HM í fótbolta 2026

HM í fótbolta 2026

HM í fótbolta karla fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó dagana 11. júní til 19. júlí 2026.

Leikirnir




    Fréttamynd

    Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum

    Spánn komst í kvöld áfram í 8-liða úrslit á HM karla í fótbolta eftir dramatískan 1-0 sigur á Portúgal í slag um Íberíuskaga í Dallas í Texas. Mikel Merino var hetja Spánverja í blálok leiks.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Infantino gefur út yfir­lýsingu vegna af­skipta Trumps

    Gianni Infantino, forseti FIFA, segir sjálfstæði og óhæði dómsvalda hjá sambandinu vera algjört. Hann, og ekki síður Donald Trump Bandaríkjaforseti, hafi ekki haft áhrif á ákvörðun þess efnis að leikbann Folarin Balogun fyrir leik við Belgíu í kvöld hafi verið fellt niður.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir að­gerðina

    Líkt og langflestir Norðmenn þá fylgdist Mette-Marit, eiginkona Hákonar krónprins, spennt með leik Noregs og Brasilíu á HM í fótbolta sem fram fór í gær og lauk með frækilegum sigri Norðmanna. Norska konungshöllin birti í morgun mynd af Mette-Marit, þeirri fyrstu sem birt er eftir að hún gekkst undir lungnaígræðslu í síðasta mánuði.

    Lífið
    Fréttamynd

    Frækinn sigur Eng­lendinga á Azte­ca

    Jude Bellingham skoraði tvö mörk þegar England tryggði sér sæti í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta með 2-3 sigri á Mexíkó á Azteca-leikvanginum í nótt.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Markavélin Haaland sendi Brassana heim af HM

    Norðmenn hafa aldrei tapað fyrir Brasilíumönnum inni á fótboltavellinum og það breyttist ekki í kvöld. Noregur sendi Brassana heim af HM með 2-1 sigri í leik þjóðanna í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Gagn­rýnir á­kvörðun FIFA: „Ég vissi ekki að þetta væri 1. apríl“

    Rudi Garcia, landsliðsþjálfari Belgíu, líkti ákvörðun FIFA um að leyfa bandaríska framherjanum Folarin Balogun að spila í 16-liða úrslitum gegn gestgjöfunum við að kalla 5. júlí „1. apríl“, eftir að eins leiks banni leikmannsins var aflétt. Balogun hafði fengið beint rautt spjald í 2-0 sigri þeirra á Bosníu og Hersegóvínu í 32-liða úrslitum.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Segja hegðun Paragvæ til skammar

    Paragvæ sýndi ekki sína bestu hlið í leik liðsins gegn Frakklandi í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í gær. Sérfræðingar segja að framkoma leikmanna hafi verið til skammar.

    Fótbolti