Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Það segir sitt um franska landsliðið að þó að Ousmane Dembélé hafi unnið Ballon d‘Or síðasta haust þá er hann ekki aðalmaðurinn í liðinu. Hlutverk hans hefur þó verið stórt á HM og þessi 29 ára sóknarmaður er kominn í þriggja manna elítuhóp í sögu franska landsliðsins. Fótbolti 10. júlí 2026 10:02
Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Mikið hefur verið um vítaklúður á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Sumir segja að það sé vegna þess að leikmenn reyna að hika í tilhlaupinu sínu til að sjá hvert markmaðurinn fer en það endar með því að trufla leikmennina meira en markmennina. Fótbolti 10. júlí 2026 08:03
Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands England er í vandamálum með varnarmenn en meiðsli og leikbönn setja strik í reikninginn. Einnig er Declan Rice, sem er einn af lykilmönnum enska liðsins, veikur. Fótbolti 10. júlí 2026 07:31
Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Maður var í gær stöðvaður í umdæmi lögreglustöðvar að Dalvegi, sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti, þar sem lögregla sá að hann horfði á HM-leik undir stýri. Innlent 10. júlí 2026 06:31
Lamine Yamal segir „ótrúlegt“ að sjá Messi enn vera að skína á HM Spænska ungstirnið Lamine Yamal segist vera himinlifandi með að sjá Lionel Messi sanna að aldur er bara tala hjá sumum og halda áfram að leika aðalhlutverk á þessu heimsmeistaramóti. Fótbolti 10. júlí 2026 06:30
„Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Norski framherjinn Erling Braut Haaland gefur sínu liði ekki mikla möguleika á því að vinna heimsmeistaramótið og sagði alla pressuna vera á enska landsliðinu fyrir átta liða úrslitin á laugardag. Fótbolti 9. júlí 2026 23:02
Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Frakkar voru fyrstir til að tryggja sér sæti í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta en það gerðu þeir með sannfærandi 2-0 sigri á Marokkó í fyrsta leik átta liða úrslitanna í kvöld. Fótbolti 9. júlí 2026 21:59
Ekkert símtal frá Trump núna og Quansah í tveggja leikja bann Jarell Quansah, leikmaður enska fótboltalandsliðsins, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann á heimsmeistaramótinu eftir rauða spjaldið sem hann fékk í leiknum gegn Mexíkó. Fótbolti 9. júlí 2026 17:21
Sérlega gleðileg jól í ár og langt hlé á enda Jólin í ár verða fullkomin fyrir íþróttaáhugafólk eins og rætt var um í Besta sætinu í dag. Stjarnan og Vestri eiga ansi ólík verk fyrir höndum í Evrópukeppnum í kvöld og Besta deild kvenna hefst að nýju eftir langt hlé. Þá eru 8-liða úrslitin að hefjast á HM. Sport 9. júlí 2026 15:03
Ætlar að gefa frí ef England vinnur HM Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, gefur til kynna að mánudagur eftir úrslitaleik HM verði frídagur, fari svo að England vinni mótið. Fótbolti 9. júlí 2026 14:32
Svarar ásökunum Egypta um svindl: „Ekki hægt að hafa áhrif á dómgæsluna“ Alþjóða knattspyrnusambandið hefur brugðist við ásökunum egypska knattspyrnusambandsins um að brögð hafi verið í tafli þegar Argentína komst í átta liða úrslit HM á kostnað Egyptalands. Fótbolti 9. júlí 2026 12:32
Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Erling Haaland hefur vakið mikla athygli í kringum yfirstandandi heimsmeistaramót. Ekki síður utan vallar en innan hans. Í vikunni sýndi hann uppstoppuð nagdýr sem hann hefur komið upp á hótelherbergi sínu. Fótbolti 9. júlí 2026 11:30
Ofurtölvan telur 16,5 prósenta líkur á að fótboltinn komi heim Samkvæmt útreikningum ofurtölvu tölfræðiveitunnar Opta eru Frakkar líklegastir til að standa uppi sem sigurvegarar af þeim liðum sem eru enn með á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Fótbolti 9. júlí 2026 10:30
Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Marokkó verður án stjörnuframherja liðsins, Ismael Saibari, er liðið mætir Frökkum í fyrsta leik 8-liða úrslita á HM í kvöld. Þjálfari liðsins staðfesti tíðindin í gær. Fótbolti 9. júlí 2026 10:00
Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Andrew Giuliani, formaður starfshóps Hvíta hússins vegna heimsmeistaramótsins í fótbolta, hefur varið afskipti Donalds Trump Bandaríkjaforseta að því að fá banni Folarins Balogun aflétt. Giuliani segir að dómarinn sem rak bandaríska framherjann út af sé vafasamur pappír. Fótbolti 9. júlí 2026 09:04
Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Paragvæska þingkonan Celeste Amarilla hefur ráðist aftur að Kylian Mbappé, fyrirliða franska fótboltalandsliðsins. Eftirmyndir af Mbappé hafa verið brenndar í Paragvæ. Fótbolti 9. júlí 2026 08:02
Deschamps alveg sama þótt Argentínumenn dæmi í kvöld Didier Deschamps, þjálfari franska fótboltalandsliðsins, kippir sér lítið upp við það þótt dómarar leiksins gegn Marokkó í átta liða úrslitum á HM komi frá Argentínu. Fótbolti 9. júlí 2026 07:30
Bara einn í flugvélinni heim af HM Brasilíumenn eru úr leik á HM eftir tap á móti Norðmönnum í sextán liða úrslitunum og það var ekki mikill áhugi hjá leikmönnum liðsins að fljúga aftur heim til Brasilíu. Sport 9. júlí 2026 07:02
Haaland orðinn stærri en Manchester City Það er oft talað um að einn leikmaður liðs sé aldrei stærri en liðið sem hann spilar með en stærsta stjarna Manchester City er bókstaflega orðin stærri en enska úrvalsdeildarfélagið sitt. Enski boltinn 8. júlí 2026 23:15
Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Karlalandslið Bandaríkjanna í fótbolta gerði flotta hluti á heimsmeistaramótinu og velgengni þeirra skilaði knattspyrnusambandi þeirra sextán milljónum dala, meira en tveimur milljörðum íslenskra króna, í verðlaunafé. Það eru þó ekki aðeins karlarnir sem græða. Fótbolti 8. júlí 2026 22:31
Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Lionel Messi segir að markfögnuðurinn sinn hafi verið dæmi um „mikinn létti“ fyrir sig eftir að hafa klúðrað vítaspyrnu fyrr í leiknum. Fótbolti 8. júlí 2026 22:01
Justin Bieber kemur fram í hálfleik á úrslitaleik HM Justin Bieber bætist í hóp þeirra stjarna sem sjá um hálfleikssýningu heimsmeistaramótsins í fótbolta sem verður í anda Super Bowl. Bieber bætist þar með í hóp aðalatriða á borð við Madonnu, Shakiru og BTS, að því er FIFA tilkynnti í kvöld. Fótbolti 8. júlí 2026 20:59
Norska landsliðið flúði hótelið sitt Norðmenn ákváðu að flytja af hótelinu sem þeim hafði verið úthlutað fyrir komandi leik sinn á heimsmeistaramótinu í Miami. Fótbolti 8. júlí 2026 19:24
Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Jordan Henderson er kominn úr aðgerð og hefur snúið aftur í bækistöðvar landsliðsins en enski landsliðsmiðjumaðurinn handleggsbrotnaði þegar hann fagnaði sigri Englands í 16-liða úrslitum. Fótbolti 8. júlí 2026 19:11
Segir að læknir norska landsliðsins sé mjög upptekinn Norski landsliðsmarkvörðurinn Örjan Håskjold Nyland hafði tíma til að mæta í spjallþátt í sjónvarpi á miðju heimsmeistaramóti. Ein af hetjum norska liðsins var gestur í bandaríska sjónvarpsþættinum „After Hours with James Corden“. Fótbolti 8. júlí 2026 18:10
Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Eins og margir sáu komst Argentína í 8-liða úrslit á HM í gær eftir lygilegan 3-2 endurkomusigur gegn Egyptum. Fótbolti 8. júlí 2026 17:45
FIFA hafnaði áfrýjun Frakka FIFA vísaði áfrýjun franska knattspyrnusambandsins á gulu spjaldi Michaels Olise frá. Þetta staðfesti Didier Deschamps, landsliðsþjálfari, í dag. Fótbolti 8. júlí 2026 17:01
Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Fifa hefur sett af stað rannsókn vegna kynþáttahaturs í garð áhrifavaldsins IShowSpeed frá stuðningsmanni Argentínu. Atvikið gerðist í leik Argentínu og Grænhöfðaeyja í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Fótbolti 8. júlí 2026 16:17
Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Egypska knattspyrnusambandið hefur farið þess á leit við FIFA að dómararnir sem dæmdu leikinn gegn Argentínu verði sendir heim af heimsmeistaramótinu. Fótbolti 8. júlí 2026 14:18
Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, gaf lítið fyrir það að Gianni Infantino hafi haft áhrif á afléttingu banns Folarin Balogun, framherja bandaríska landsliðsins, á miðju heimsmeistaramóti. Fótbolti 8. júlí 2026 12:01