Gunnlaugur í sigurliði á sterkasta áhugamannamóti heims Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson fagnaði sigri með alþjóðlega liðinu á Arnold Palmer Cup, sterkasta áhugamannamóti heims. Golf 7.6.2025 20:09
Gunnlaugur átti frábæran dag á Arnold Palmer Cup Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson er að gera góða hluti með alþjóðalega liðinu á Arnold Palmer Cup sem er sterkasta áhugamannamót heims. Golf 7.6.2025 10:01
Gunnlaugur paraður með sænskri stelpu í Arnold Palmer bikarnum Gunnlaugur Árni Sveinsson verður í dag fyrstur Íslendinga til að taka þátt í Arnold Palmer bikarnum, sterkasta áhugakylfingamóti heims. Hann spilar í dag með hinni sænsku Meju Örtengren. Golf 5.6.2025 10:02
Tíu ára fór holu í höggi í Eyjum Bráðefnilegur kylfingur að nafni Kristófer Daði Viktorsson gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á Vestmannaeyjavelli. Golf 21. maí 2025 17:16
Komdu með í ævintýri til Ítalíu Ítalía hefur nær allt upp á að bjóða fyrir gott sumarfrí. Ítölsk matargerð er fyrir löngu heimsþekkt, landið býður upp á heillandi sögu og fallegar borgir með gömlum bæjarhlutum. Ekki má svo gleyma ströndunum sem iða af lífi, fjöri og ylvogum sjónum. Lífið samstarf 20. maí 2025 08:57
Frábær byrjun dugði ekki til og Gunnlaugur Árni úr leik Gunnlaugur Árni Sveinsson, kylfingur í GKG, tók þátt í lokaúrtökumóti fyrir Opna bandaríska meistaramótið í golfi í dag. Gunnlaugur Árni fór frábærlega af stað og sat um tíma í 2. sæti. Sú spilamennska entist þó ekki út daginn og hann er úr leik. Golf 19. maí 2025 22:31
Svanhildur Hólm fór holu í höggi Versta martröð Loga Bergmann raungerðist. Svanhildur Hólm Valsdóttir sendiherra Íslands í Bandaríkjunum og eiginkona Loga, gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi. Lífið 19. maí 2025 15:37
Handtekinn í fyrra en vann nú með tárin í augunum Scottie Scheffler var tárvotur þegar hann lék lokaholuna á PGA-meistaramótinu í gær enda tilfinningarnar miklar eftir hans fyrsta sigur á mótinu, ári eftir að hann var handtekinn á sama móti. Golf 19. maí 2025 06:56
Scheffler tók forystuna fyrir lokadaginn Efsti kylfingur heimslistans, Scottie Scheffler, átti stórfínan laugardag og leiðir með þremur höggum fyrir lokadag PGA meistaramótsins í golfi. Golf 18. maí 2025 09:20
Kylfingum skipað að flýja þrumuveðrið Keppni á þriðja degi PGA-meistaramótsins í golfi hefur verið frestað vegna þrumuveðurs og kylfingum sagt að koma sér í skjól. Golf 17. maí 2025 13:15
Stálheppinn þegar hann sló í hrífu og hélt toppsætinu Það ríkir mikil spenna á PGA-meistaramótinu eftir tvo daga af fjórum. Venesúelabúinn Jhonattan Vegas er óvænt efstur en hann var stálheppinn á næstsíðustu holunni í gær. Suður-Kóreubúinn Si Woo Kim setti met þegar hann náði holu í höggi og er í toppbaráttunni. Golf 17. maí 2025 10:00
Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Óhætt er að segja að Írinn Shane Lowry hafi orðið bálreiður á öðrum degi PGA-meistaramótsins í golfi í dag. „Til fjandans með þennan stað,“ öskraði kylfingurinn í bræði sinni á áttundu brautinni. Golf 16. maí 2025 22:59
