Lögreglumál

Lögreglumál

Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Á­reitt í sturtuklefa Sund­hallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara ná­föl og há­grátandi“

Auður Örlygsdóttir var sextán ára þegar hún lendir í því að fullorðinn maður gengur inn á hana nakta í útiklefa kvenna í Sundhöll Reykjavíkur fyrir tveimur árum. Maðurinn hlýddi ekki skipunum um að yfirgefa klefan og var þar í um fimm mínútur á meðan hann strauk á sér kynfærin. Á mánudaginn, tveimur árum eftir fyrra atvikið, lendir hún í því að gengið er inn á hana aftur í inniklefa Sundhallar Reykjavíkur. 

Innlent
Fréttamynd

Gripinn í blokk við þvottastúss eftir á­rásina

Gabríel Douane Boama sem grunaður er um tilraun til manndráps eða um sérstaklega hættulega líkamsárás með öxi hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins. Hann er grunaður um að hafa ráðist inn á heimili manns og ráðist að honum með exi þann 5. mars en lögregla handtók hann í fjölbýlishúsi þar sem hann var í óðaönn að þvo fötin sín.

Innlent
Fréttamynd

Rann­sóknin á lokametrunum

Rannsókn lögreglu á Quang Le, sem er grunaður um mansal, skjalafals og peningaþvætti, er á lokametrunum. Hann hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi farbann til 3. júlí.

Innlent
Fréttamynd

Eim­skip líta smyglið mjög al­var­legum augum

Samskiptastjóri Eimskips segir að fyrirtækið líti ætlaðan innflutning á fíkniefnum um borð í Dettifossi mjög alvarlegum augum. Tveir starfsmenn félagsins eru meðal þriggja sem sæta nú gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Tveir hand­teknu starfs­menn Eimskipa

Tveir starfsmenn Eimskipa sæta gæsluvarðhaldi grunaðir um aðild að smygli á verulegu magni af sterkum fíkniefnum til landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða fíkniefni í vökvaformi. Húsleit var framkvæmd á heimili þriðja manns sem var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í dag. 

Innlent
Fréttamynd

Keyrðu utan í bílinn í eftir­förinni

Lögregla beitti ýmsum aðferðum til að stöðva ökumann sem stórt lögreglulið veitti eftirför í Vogahverfi í Reykjavík í gær en myndband sem íbúi náði sýnir meðal annars hvernig lögregla keyrði utan í bílinn í tilraun til að stöðva hann. Ökumaðurinn hafði virt stöðvunarskyldu að vettugi og fylgdi honum mikið lögreglulið eftir.

Innlent
Fréttamynd

Sex hand­teknir og um veru­legt magn sterkra efna að ræða

Karlmaður á fertugsaldri sem lögreglu grunar um umfangsmikið smygl fíkniefna með Dettifossi var síðast handtekinn af lögreglu í janúar grunaður um alvarlega líkamsárás á þorrablóti í Kópavogi. Lögregla réðst í húsleit á heimili hans á höfuðborgarsvæðinu í gær og lagði hald á fjölmarga muni í eigu hans. Alls voru sex handteknir og sæta þrír gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn á innflutningi á verulegu magni af sterkum fíkniefnum.

Innlent
Fréttamynd

Góð­kunningjar lög­reglu grunaðir í stóru dópmáli

Miðlæg rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu réðst í handtökur í gær í tengslum við meintan innflutning fíkniefna til landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur lögregla til rannsóknar innflutning með gámaflutningaskipi Eimskips og var með viðbúnað á hafnarsvæði fyrirtækisins fyrri part dags í gær.

Innlent
Fréttamynd

Byrja ekki að sekta á morgun

Frá og með 15. apríl ár hvert er ekki heimilt að aka á nagladekkjum. Þó mun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ekki byrja að beita sektum fyrr en um 25. apríl í fyrsta lagi eða tæpum tveimur vikum eftir lok nagladekkjatímabilsins.

Innlent
Fréttamynd

Gæti sektað flug­stjóra um allt að átta milljónir króna

Fleiri myndskeið sem birst hafa af lágflugi farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ á laugardag virðast sýna með óyggjandi hætti að flugvélinni var flogið langt undir lögbundinni lágmarksflughæð. Forstjóri Icelandair segir félagið líta málið mjög alvarlegum augum en það er núna komið til rannsóknar Samgöngustofu.

Innlent
Fréttamynd

Maðurinn sem fannst í Ölfus­á er látinn

Maður sem var hífður upp úr Ölfusá á laugardag er látinn. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins en tilkynning barst um mann í ánni um fjögurleytið á laugardag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögregluembættinu sem hyggst ekki veita frekari upplýsingar um málið.

Innlent
Fréttamynd

Æsi­legri eftir­för lauk í Skútu­vogi

Hópur lögreglumanna tók þátt í aðgerð í Skútuvogi í Reykjavík nú síðdegis. Ásmundur Rúnar Gylfason, stöðvarstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að ökumanni hafi verið veitt eftirför þegar hann sinnti ekki stöðvunarskyldu. Hann hafi að lokum verið handtekinn í Skútuvogi.

Innlent