Toppliðið úr leik eftir tap gegn botnliðinu í vítaspyrnukeppni Napoli, topplið ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, er fallið úr leik ítölsku bikarkeppninnar Coppa Italia eftir tap gegn botnliði deildarinnar, Cremonese, í vítaspyrnukeppni. Fótbolti 17. janúar 2023 22:55
Rúnar og félagar úr leik eftir tap gegn toppliðinu Rúnar Alex Rúnarsson og félagar hans í Alanyaspor eru úr leik í tyrknesku bikarkeppninni í fótbolta eftir að liðið tapaði 2-1 gegn toppliði tyrknesku úrvalsdeildarinnar Galatasaray í kvöld. Fótbolti 17. janúar 2023 19:45
Jón Dagur skoraði í grátlegu jafntefli Jón Dagur Þorsteinsson skoraði eina mark OH Leuven er liðið þurfti að sætta sig við 1-1 jafntefli gegn Eupen í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 17. janúar 2023 19:27
Forseti franska knattspyrnusambandsins sakaður um kynferðislega áreitni Forseti franska knattspyrnusambandsins, Noël Le Graët, er til rannsóknar vegna kynferðislegrar áreitni. Fótbolti 17. janúar 2023 17:46
Sara fékk ekki greidd laun hjá Lyon og mátti ekki taka soninn með í útileiki Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrrverandi landsliðsfyrirliði, hefur svipt hulunni af því sem gerðist hjá Lyon þegar hún varð ólétt og eftir að hún eignaðist son sinn. Lyon borgaði henni ekki laun eftir að hún varð ólétt og framkvæmdastjóri Lyon sagði að ef hún færi með málið til FIFA ætti hún sér enga framtíð hjá félaginu. Fótbolti 17. janúar 2023 16:52
Leikmaður Aftureldingar veðjaði á eigin leiki og hundruð til viðbótar Knattspyrnumaður sem spilaði með Aftureldingu í næstu efstu deild Íslandsmótsins sumarið 2022 veðjaði á hundruð knattspyrnuleikja hér á landi á sama sumar. Meðal annars leiki sem hann spilaði. Fótbolti 17. janúar 2023 16:34
„Ef þið fallið þá getið þið hvergi falið ykkur“ Spænska knattspyrnufélagið Sevilla hefur upplifað mun betri tíma en þá sem leikmenn og stuðningsmenn þurfa að ganga í gegnum þessa dagana. Fótbolti 17. janúar 2023 13:30
KSÍ styður Norrænu EM-umsóknina Knattspyrnusamband Íslands styður sameiginlega umsókn Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um að halda EM kvenna eftir tvö ár. Fótbolti 17. janúar 2023 13:01
Mjög ósáttar með að fá ekki æfingaferð í sólina eins og karlaliðið Íslendingaliðið Rosenborg í norsku kvennadeildinni hefur fengið á sig gagnrýni fyrir að tíma ekki að bjóða kvennaliði sínu upp á það sama og karlaliðið fær. Fótbolti 17. janúar 2023 10:00
Drepinn af hundunum sínum Fótboltasamfélagið í Sambíu hefur síðustu daga syrgt fyrrverandi landsliðsframherjann Philemon Mulala sem lést eftir að hundarnir hans réðust á hann. Hann var sextugur að aldri. Fótbolti 17. janúar 2023 08:01
Albert og félagar með mikilvægan sigur í „Íslendingaslag“ Genoa vann mikilvægan 1-0 sigur á Venezia í Serie B, næstefstu deild Ítalíu í knattspyrnu. Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Genoa á meðan enginn Íslendingur var í leikmannahópi Venezia að þessu sinni. Fótbolti 16. janúar 2023 20:31
Mikael Egill á förum frá Spezia Landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson er á förum frá ítalska úrvalsdeildarfélaginu Spezia á næstu dögum. Mikael Egill var hvergi sjáanlegur þegar Spezia lagði Torino 1-0 á útivelli í gær, sunnudag. Fótbolti 16. janúar 2023 18:00
Taktleysi í Tórínó: Kevin Spacey heiðursgestur á leik Nokkra athygli vakti þegar bandaríski leikarinn Kevin Spacey var heiðursgestur á leik Torino og Spezia í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Fótbolti 16. janúar 2023 16:01
Sjáðu hvernig táningurinn kláraði Real Madrid Hinn átján ára gamli Pablo Martín Páez Gavira, eða Gavi eins og hann er oftast kallaður, átti sannkallaðan stórleik þegar Barcelona vann í gær sinn fyrsta titil undir stjórn Xavi. Fótbolti 16. janúar 2023 14:30
