Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Breska blaðið The Times fullyrðir að af 18 meðlimum aganefndar FIFA hafi aðeins formaðurinn komið að ákvörðuninni um að gera Folarin Balogun kleift að spila áfram á HM, þrátt fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í 32-liða úrslitunum. Fótbolti 12. júlí 2026 21:34
Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Eftir að hafa fallið úr leik í 32-liða úrslitum á HM í fótbolta, með sárgrætilegu 3-2 tapi gegn Belgum í framlengdum leik, hefur allt þjálfarateymi Senegals nú verið rekið. Fótbolti 12. júlí 2026 18:46
„Mikil saga og mikill sársauki“ Töluverð eftirvænting er fyrir Falklandseyjaslag Englands og Argentínu í undanúrslitum á HM karla í fótbolta. Lionel Messi mun etja kappi við enska landsliðið í fyrsta sinn á ferlinum. Fótbolti 12. júlí 2026 15:16
Sýður á Svisslendingum Svisslendingar eru allt annað en ánægðir eftir að hafa fallið úr leik fyrir Argentínu í 8-liða úrslitum á HM karla í fótbolta í gær. Rautt spjald Breel Embolo skilur eftir óbragði í munni þeirra. Fótbolti 12. júlí 2026 14:32
Haaland eldri hraunar yfir dómarana Alf-Inge Haaland, faðir norsku stórstjörnunnar Erling Braut Haaland, lét dómarann Clement Turpin og samstarfsfélaga hans í 2-1 tapi Noregs fyrir Englandi á HM í gær heyra það á samfélagsmiðlum eftir leik. Fótbolti 12. júlí 2026 13:45
FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Það virðist flestum ljóst að boltinn breytti um stefnu af myndavélakapli í aðdraganda fyrra marks Englands við Noreg í 8-liða úrslitum á HM karla í fótbolta í gær. FIFA segir gögnin sýna annað. Fótbolti 12. júlí 2026 10:47
Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Ekki er hallað á neinn þegar fullyrt er að Jude Bellingham sé hetja gærdagsins á HM karla í fótbolta. Tvö mörk hans skutu Englendingum áfram í undanúrslit í fjórða sinn. Fótbolti 12. júlí 2026 10:00
Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Tíu Svisslendingar börðust til síðasta blóðdropa en urðu að játa sig sigraða gegn heimsmeisturum Argentínu í nótt, í framlengdum lokaleik 8-liða úrslita á HM í fótbolta. Fótbolti 12. júlí 2026 00:00
Bellingham sendi sára Norðmenn heim Englendingar eru komnir í undanúrslit á HM í Norður-Ameríku eftir 2-1 sigur gegn Norðmönnum í bráðfjörugum leik í 8-liða úrslitum. Norðmenn hafa aldrei komist svo langt á HM og geta haldið stoltir heim á leið en þeir voru reiðir yfir ákveðnum dómaraákvörðunum í leiknum. Fótbolti 11. júlí 2026 23:15
Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Norskir sparkspekingar spara ekki stóru orðin eftir að myndband virðist sýna að boltinn hafi farið í vír fyrir eina af sjónvarpsmyndavélunum á vellinum, í aðdraganda þess að Jude Bellingham jafnaði metin fyrir England gegn Noregi í kvöld. Fótbolti 11. júlí 2026 22:57
Hissa á útspili Haalands Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, segist lítið botna í ummælum Erlings Haaland í aðdraganda þess að enska liðið tekst á við Haaland og félaga í 8-liða úrslitum HM í fótbolta í kvöld. Fótbolti 11. júlí 2026 19:01
„Frakkar eiga að óttast okkur“ Lamine Yamal, leikmaður spænska landsliðsins, segir Frakka eiga að óttast þá spænsku fyrir leik liðanna í undanúrslitum á HM karla í fótbolta. Spánn tryggði sæti sitt með sigri á Belgum í gær. Fótbolti 11. júlí 2026 16:47
Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Þrátt fyrir slakt gengi á punktinum að undanförnu mun Lionel Messi halda áfram að taka vítaspyrnur Argentínu nema hann ákveði sjálfur að gera það ekki, samkvæmt Lionel Scaloni, þjálfara Argentínu. Fótbolti 11. júlí 2026 15:16
Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Jürgen Klopp hefur komist að samkomulagi við þýska knattspyrnusambandið, DFB, um að taka við karlalandsliði Þýskalands í fótbolta. Fótbolti 11. júlí 2026 14:30
Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Suður-afríski miðjumaðurinn Jayden Adams er látinn aðeins 25 ára að aldri, örfáum vikum eftir að hafa spilað með landsliði sínu á HM karla í fótbolta. Fótbolti 11. júlí 2026 13:46
