Sögðu Val, FH og KR hafa gert verstu kaupin Að mati Kristjáns Óla Sigurðssonar gerði Valur verstu kaupin í Bestu deild karla fyrir tímabilið. Mikael Nikúlásson sagði hins vegar að FH og KR hefðu keypt köttinn í sekknum. Íslenski boltinn 28. júlí 2022 09:01
Sjáðu markasúpuna í Vesturbæ og fjögur mörk Framara Tveir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld. Í þeim voru skoruð tíu mörk. Íslenski boltinn 26. júlí 2022 10:00
Umfjöllun,viðtöl og myndir: KR 3-3 Valur | Stórskemmtun í fyrsta leik Óla Jó KR og Valur áttust við í stórveldaslag í Vesturbænum í 14. umferð Bestu-deildar karla. Eftir rólegan fyrri hálfleik sprakk leikurinn út í þeim síðari og fjögur mörk voru skoruð á tíu mínútna kafla. Bæði lið gátu verið svekkt með jafnteflið en leikar enduðu með 3-3 jafntefli, í fyrsta leik Ólafs Jóhannessonar í endurkomu sinni til Vals. Íslenski boltinn 25. júlí 2022 22:22
Lýsir yfir stuðningi við Rúnar Kristinsson Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, ber félagsmönnum baráttuanda í brjóst í pistli sem birtist á heimasíðu félagsins í dag. Páll lýsir þar yfir eindregnum stuðningi við Rúnar Kristinsson, þjálfara karlaliðs félagsins í fótbolta, og þjálfarateymi hans. Fótbolti 25. júlí 2022 12:34
Utan vallar: Hvernig ertu í lit? „Þegar ég sé svona gæja eins og þig, finnst mér öll veröldin breyta um svip. Þú hefur þannig áhrif á mig, að ég fell í yfirlið“ sungu Dúkkulísurnar á níunda áratugnum í laginu Svarthvíta hetjan mín sem hefur reglulega verið leikið af stuðningsmönnum sem óður til hetjanna í liði KR þegar best lætur. Íslenski boltinn 20. júlí 2022 11:31
„Við erum ekki betri en þetta eins og staðan er“ „Gríðarlega vonsvikinn, við vorum ömurlega lélegir. Skömminn skárri í seinni hálfleik en mjög slakir í fyrri hálfleik, þorðum ekki að spila og vorum ekki líkir sjálfum okkur ef við getum verið eitthvað,“ sagði svekktur Rúnar Kristinsson að loknu 1-1 jafntefli KR og Fram í lokaleik 13. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta. Íslenski boltinn 19. júlí 2022 21:30
Umfjöllun og viðtöl: KR - Fram 1-1 | Allir svekktir með jafntefli í Vesturbænum KR og Fram skildu jöfn með einu marki gegnu einu þegar liðin mættust í lokaleik 13. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta á Meistaravöllum í kvöld. Segja má að hvorugt lið fari sátt að sofa eftir leik kvöldsins. Íslenski boltinn 19. júlí 2022 21:05
KR og Aberdeen vinna saman KR-ingar hafa skrifað undir samstarfssamning til tveggja ára við skoska knattspyrnufélagið Aberdeen. Samningurinn felur í sér ýmsa ráðgjöf og þjónustu fyrir sigursælasta félag íslenskrar knattspyrnusögu. Íslenski boltinn 19. júlí 2022 13:02
Stjarnan semur við Adama Darboe „Það verða ekki bara danskir dagar í Hagkaup næsta vetur,“ segir í tilkynningu Stjörnunnar sem hefur öflugan liðsstyrk fyrir næsta tímabil frá KR-ingum í Dananum Adama Darboe. Körfubolti 16. júlí 2022 07:02
KR spilaði heimaleik á útivelli: Stuðningsmenn Pogoń settu lit sinn á leikinn KR vann 1-0 sigur á pólska liðinu Pogoń í síðari leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu. Stuðningsmenn gestanna settu skemmtilegan svip á leikinn en nokkur hundruð mættu á Meistarvelli til að sjá lið sitt tapa. Segja má að þeir hafi verið vægast ósáttir með úrslit leiksins. Fótbolti 15. júlí 2022 15:01
Ísland upp um fimm sæti og fjórða Evrópusætið í sjónmáli Gott gengi íslenskra félagsliða í Evrópukeppnum í knattspyrnu undanfarið hefur skilað landinu upp um fimm sæti á styrkleikalista UEFA. Íslenski boltinn 15. júlí 2022 13:30
Sjáðu sýningu Breiðabliks og sigurmark KR Breiðablik og KR unnu bæði sína leiki í Sambandsdeild Evrópu í gærkvöld. Breiðablik lagði Santa Coloma frá Andorra 4-1 og flýgur áfram í næstu umferð á meðan KR er úr leik þrátt fyrir 1-0 sigur á heimavelli gegn Pogón Szczecin. Mörkin úr báðum leikjum má sjá hér að neðan. Fótbolti 15. júlí 2022 09:31
Rúnar: Þessi sigur gefur vonandi sjálfstraust fyrir næstu leiki Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, tók heilmargt jákvætt út úr sigri KR gegn Pogon Szczecin í seinni leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta karla þrátt fyrir að sigurinn dygði ekki til þess að koma KR-ingum áfram í næstu umferð keppninnar. Fótbolti 14. júlí 2022 22:00
Umfjöllun: KR-Pogón 1-0 | Allt annað að sjá KR-liðið á Meistaravöllum í kvöld KR sýndi annað andlit þegar liðið pólska liðið Pogón í heimsók á Meistaravelli í síðari leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta karla í kvöld en í þeim fyrri. Fótbolti 14. júlí 2022 20:06
