteknir eftir úrslitaleikinn West Ham og Fiorentina hafa verið kærð af UEFA eftir atvik sem upp komu í úrslitaleik liðanna í Sambandsdeild Evrópu á miðvikudaginn. Fótbolti 10. júní 2023 12:37
„Það hafa kraftaverk gerst á þessum velli áður“ „Stemningin verður frábær á vellinum og hún hefur verið frábær hér í borginni síðasta sólahringinn,“ segir Guðmundur Benediktsson. Hann mun lýsa úrslitaleik Meistaradeildarinnar frá Ólympíuvellinum í Ataturk. Fótbolti 10. júní 2023 11:59
„Á ögurstundu sést hvað liðið vill raunverulega gera“ Ruben Dias verður í eldlínunni í kvöld þegar Manchester City og Inter Milan mætast í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 10. júní 2023 11:35
De Bruyne og Haaland með einstaka tengingu Það mun mikið mæða á Kevin De Bruyne og Erling Haaland í kvöld þegar lið þeirra, Manchester City mætir Inter Milan í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Fótbolti 10. júní 2023 08:05
Fyrrum leikmaður Arsenal og United á bekknum á morgun Samkvæmt ítalska miðlinum Gazzetta dello sport verður sóknarsinnaði miðjumaður Inter Milan, Henrikh Mkhitaryan, á bekknum í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á morgun. Mkhitaryan er fyrrum leikmaður Arsenal og Manchester United. Fótbolti 9. júní 2023 22:56
„Ekki auðvelt að sækja gegn þessu varnarsinnaða leikkerfi“ „Ég er svo þakklátur fyrir það sem leikmennirnir mínir hafa gert og eru að gera. En úrslitaleikir eru gjörólíkir öðrum leikjum,“ segir Pep Guardiola, þjálfari Manchester City, í aðdraganda úrslitaleiks Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 9. júní 2023 18:46
Fernando Torres hámaði í sig súpu í Friðheimum Knattspyrnugoðsögnin Fernando Torres er á ferð um landið. Liverpoolmaður sem dýrkar hann og dáir hitti kappann í dag en beið með að nálgast hann þangað til hann var búinn að borða. Fótbolti 9. júní 2023 18:28
Yfir milljón miðar seldir á HM og stefnir í enn eitt áhorfendametið Það stefnir allt í það að heimsmeistaramót kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi verði mest sótti íþróttaviðburður kvenna frá upphafi. Nú þegar er búið að selja yfir milljón miða á leiki mótsins. Fótbolti 9. júní 2023 15:30
Úrslitaleikurinn gegn Inter verði erfiðari fyrir City en gegn Man United Sparkspekingurinn Paul Merson segir að ítalska liðið Inter Milan verði erfiðara próf fyrir Englandsmeistara Manchester City á leið þeirra að þrennunni eftirsóttu. Inter og City mætast í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu annað kvöld. Fótbolti 9. júní 2023 14:02
Dolfallnar yfir Katie Cousins: „Einn besti erlendi leikmaðurinn sem hefur komið hingað“ „Ég segi að hún sé skemmtilegasti leikmaður sem við höfum fengið hér. Njótið bara myndanna,“ sagði Helena Ólafsdóttir um Katie Cousins, leikmann Þróttar í Bestu-deild kvenna, í síðasta þætti af Bestu mörkunum. Fótbolti 9. júní 2023 13:01
„Eina sem ég er hræddur við í lífinu er guð og ég sé hann ekki á vellinum“ Markvörður Inter segir að engin pressa sé á ítalska liðinu í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu annað kvöld. Fótbolti 9. júní 2023 12:01
„Fann að íþróttir voru mín útrás“ Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er snúin aftur til Íslands eftir farsælan atvinnumannaferil í Noregi, Bandaríkjunum og Ástralíu. Hún segist í grunninn enn vera sami leikmaður og þegar hún byrjaði að æfa fótbolta í 3. bekk. Íslenski boltinn 9. júní 2023 10:01
Newcastle ætlar að stela Kim af United Newcastle United ætlar að stela suðurkóreska varnarmanninum Kim Min-Jae fyrir framan nefið á Manchester United. Enski boltinn 9. júní 2023 08:30
Markvörður PSG kominn til meðvitundar Sergio Rico, markvörður Paris Saint-Germain, hefur verið vakinn úr dái. Hann slasaðist alvarlega er hann datt af hestbaki í síðasta mánuði. Fótbolti 9. júní 2023 08:01
Mætti með Gullboltann þegar hann var kynntur fyrir framan sextíu þúsund manns Karim Benzema var kynntur til leiks sem nýr leikmaður Al-Ittihad fyrir framan sextíu þúsund stuðningsmenn sádíarabíska liðsins. Hann tók Gullboltann með sér í kynninguna. Fótbolti 9. júní 2023 07:30
Noel Gallagher ætlar að koma (næstum) nakinn fram ef City verða Evrópumeistarar Noel Gallagher ætlar að koma fram á tónleikum á nærbuxunum einum fata ef Manchester City fer með sigur af hólmi í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Inter þann 10. júní. Enski boltinn 8. júní 2023 23:31
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn