Neyðarboð úr Fljótavík og varðskip á leiðinni Neyðarboð frá tveimur göngumönnum í vanda í Fljótavík fyrir vestan barst laust eftir klukkan níu í morgun. Innlent 27. júlí 2019 12:26
Jákvæð áhrif Hvalárvirkjunar Hvalárvirkjun er lykilatriði í uppbyggingu raforkukerfisins á Vestfjörðum. Þetta er ekki mín skoðun byggð á tilfinningum, heldur grjóthörð staðreynd fengin úr nýlegri skýrslu Landsnets, Tengipunktur við Ísafjarðardjúp og tenging Hvalár. Skoðun 26. júlí 2019 07:00
„Þetta er barnaskemmtun og hann var bara ekki í ástandi“ Tónlistarmanninum Gísla Pálma var meinað að stíga á stokk á Dýrafjarðardögum. Innlent 23. júlí 2019 11:15
Eldur í timburhúsi á Ísafirði: „Ég var mest fegin að hundurinn í búrinu komst heill frá“ Berglín Mist Kristinsdóttir, íbúi á Ísafirði, og eiginmaður hennar voru meðal þeirra fyrstu sem urðu vör við eldinn. Hún sagði þau hafa séð smá reyk um sexleytið í kvöld og töldu þau fyrst að um kamínu hafi væri að ræða. Innlent 21. júlí 2019 22:41
Ærslabelgurinn líklega blásinn upp á morgun Minjastofnun hefur gefið leyfi á að viðhaldsframkvæmdir tengdar belgnum fái að fara fram, svo lengi sem ekkert frekara jarðrask hlýst af þeim. Innlent 16. júlí 2019 13:27
Allt loft úr ísfirska ærslabelgnum Minjastofnun hefur farið þess á leit við Ísafjarðarbæ að viðgerðir á svokölluðum ærslabelg á Eyrartúni verði stöðvaðar. Innlent 16. júlí 2019 10:34
Efast um tölurnar í dómnum Bróðir fatlaðs manns sem var fórnarlamb þjófnaðar af hendi forstöðumanns hjá Ísafjarðarbæ dregur í efa að upplýsingarnar sem koma fram í dómi héraðsdóms yfir forstöðumanninum séu réttar. Innlent 13. júlí 2019 07:00
Ungur drengur brenndist í Aðalvík á Hornströndum Björgunarskipið Gísli Jóns frá Ísafirði hefur sinnt þremur útköllum síðastliðinn sólarhring. Nú síðast í Aðalvík eftir að tilkynning barst um að ungur drengur hafi brennst. Þá aðstoðuðu björgunarsveitir í Öræfum ferðamann sem hafði slasast og lent í sjálfheldu við Svínafellsjökul í dag. Innlent 12. júlí 2019 17:43
Línubátur í togi til lands eftir að bilun kom upp í stýrisbúnaði Bilun kom upp í stýrisbúnaði 15 tonna línubáts norður af Hornströndum rétt um klukkan 19 í kvöld. Áhöfnin átti því erfitt með að stýra bátnum, sem gerður er út frá Bolungarvík, og var því kallað eftir aðstoð björgunarsveita. Innlent 11. júlí 2019 21:43
Strandveiðibátur strandaði í Súgandafirði Björgunarsveit á Suðureyri var kölluð út um hálf fimm í dag vegna báts sem sigldi í strand utarlega í Súgandafirði. Innlent 10. júlí 2019 17:31
Bæjarhátíðir haldnar um land allt Nú fer í hönd ein stærsta ferðahelgi ársins en nóg er um að vera víða um land og eitthvað að finna fyrir alla fjölskylduna. Heilar sjö bæjarhátíðir fara fram helgina 6-.7. júlí í ár. Lífið 5. júlí 2019 14:00
Milljónatuga lekatjón í sundlauginni Lekatjón á þaki sundlaugar Flateyrar er metið á 53,3 milljónir króna. Innlent 5. júlí 2019 06:15
Nafn starfsmanns Vegagerðarinnar sem lést Maðurinn sem lést af slysförum þann 27. júní síðastliðinn þegar veghefill fór út af veginum upp á Ingjaldssandsvegi, Sandsheiði í Gerðhamarsdal, á Vestfjörðum hét Guðmundur S. Ásgeirsson. Innlent 3. júlí 2019 15:59
Stal í þrjú ár af skjólstæðingum sínum á velferðarsviði Starfsmaður á velferðarsviði Ísafjarðarbæjar, kona á fimmtugsaldri, hefur verið dæmd í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt í opinberu starfi og peningaþvætti. Innlent 3. júlí 2019 13:01