„Á heimavelli munum við að sjálfsögðu reyna að lyfta okkur hærra upp á völlinn“ Rúnar Kristinsson ræddi við Vísi fyrir leik KR og pólska liðsins Pogoń Szczecin í síðari leik liðanna í undankeppni Evrópudeildarinnar. Hann segir að leikplanið verði ekkert ósvipað og í fyrri leiknum en hans lið þurfi einfaldlega að gera hlutina betur. Íslenski boltinn 14. júlí 2022 09:01
„Við teljum okkur vera með góðan mannskap en höfum ekki náð því besta út úr öllum” Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, segir sína menn ekki vera í leit að liðsstyrk þó svo að mikil meiðsli herji nú á leikmannahóp liðsins. Hann segir einfaldlega að allir hjá félaginu þurfi að líta í spegil og bæta sig. Íslenski boltinn 13. júlí 2022 18:36
Emil Ásmundsson snýr aftur í Fylki Emil Ásmundsson, leikmaður KR, hefur verið lánaður til uppeldisfélags síns í Árbænum. Emil mun því leika með Fylki í Lengjudeildinni í sumar. Fótbolti 8. júlí 2022 20:31
Mörkin frá Andorra og Póllandi Breiðablik og KR hófu leik í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta hér að neðan. Mörkin úr leikjunum tveimur má sjá hér að neðan. Fótbolti 8. júlí 2022 09:31
Rúnar: Náðum ekki að gera það sem lagt var upp með KR spilaði við Pogon Szczecin í Sambandsdeild Evrópu í Póllandi í dag. Leikurinn fór 4-1 fyrir þá pólsku eftir erfiðan fyrri hálfleik. Rúnar Kristinsson, þjálfara KR fannst leikplan sinna manna ekki ganga nægilega vel upp í fyrri hálfleik en mun betur í þeim seinni. Honum fannst heimamenn eiga of auðvelt með að spila upp völlinn. Fótbolti 7. júlí 2022 21:25
Umfjöllun: Pogon Szczecin-KR 4-1 | Afar kaflaskipt frammistaða hjá KR í Póllandi Pogon Szczecin vann KR 4-1 í fyrri leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta karla Póllandi í dag eftir að þeir pólsku leiddu í hálfleik 3-0. Fótbolti 7. júlí 2022 17:48
Örn Steinsen er látinn Örn Steinsen, fyrrverandi framkvæmdastjóri KR, er látinn, 82 ára að aldri. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 1. júlí síðastliðinn. Sport 5. júlí 2022 11:31
Staðfesti leikskýrslu í Bestu deildinni en gleymdi að skrá mörkin Víkingar unnu 3-0 sigur á KR í fyrsta leik elleftu umferðar Bestu deildar karla á föstudagskvöldið. Nú hefur dómari leiksins skilað staðfestri leikskýrslu en hún er hins vegar meingölluð. Íslenski boltinn 4. júlí 2022 14:32
Mikill hiti er KR og Selfoss mættust fyrst allra í Besta þættinum Fyrsti þátturinn af Besta þættinum er kominn út en í þættinum eru leikmenn og stuðningsmenn liða í Bestu deildinni paraðir saman í keppni á móti öðru pari annars liðs. Íslenski boltinn 4. júlí 2022 13:16
Semple frá ÍR í KR KR hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir átökin í Subway deild karla næsta vetur. Jordan Semple hefur samþykkt að leika með liðinu en hann lék með ÍR á síðustu leiktíð og þótti standa sig með prýði. Körfubolti 2. júlí 2022 13:01
Sjáðu mörkin er Víkingar rúlluðu KR upp í Vesturbænum Íslands og bikarmeistarar Víkings unnu frábæran 3-0 sigur á KR er liðin mættust á Meistaravöllum í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld. Hér að neðan má sjá öll mörk leiksins. Íslenski boltinn 2. júlí 2022 12:30
Umfjöllun og viðtöl: KR - Víkingur 0-3 | Meistararnir unnu öruggan sigur í Vesturbænum Íslandsmeistarar Víkings unnu einkar öruggan 3-0 sigur á KR er liðin mættust vestur í bæ í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Halldór Smári Sigurðsson skoraði þriðja mark Víkings en þetta var hans fyrsta mark í efstu deild. Íslenski boltinn 1. júlí 2022 22:30
Stórleikur í Víkinni og Kópavogsslagur í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins Dregið var í átta liða úrslit Mjólkurbikars karla og undanúrslit Mjólkurbikars kvenna í fótbolta í dag. Íslenski boltinn 30. júní 2022 12:20
KR-ingar þurftu að hafa fyrir hlutunum gegn Njarðvík KR-ingar eru komnir í átta liða úrslit eftir torsóttan 0-1 sigur gegn Njarðvík í kvöld. KR leikur í Bestu-deildinni en Njarðvík í 2. deild og því bjuggust flestir við nokkuð öruggum sigri Vesturbæinga. Fótbolti 26. júní 2022 21:42
Mistækir KR-ingar gáfu toppliðinu hvert markið á fætur öðru Breiðablik, topplið Bestu deildar karla í fótbolta, gerði sér lítið fyrir og vann KR 4-0 í gær. Gestirnir gerðu sér einkar erfitt fyrir en segja má að fyrstu tvö mörk leiksins hafi verið hrein og bein gjöf. Mörkin má sjá hér að neðan. Íslenski boltinn 24. júní 2022 08:00
Umfjöllun, viðtal og myndir: Breiðablik-KR 4-0 | Toppliðið vann stórsigur gegn gamla stórveldinu Breiðablik er nú með 11 stiga forskot á toppi Bestu-deildar karla eftir afar öruggan 4-0 sigur gegn KR á Kópavogsvelli í kvöld. Íslenski boltinn 23. júní 2022 22:43