Sjáðu Ronaldo skora fernu fyrir arabíska liðið og ná marki númer fimm hundruð Cristiano Ronaldo minnti á sig í gær þegar hann skoraði fernu fyrir Al Nassr í 4-0 sigri liðsins í sádiarabísku deildinni. Fótbolti 10. febrúar 2023 10:30
Flutt í burtu eftir áfallið og vill að Birkir komi með Eftir að hafa vaknað upp við jarðskjálfta að stærð 7,8, ein í íbúð þeirra Birkis Bjarnasonar í Adana, hefur fyrirsætan Sophie Gordon ákveðið að yfirgefa Tyrkland fyrir fullt og allt. Fótbolti 10. febrúar 2023 07:30
Ætla að umturna þjálfun stelpna á hæsta stigi Enska knattspyrnusambandið hefur tilkynnt að það ætli sér að setja á fót áætlun sem ætlað er að bæta þjálfun stelpna á hæsta stigi. Áætlunin á að tryggja hágæða þjálfun sem er í samræmi við gæði leikmanna. Enski boltinn 10. febrúar 2023 07:00
Dagný og stöllur sáu aldrei til sólar gegn Englandsmeisturunum West Ham United fékk Chelsea í heimsókn í undanúrslitum enska deildarbikarsins í kvöld. Dagný Brynjarsdóttir var í byrjunarliði Hamranna sem áttu aldrei viðreisnar von en Chelsea vann leikinn 7-0. Enski boltinn 9. febrúar 2023 23:00
Selfoss heldur áfram að sækja leikmenn til Bandaríkjanna Segja má að það verði bandarískt yfirbragð yfir Selfyssingum í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í sumar. Liðið tilkynnti í dag að framherjinn Mallory Olsson myndi spila með liðinu í sumar. Íslenski boltinn 9. febrúar 2023 18:47
Ólafur Karl í Fylki og Viktor Andri í Keflavík Nýliðar Fylkis hafa samið við framherjann Ólaf Karl Finsen um að leika með liðinu í Bestu deild karla í knattspyrnu næsta sumar. Þá hefur Keflavík samið við Viktor Andra Hafþórsson. Íslenski boltinn 9. febrúar 2023 18:01
Fyrrverandi austurrískur landsliðsmaður myrtur Volkan Kahraman, sem lék fyrir austurríska landsliðið á sínum tíma, var myrtur í Vín seint í gærkvöldi. Fótbolti 9. febrúar 2023 16:16
Hulk skoraði með skoti á 120 kílómetra hraða á klukkustund Hinn brasilíski Hulk er með skotfastari fótboltamönnum og sýndi það enn og eftir í leik í gær. Fótbolti 9. febrúar 2023 14:30
Íslensku stelpurnar fögnuðu eins og Cristiano Ronaldo Íslenska sautján ára landsliðið tryggði sér sigur á æfingamóti í Portúgal á dögunum. Fótbolti 9. febrúar 2023 14:01
Arnór flaug yfir skilti: „Ég var heppinn“ Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson segist hafa haft heppnina með sér að meiðast ekki rétt fyrir upphaf keppnistímabilsins í sænska fótboltanum, þegar honum var ýtt yfir auglýsingaskilti. Fótbolti 9. febrúar 2023 12:00
Hammarby með Hólmbert efstan á innkaupalista Sænska knattspyrnufélagið Hammarby hefur í hyggju að fá til sín framherjann Hólmbert Aron Friðjónsson sem er samningsbundinn þýska 2. deildarfélaginu Holstein Kiel. Fótbolti 9. febrúar 2023 11:02
Utanríkismálanefnd ekki rætt mál Gylfa sérstaklega Utanríkismálanefnd hefur ekki rætt mál Gylfa Þórs Sigurðssonar, knattspyrnumanns, sem hefur verið í farbanni á Bretlandi í á annað ár. Fyrsti varaformaður nefndarinnar segir það ráðuneytis að svara hver aðkoma þess er að málinu og hvort aðhafst verði í því. Innlent 9. febrúar 2023 10:38
Bróðir Messi þurfti að biðjast afsökunar á bullinu sínu um Barcelona Matias Messi, bróðir Lionel Messi, gerði lítið úr afrekum Barcelona áður en bróðir hans mætti á svæðið en hefur nú þurft að biðjast afsökunar á öllu saman. Fótbolti 9. febrúar 2023 09:30
„Svo dúkkar þessi bakvarðar pæling ekki aftur upp fyrr en af illri nauðsyn“ Íslandsmeistarinn og fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson er með áhugaverðari leikmönnum Bestu deildar karla í fótbolta fyrir margar sakir. Segja má að hann fari ótroðnar slóðir innan vallar sem utan en hér verður meira einblínt á það sem gerist innan vallar. Íslenski boltinn 9. febrúar 2023 09:01
PSG úr leik í bikarnum Marseille gerði sér lítið fyrir og sló risalið PSG út úr frönsku bikarkeppninni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 8. febrúar 2023 22:29
