„Finnst að við ættum að vera með einn til tvo sigra í viðbót“ Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, var að vonum sáttur með sigur síns liðs gegn Haukum nú í kvöld. KR-ingar léku við hvern sinn fingur í fyrri hálfleik en áttu afleitan kafla í þriðja leikhluta þar sem Haukum tókst að saxa vel á forskot KR. Körfubolti 12. desember 2024 22:34
Uppgjörið: Haukar-KR 88-97 | Tóti Túrbó frábær á Ásvöllum KR-ingar sóttu sigur í Ólafssal í kvöld og unnu níu stiga sigur, 97-88. Haukar höfði unnið Val í síðasta leik en áttu fá svör framan af á móti Vesturbæingum í kvöld. Körfubolti 12. desember 2024 21:03
Hefur styrkt KR um 300 milljónir Róbert Wessman stofnandi og forstjóri lyfjafyrirtækisins Alvotech hefur á síðustu árum styrkt íþróttastarf KR í gegnum fyrirtæki sín um tæplega 300 milljónir króna. Viðskipti innlent 11. desember 2024 21:57
Ást er: Sigtaði sinn mann út á vellinum „Ég var hérinn í byrjun þegar við vorum að kynnast þar sem ég vildi að við myndum strax byrja saman. Gyrðir var eins og skjaldbaka sem hélt mér á jörðinni og leyfði hlutunum að gerast á sínum hraða,“segir Þorbjörg Kristinsdóttir, áhrifavaldur og kennaranemi, í samtali við Makamál, um samband hennar og Gyrðis Hrafns Guðbrandssonar knattspyrnumanns og fyrirtækjaeiganda. Lífið 11. desember 2024 20:00
„Megum ekki gleyma að þetta er bara ungur strákur“ Stockport County tilkynnti í dag um að félagið hafi keypt íslenska framherjann Benóný Breka Andrésson frá KR en markakóngur Bestu deildarinnar skrifar undir þriggja og hálfs árs samning við enska C-deildarfélagið. Enski boltinn 11. desember 2024 17:35
Benóný Breki orðinn leikmaður Stockport Enska C-deildar liðið Stockport County hefur keypt sóknarmanninn Benóny Breka Andrésson frá Bestu deildar liði KR. Þetta staðfestir enska félagið í tilkynningu. Fótbolti 11. desember 2024 17:04
„Dugnaðurinn og viljinn í liðinu var rosalegur“ Jakob Sigurðarson var sáttur með sína menn í KR, sem sóttu eins stigs sigur á Egilsstaði í sextán liða úrslitum bikarkeppni karla í körfubolta. Lokatölur 72-73 í leik þar sem KR lenti sautján stigum undir. Körfubolti 8. desember 2024 21:17
Eiður Gauti skoraði tvö á Mosfellsbræðurna í fyrsta leik Tveir stórsigrar unnust í fyrstu leikjum Bose-bikarsins í fótbolta í dag. Víkingur og KR unnu sína leiki örugglega. Íslenski boltinn 7. desember 2024 15:23
Bankastarfsmaðurinn sem fór úr 3. deild í KR Eiður Gauti Sæbjörnsson er nafn sem fáir knattspyrnuunnendur könnuðust við áður en hann hóf að leika fyrir HK í Bestu deildinni í sumar. Það er ekki furða enda hefur sá leikið fyrir Ými í 3. og 4. deild allan sinn feril. Nýlega færði Eiður sig um set og er nýjasti leikmaður KR. Íslenski boltinn 7. desember 2024 09:00
„Lið með hæfileikana til að spila í úrslitakeppni“ Borche Ilievski fagnaði vel og innilega eftir sigur ÍR á KR í kvöld. Þetta er þriðji sigur ÍR í röð og annar sigurinn eftir að Borche tók við stjórn ÍR-liðsins. Körfubolti 5. desember 2024 22:00
Uppgjörið: KR - ÍR 95-97 | Þriðji sigurinn í röð eftir dramatík ÍR vann sinn þriðja sigur í röð í Bónus-deildinni í körfuknattleik þegar þeir lögðu KR 97-95 í miklum spennuleik í Vesturbænum. Körfubolti 5. desember 2024 21:06
Fyrsta skóflustunga tekin og KR spilar á gervigrasi Í dag verður fyrsta skóflustunga tekin á Meistaravöllum, heimavelli KR-inga, þar sem leggja á gervigras í stað grasvallarins sem þetta stórveldi í íslenskum fótbolta hefur spilað heimaleiki sína á. Íslenski boltinn 5. desember 2024 13:02
Gaz-leikur Pavels: ÍR-ingar horfðu á þetta og ég held að þeir hafi móðgast Pavel Ermolinskij er kominn aftur á stjá eftir landsleikjahlé en hann ætlar áfram að taka einn leik fyrir í hverri umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í vetur. Körfubolti 5. desember 2024 09:02
Ákvað að yfirgefa KR Króatíski körfuboltamaðurinn Dani Koljanin hefur ákveðið að nýta sér ákvæði í samningi sínum við KR og yfirgefa félagið. Körfubolti 2. desember 2024 19:32
Óskar Hrafn opnar sig um Haugesund: Best að falla á eigið sverð Óskar Hrafn Þorvaldsson entist stutt sem þjálfari norska úrvalsdeildarfélagsins Haugesund og hefur lítið viljað opna sig um óvænt brotthvarf sitt frá félaginu fyrr en nú. Fótbolti 30. nóvember 2024 13:16
Uppgjörið: Höttur - KR 85-88 | Lipur sókn skilaði KR sigri á Hetti KR-ingar unnu þriggja stiga sigur gegn Hetti, 88-85, á Egilsstöðum í fyrsta leik kvöldsins í Bónus-deild karla í körfubolta. Körfubolti 29. nóvember 2024 20:39
Tólf leikmenn komnir til KR KR kynnti þrjá nýja leikmenn karlaliðs félagsins í fótbolta til leiks í gær. Alls hefur KR fengið tólf nýja leikmenn til sín fyrir næsta tímabil. Íslenski boltinn 25. nóvember 2024 12:02
Geir fer aftur í Vesturbæinn Geir Þorsteinsson mun taka við starfi hjá Knattspyrnufélagi Reykjavíkur um áramótin. Hann er ráðinn af knattspyrnudeild félagsins sem rekstrarstjóri. Íslenski boltinn 25. nóvember 2024 10:01
Atli og Eiður í KR KR-ingar tilkynntu í kvöld um tvö félagaskipti en þeir Atli Hrafn Andrason og Eiður Gauti Sæbjörnsson eru báðir á leið í Vesturbæinn frá HK. Fótbolti 24. nóvember 2024 21:46
Eyþór yfirgefur KR Sóknarmaðurinn Eyþór Aron Wöhler hefur yfirgefið herbúðir KR. Hann lék 22 leiki með liðinu í Bestu deildinni og Mjólkurbikarnum á síðasta tímabili og skoraði þrjú mörk. Íslenski boltinn 22. nóvember 2024 13:42
Uppgjörið: Valur - KR 101-94 | Sálarnærandi sigur Íslandsmeistaranna Valur og KR mættust í kaflaskiptum leik í 7. umferð Bónus deildar karla í körfuknattleik í N1 höllinni fyrr í dag. KR byrjaði mun betur en frábær þriðji leikhluti dugði Val til að innbyrða 101-94 sigur eftir æsilegar lokamínútur. Körfubolti 14. nóvember 2024 18:31
„Við þurfum að fara að vinna leiki“ „Þetta verður alvöru leikur í kvöld,“ segir Kári Jónsson, leikmaður Vals. Hans menn taka á móti KR að Hlíðarenda klukkan 19:15 í Bónus deild karla. Körfubolti 14. nóvember 2024 11:31
„Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Axel Óskar Andrésson mun ekki leika áfram með KR í Bestu deild karla í knattspyrnu. Hann hefur nú formlega kvatt liðið á samfélagsmiðlum, ber hann félaginu og KR-ingum í heild sinni söguna vel. Íslenski boltinn 12. nóvember 2024 21:15
Þurfti aðeins nokkrar sekúndur til að tryggja liði sínu áfram í undanúrslitin Í Kviss á laugardaginn mættust KR og Fram í átta liða úrslitunum. Þau Gísli Marteinn Baldursson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir skipa lið KR. Lífið 12. nóvember 2024 14:00
Uppgjörið: KR - Njarðvík 86-80 | Fyrsti sigur KR-inga á heimavelli KR batt enda á fimm leikja sigurgöngu Njarðvíkinga. Heimamenn unnu sex stiga sigur 86-80. Þetta var fyrsti sigur KR á heimavelli í Bónus deildinni. Körfubolti 8. nóvember 2024 21:10
Sunderland meðal þeirra liða sem horfa til Benóný Breka Benóný Breki Andrésson, markakóngur Bestu deildar karla í knattspyrnu á nýafstöðu tímabili, er einn eftirsóttasti biti deildarinnar sem stendur. Enska B-deildarliðið Sunderland er sagt meðal liða sem vilja fá hann í sínar raðir. Íslenski boltinn 8. nóvember 2024 19:17
„Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Spennandi tímar eru í vændum hjá KR að mati Baldurs Sigurðssonar og Atla Viðars Björnssonar. Þeir segja að KR-ingar megi alveg láta sig hlakka til komandi tíma hjá félaginu. Íslenski boltinn 8. nóvember 2024 09:32
Komu KR upp um deild og stýra liðinu áfram Knattspyrnufélag Reykjavíkur staðfesti í dag að Gunnar Einarsson og Ívar Ingimarsson yrðu áfram þjálfarar kvennaliðs félagsins sem leikur í Lengjudeild kvenna á næsta ári. Þeir félagar stýrðu liðinu upp úr 2. deildinni í ár og fá nú tækifæri til að gera gott betur. Íslenski boltinn 5. nóvember 2024 18:45
Hætti ungur í landsliðinu og fór beint á Prikið Theodór Elmar Bjarnason hætti tvítugur að spila fyrir íslenska karlalandsliðið eftir að hafa verið settur á varamannabekkinn. Hann fór beinustu leið á Prikið í afmæli hjá bróður sínum. Íslenski boltinn 4. nóvember 2024 14:02
Skrautlegur ferill á enda: Kaflaskil þegar hann kynntist konunni Theodór Elmar Bjarnason batt enda á 20 ára leikmannaferil sinn í fótboltanum síðustu helgi. Hans síðasti leikur var 7-0 sigur KR á HK í Bestu deild karla. Ferill Elmars dró hann víða um heim og óhætt að segja að hann hafi verið viðburðarríkur. Íslenski boltinn 3. nóvember 2024 08:02