Björgunarsveit í tvö útköll í Ísafjarðardjúpi Björgunarsveit á Ísafirði var kölluð út í tvígang seinni partinn í dag vegna slysa í Ísafjarðardjúpi. Innlent 29. júní 2019 21:49
Vill verða ein af þeim bestu Fyrir 12 árum lenti Arna Sigríður Albertsdóttir í skíðaslysi sem breytti lífi hennar. Hún lét mótlætið ekki stöðva sig og stundar handahjólreiðar af krafti í dag. Vellíðan sem fylgir íþróttinni veitir henni innblástur í að ná lengra. Lífið 29. júní 2019 21:00
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan mann í Látravík TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, var kölluð út á tólfta tímanum í dag vegna slasaðs manns við Hornbjargsvita í Látravík. Innlent 29. júní 2019 15:25
Banaslys á Ingjaldssandsvegi Stjórnandi veghefils sem var við störf á Ingjaldssandvegi á Sandheiði í Gerðhamradal á Vestfjörðum lést í gær þegar veghefillinn hafnaði utan vegar. Innlent 28. júní 2019 10:29
Vélarvana bátur við Maríuhorn í Jökulfjörðum Búið er að koma farþegum bátsins heilum og höldnu aftur til Ísafjarðar. Innlent 26. júní 2019 17:21
Rannsakar reykvískar rætur sínar Framundan er síðasta sýningarhelgi sýningar Gunnars Jónssonar GRÖF í D-sal Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu. Menning 20. júní 2019 15:14
Kröfu um ógildingu leyfis til sjókvíaeldis í Dýrafirði hafnað Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur kveðið upp úrskurð og hafnað kröfu um að ógilda ákvörðun Matvælastofnunar frá 22. desember 2017 um að veita Artic Sea Farm hf. rekstrarleyfi fyrir 4.000 tonna ársframleiðslu á laxi eða regnbogasilungi í sjókvíum í Dýrafirði. Innlent 18. júní 2019 11:24
Lýðháskólinn á Flateyri vill ekki líkjast bóknámsskólum Umsóknarfrestur við Lýðháskólann á Flateyri rennur út 15. júní en skólinn fagnar fjölbreytileikanum og styðst ekki við hefðbundna kennsluskrá. Lífið 15. júní 2019 08:15
Björgunin á Ísafirði: „Hann hékk þarna á klettasyllu og gat sig hvergi hreyft“ Mennirnir höfðu orðið viðskila. Erfitt reyndist að staðsetja þá nákvæmlega en þeir voru í um sjö hundruð metra hæð. Innlent 9. júní 2019 10:35
Þyrlan kölluð út vegna manna í sjálfheldu í Naustahvilft Voru 700 metra yfir sjávarmáli og í miklum bratta. Innlent 9. júní 2019 07:52
Ólafur Ragnar kaupir æskuheimili sitt á Ísafirði Um lítið annað rætt á Ísafirði þessa dagana. Innlent 5. júní 2019 11:30
Ísafjarðarbær þarfnast ekki fleiri vina í bili Bæjarstjóri Ustrzyki Dolne í Póllandi óskaði formlega eftir vinabæjarsamstarfi við Ísafjarðarbæ. Vitnaði í J.K. Rowling í bréfinu og fór með himinskautum í lýsingum á fjallabænum. Innlent 5. júní 2019 07:00
Leita leiða til að fjármagna bætt aðgengi að Ísafjarðarbíói fyrir hreyfihamlaða Umræða um aðgengi hreyfihamlaðra að Alþýðuhúsi Ísfirðinga hefur verið brennidepli í dag eftir að fjórir ungir Vestfirðingar vöktu athygli á málinu. Innlent 30. maí 2019 21:00
Færeyski forstjórinn bætti rör frítt Björgunarskipi Ísfirðinga, Gísla Jóns, var fagnað í nýrri heimahöfn sinni um hádegi í gær. Það kom frá Bodö í Noregi. Stýrimaður á heimstíminu var Ásgeir Guðbjartsson. Innlent 28. maí 2019 06:00
Dúxinn á Ísafirði kom öllum á óvart með að bresta í söng Pétur Ernir Svavarsson kom foreldrum sínum í opna skjöldu. Innlent 27. maí 2019 11:21
Tíu sinnum líklegra að íbúar á hættusvæði C deyi í snjóflóði en í bílslysi Enn á eftir að koma upp fullnægjandi snjóflóðavörnum sem verja myndu um 130 íbúðir á Austurlandi og 80 íbúðir á Vestfjörðum þar sem mesta hættan stafar af ofanflóðum, á hættusvæði C. Innlent 9. maí 2019 19:45