Real Madrid komið í úrslitaleikinn Real Madrid er komið í úrslit heimsmeistarakeppni félagsliða eftir 3-1 sigur á Al Ahly í kvöld en leikurinn fór fram í Rabat í Marokkó. Fótbolti 8. febrúar 2023 21:02
Rekinn í þriðja sinn frá sama félaginu Þeim sem hefur verið sagt upp störfum á lífsleiðinni geta eflaust vitnað um að það er miður skemmtileg lífsreynsla. Það eru samt eflaust ekki margir sem hafa verið reknir í þrígang frá sama vinnuveitandanum. Fótbolti 8. febrúar 2023 18:30
Hinn 16 ára Daníel Tristan fær tækifæri með aðalliði Malmö FF Daníel Tristan Guðjohnsen hefur verið kallaður inn í aðallið Malmö FF en liðið er nú í æfingaferð á Spáni. Daníel Tristan er sonur fyrrum landsliðsmannsins Eiðs Smára Guðjohnsen. Fótbolti 8. febrúar 2023 18:01
Umboðsmaðurinn segir Atsu ófundinn Umboðsmaður ganverska fótboltamannsins Christian Atsu segir að hann hafi ekki enn fundist á lífi. Fótbolti 8. febrúar 2023 14:51
Ekki orðinn fertugur og tekur við belgíska landsliðinu Belgar hafa fundið sér nýjan landsliðsþjálfara og sá er ekki mikið eldri en elstu stjörnur belgíska landsliðsins. Fótbolti 8. febrúar 2023 14:01
Sádarnir halda áfram að koma á óvart í fótboltanum: Veglegur bónus á leiðinni Al-Hilal er komið í úrslitaleik heimsmeistaramóts félagsliða í fótbolta fyrst félaga frá Sádí Arabíu. Fótbolti 8. febrúar 2023 13:32
Maðurinn sem leiddi Króata til bronsverðlauna á HM 1998 látinn Miroslav Blazevic, sem stýrði króatíska landsliðinu til bronsverðlauna á HM 1998, er látinn eftir baráttu við krabbamein. Hann var 87 ára. Fótbolti 8. febrúar 2023 11:30
Gæti misst af leik um helgina af því hann er að reyna að bjarga lífi Knattspyrnumaðurinn Willi Orban verður væntanlega ekki með Leipzig í þýsku deildinni um helgina en þær gerast líklega ekki betri afsakanirnar. Fótbolti 8. febrúar 2023 09:31
Félagi Birkis hneykslaður á ákvörðun Tyrkja Þrátt fyrir að enn sé verið að leita að fólki í rústum bygginga eftir jarðskjálftann mannskæða í Tyrklandi hefur verið ákveðið að næsta umferð í tyrknesku úrvalsdeildinni verði spiluð eftir rúma viku. Fótbolti 8. febrúar 2023 08:34
Grunaður um ítrekuð brot og saksóknari skoðar líkur á sakfellingu Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er grunaður um að hafa framið ítrekuð kynferðisbrot. Saksóknaraembætti bresku krúnunnar í Manchester hefur nú rannsóknargögn lögreglu til skoðunar og þarf að leggja mat á það hvort sönnunargögnin séu líkleg til þess að leiða til sakfellingar. Innlent 8. febrúar 2023 08:01
Tyrkneskur markvörður fannst látinn eftir skjálftann Tyrkneski markvörðurinn Ahmet Eyup Turkaslan fannst látinn eftir öflugan jarðskjálfta sem reið yfir Tyrkland og Sýrland síðastliðinn mánudag. Fótbolti 8. febrúar 2023 07:01
Burnley laumaði sér í 16-liða úrslit | Öskubuskuævintýri Wrexham á enda Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley eru á leið í 16-liða úrslit FA-bikarsins í fótbolta eftir dramatískan 2-1 sigur gegn C-deildarliði Ipswich Town í kvöld. Þá var dramatíkin ekki minni þegar Sheffield United sló Hollywood-lið Wrexham úr leik á sama tíma. Fótbolti 7. febrúar 2023 21:56
Fyrsti deildarsigur Juventus síðan stigin voru dregin af liðinu Juventus sótti þrjú stig er liðið vann öruggan 3-0 útisigur gegn Salernitana í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Þetta var fyrsti deildarsigur Juventus síðan 15 stig voru dregin af liðinu fyrir brot á félagsskiptareglum. Fótbolti 7. febrúar 2023 21:40
HM gæti snúið aftur til Úrúgvæ hundrað árum eftir að fyrsta mótið fór þar fram Heimsmeistaramót karla í fótbolta gæti farið að hluta til fram í Úrúgvæ árið 2030, hundrað árum eftir að fyrsta heimsmeistaramótið í sögunni fór þar fram. Fótbolti 7. febrúar 2023 18:31
Kynþáttaníð í garð Vinicuis Jr. sé vandamál fyrir spænskan fótbolta í heild Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri spænska stórveldisins Real Madrid, segir að sú kynþáttaníð sem framherjinn Vinicius Jr. hefur mátt þola á tímabilinu sé ekki bara vandamál fyrir Real Madrid og leikmanninn, heldur spænskan fótbolta í heild sinni. Fótbolti 7. febrúar 2023 17:45