Dybala með tvö fyrir Roma í góðum sigri Paulo Dybala skoraði bæði mörk Roma sem sagði Fiorentina í Serie A í kvöld. Í Frakklandi tapaði PSG gegn Rennes. Fótbolti 15. janúar 2023 21:49
Dagný í liði West Ham sem tapaði fyrir Manchester City Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn í liði West Ham sem beið lægri hlut á heimavelli gegn Manchester City í dag. West Ham er í sjötta sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Fótbolti 15. janúar 2023 21:42
Barcelona vann spænska ofurbikarinn eftir öruggan sigur á erkifjendunum Barcelona tryggði sér í kvöld spænska ofurbikarinn í knattspyrnu eftir 3-1 sigur á erkifjendum sínum í Real Madrid. Sigur Barcelona var öruggur en Real klóraði í bakkann í uppbótartíma. Fótbolti 15. janúar 2023 21:06
Viðræður Gerrard og pólska knattspyrnusambandsins halda áfram Steven Gerrard gæti orðið næsti knattspyrnustjóri Póllands en viðræður hafa staðið yfir á milli hans og pólska knattspyrnusambandsins. Fótbolti 15. janúar 2023 20:31
Atletico Madrid tapaði stigum Atletico Madrid tapaði dýrmætum stigum í spænsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Almeria á útivelli. Fótbolti 15. janúar 2023 17:30
Þrír útisigrar á Ítalíu Þrír leikir eru búnir í Serie A í dag og hafa þeir allir unnist á útivelli. Lazio hangir með í pakka þeirra liða sem elta topplið Napoli. Fótbolti 15. janúar 2023 17:15
Sverrir Páll genginn í raðir Eyjamanna ÍBV hefur gert samning við sóknarmanninn Sverri Pál Hjaltasted en hann kemur til Vestmannaeyja frá Hlíðarendafélaginu Val. Fótbolti 15. janúar 2023 16:27
Manchester United valtaði yfir Liverpool María Þórisdóttir kom inná sem varamaður á 70. mínútu þegar lið hennar, Manchester United, sigraði Liverpool með sex mörkum gegn engu í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta kvenna í dag. Fótbolti 15. janúar 2023 16:20
Kærkominn sigur hjá Chelesa - Gott gengi Newcastle heldur áfram Leikmenn Chelsea veittu Graham Potter, knattspyrnustjóra liðsins, andrými með því að leggja Crystal Palace að velli með einu marki gegn engu í 19. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta karla í dag. Fótbolti 15. janúar 2023 16:04
Willum Þór setti boltann í eigið net Willum Þór Willumsson varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark þegar lið hans Go Ahead Eagles gerði 2-2 jafntefli við Utrecht í hollensku efstu deildinni í fótbolta karla í dag. Fótbolti 15. janúar 2023 15:45
Guðný skoraði í þægilegum sigri AC Milan Guðný Árnadóttir skoraði seinna mark AC Milan í 2-0 sigri liðsins gegn Parma í 13. umferð ítölsku efstu deildarinnar í fótbolta kvenna í dag. Fótbolti 15. janúar 2023 14:40
Liverpool gæti flýtt kaupum á Neves til þess að hressa upp á miðjuna Forráðamenn enska fótboltafélagsins Liverpool leiða hugann að því að festa kaup á portúgalska miðvallarleikmanninum Ruben Neves í janúarglugganum til þess að ferskja upp á miðjuspilið hjá liðinu. Fótbolti 15. janúar 2023 12:58
Arsenal beinir sjónum sínum að Raphinha Edu Gaspar, yfirmaður knattspyrnumála hjá Arsenal, hefur haft sambandið við Dece, umboðsmann brasilíska framherjans Raphinha, sem er á mála hjá Barcelona, með vistaskipti leikmannsins í huga. Fótbolti 15. janúar 2023 10:03
Mudryk á leið í læknisskoðun hjá Chelsea Úkraínski landsliðsframherjinn í fótbolta Mykhailo Mudryk mun samkvæmt enskum fjölmiðlum undirgangast læknisskoðun hjá Chelsea í London í dag. Fótbolti 15. janúar 2023 09:28
Frábært gengi Brentford heldur áfram Brentford er komið uppfyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir 2-0 sigur á Bournemouth í kvöld. Liðið er taplaust eftir að deildin hófst á nýjan leik eftir hlé. Fótbolti 14. janúar 2023 20:01
Mikilvæg stig í súginn hjá AC Milan AC Milan varð af mikilvægum stigum í toppbaráttu ítölsku Serie A í dag þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Lecce. Napoli er nú með níu stiga forskot á toppi deildarinnar. Fótbolti 14. janúar 2023 18:59