Súrrealískt að spila golf með Trump Harry Kane, framherji og fyrirliði enska landsliðsins, staðfesti á blaðamannafundi í gær að hann hafi spilað golf með Donald Trump Bandaríkjaforseta. Hann lýsir því sem heldur „súrrelísrki upplifun“. Fótbolti 11. júlí 2026 12:17
Með Haaland á toppi vinsældalistans Fyrrverandi liðsfélagi Erling Haaland skemmtir sér vel yfir heimsmeistaramótinu í fótbolta þessa dagana. Lag sem þeir félagar gáfu út sem unglingar er á toppi allra vinsældalista hjá HM óðri norski þjóð. Fótbolti 11. júlí 2026 11:30
Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Töluverðar efasemdir voru um þátttöku Mikel Merino á heimsmeistaramótinu í fótbolta þegar hann fór í aðgerð vegna fótbrots í janúar. Þjálfari Spánar var aldrei í vafa. Og sá hefur þakkað traustið. Fótbolti 11. júlí 2026 10:01
Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Hver á að vera í miðri vörn Englendinga í leiknum á móti Noregi í kvöld? Sumir stuðningsmenn enska landsliðsins vilja sjá einn ákveðinn mann fá sinn fyrsta byrjunarliðsleik á þessu HM í þessum mikilvæga leik. Fótbolti 11. júlí 2026 09:30
Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Anthony Barry, aðstoðarþjálfara Englands, þykir gefa mjög heiðarlegt og beinskeytt mat á frammistöðu enska landsliðsins á þessu heimsmeistaramóti í fótbolta. Fótbolti 11. júlí 2026 06:02
Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Kylian Mbappé er sjóðandi heitur á heimsmeistaramótinu í fótbolta og er á góðri leið með að spila sinn þriðja úrslitaleik HM á ferlinum og vinna sinn annan Gullskó á HM. Hann spilar með Real Madrid en um tíma dreymdi Liverpool um að fá hann til sín. Fótbolti 10. júlí 2026 23:30
Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Velgengni Norðmanna á heimsmeistaramótinu í fótbolta var farin að pirra suma Svía en nú virðist norska knattspyrnulandsliðið hafa fengið nágranna sína yfir á vagninn til sín. Fótbolti 10. júlí 2026 22:46
Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Tap Brasilíu gegn Noregi í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins hefur vakið upp sterkar tilfinningar heima fyrir, ekki síst hjá brasilísku fótboltagoðsögninni Romario sem gagnrýnir landsliðsþjálfarann Carlo Ancelotti harðlega. Fótbolti 10. júlí 2026 22:00
„Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Mikel Merino tryggði Spánverjum sæti í undanúrslitaleik HM í fyrsta sinn í sextán ár og aðeins í annað skiptið í sögunni. Merino kom inn á völlinn sem varamaður undir lok leiksins og skoraði sigurmarkið aðeins tveimur mínútum síðar. Fótbolti 10. júlí 2026 21:31
Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Spænsku Evrópumeistararnir eru komnir í undanúrslitin á heimsmeistaramótinu í fótbolta eftir 2-1 sigur á Belgum í leik þjóðanna í átta liða úrslitunum í kvöld. Spánverjar mæta þar Frökkum. Fótbolti 10. júlí 2026 21:00
Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Enska knattspyrnusambandið rannsakar atvik eftir að lögregla var kölluð til á fjölmiðlaaðstöðu Englands á heimsmeistaramótinu. Fótbolti 10. júlí 2026 20:32
Norsku treyjurnar uppseldar Norðmenn hafa slegið í gegn á sínu fyrsta heimsmeistaramóti í næstum því þrjá áratugi enda heillað heiminn bæði með frammistöðu sinni innan sem utan vallar. Fótbolti 10. júlí 2026 19:32
Sadio Mané hættur í landsliðinu en vill vera í kringum liðið áfram Sadio Mané hefur ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna. Þetta staðfestir fyrrverandi stjarna Liverpool í yfirlýsingu til senegalska dagblaðsins Le Quotidien. Fótbolti 10. júlí 2026 18:02
Tekinn við Portúgal og gæti stýrt Ronaldo á nýjan leik Hinn 71 árs gamli Jorge Jesus hefur verið ráðinn nýr þjálfari portúgalska landsliðsins eftir vonbrigði liðsins á HM í fótbolta í Norður-Ameríku. Hann gæti þar með endurnýjað kynnin við Cristiano Ronaldo. Fótbolti 10. júlí 2026 15:31
Lést er hún fagnaði sigri Frakka Sautján ára stúlka lést í Frakklandi í gær þegar hún fagnaði sigri Frakka á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Erlent 10. júlí 2026 10:10