Mikilmennin misstíga sig á PGA-meistaramótinu Óvænt staða er á meðal toppmanna eftir fyrsta hring PGA-meistaramótsins í golfi. Sigurstranglegir kylfingar voru margir hverjir í brasi þegar mótið hófst á Quail Hollow-vellinum í Norður-Karólínu í gær. Golf 16. maí 2025 11:02
Fetar Spieth í fótspor McIlroy? Rúmur mánuður er síðan Rory McIlroy vann sér inn langþráðan grænan jakka með því að fagna sigri á Masters-mótinu í golfi. Með sigrinum kom McIlroy sér einnig í fámennan hóp. Hóp sem Jordan Spieth vonast til að komast í á komandi PGA-meistaramóti. Golf 14. maí 2025 17:15
Rosalegur ráshópur McIlroy PGA-meistaramótið í golfi hefst á morgun og mun gera það með látum. Skipuleggjendur mótsins hafa stillt svakalegri þrennu saman upp í ráshóp. Golf 14. maí 2025 13:01
Tveir Íslendingar gætu komist á US Open eftir dramatík hjá Dagbjarti Ísland mun eiga tvo fulltrúa á lokastigi úrtökumótsins fyrir US Open risamótið í golfi, eftir að Dagbjartur Sigurbrandsson kom sér þangað með hádramatískum hætti, í bráðabana. Golf 13. maí 2025 14:01
Syni Tigers mistókst að tryggja sér sæti á Opna bandaríska Charlie Woods, sonur golfgoðsagnarinnar Tiger Woods, náð ekki að upplifa drauminn sinn og tryggja sér sæti á Opna bandaríska risamótinu í golfi sem fram fer í næsta mánuði. Golf 9. maí 2025 19:15
Vinirnir vara Tiger við en honum er skítsama Ástarmál bandarísku golfgoðsagnarinnar Tiger Woods hafa verið á milli tannanna á fólki síðustu mánuði eftir að heimurinn frétti af nýju kærustunni hans. Golf 6. maí 2025 23:17
Íslensk hjón fóru holu í höggi á sama hring Hjónin Hólmfríður M. Bragadóttir og Páll Ingvarsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur unnu ævintýralegt afrek á laugardaginn þegar þeim tókst að fara holu í höggi, á sama hringnum. Golf 5. maí 2025 08:31
Gunnlaugur keppir á besta áhugamannamóti heims Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur gert það gott í golfinu vestanhafs síðustu misseri og fær nú ærið verkefni. Hann verður meðal þátttakenda á Arnold Palmer-mótinu, sterkasta áhugamannamóti heims, í byrjun júní. Golf 30. apríl 2025 15:15
Vilja komast í mjúkinn hjá Bandaríkjaforseta með að gefa honum stórmót Bresk stjórnvöld hafa sett þrýsting á skipuleggjendur Opna mótsins, elsta golfmóts í heimi og eitt fjögurra risamóta golfsins, að halda það á velli í eigu Bandaríkjaforseta í Skotlandi. Þau eru sögð leita allra leiða til þess að komast í mjúkinn hjá forsetanum. Golf 29. apríl 2025 10:33
Fjórtán ára strákur kominn í lokaúrtökumót fyrir Opna bandaríska Raymond ReBell er ungur og stórefnilegur kylfingur sem er kominn ótrúlega langt í baráttunni um farseðil á Opna bandaríska meistaramótið í golfi. Golf 27. apríl 2025 11:31
Fór holu í höggi á LPGA mótaröðinni Sænski kylfingurinn Madelene Sagström náði draumahöggi á bandarísku mótaröðinni í golfi en sú sænska hafði smá áhyggjur af því að það hefði ekki náðst á mynd. Golf 18. apríl 2025 15:02
Rory McIlroy vildi ekki tala við DeChambeau Rory McIlroy og Bryson DeChambeau voru saman í síðasta hollinu á Mastersmótinu í golfi á lokadeginum en annar þeirra sá til þess að samskiptin þeirra á milli voru engin. Golf 15. apríl 2025 11:32
Uppgjörið: Skotland - Ísland 1-3 | Fyrsti sigur Arnars Bergmanns við stjörnvölinn hjá íslenska liðinu Fótbolti