
Dæmdi úrslitaleik HM og nú úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu
Pólverjinn Szymon Marciniak mun dæma úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á milli Inter og Manchester City sem fram fer á Atatürk-vellinum í Istanbúl í Tyrklandi þann 10. júní.
Keppni hinna bestu í Evrópu.
Pólverjinn Szymon Marciniak mun dæma úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á milli Inter og Manchester City sem fram fer á Atatürk-vellinum í Istanbúl í Tyrklandi þann 10. júní.
Sigur Manchester City á Real Madríd í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu kom Pep Guardiola. þjálfara City, í einkar fámennan hóp.
Pep Guardiola viðurkenndi að leikmenn hans myndu fá að fagna því að Manchester City væri komið í úrslit Meistaradeildar Evrópu. Fagnaðarlætin verða þó ekki of löng þar sem Man City getur tryggt sér enska meistaratitilinn á sunnudag.
Manchester City er komið í úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir ótrúlegan 4-0 sigur á Real Madríd, ríkjandi Evrópumeisturum. Staðan í einvíginu var 1-1 eftir fyrri leik liðanna en heimamenn sýndu allar sínar bestu hliðar á meðan gestirnir áttu sér ekki viðreisnar von.
Manchester City hefur komið sér í frábært færi á að vinna þrennuna, og þar með Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn. Eitt allra þyngsta prófið á lokasprettinum þreytir liðið í kvöld, í sannkölluðum stórleik gegn ríkjandi Evrópumeisturum Real Madrid.
Inter Milan er á leið í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu eftir góðan 1-0 sigur gegn nágrönnum sínum í AC Milan í kvöld.
Stjórn Knattspyrnusamband Íslands samþykkti skipan í sérstakan starfshóp um kynjajafnrétti á fundi sinum á Akranesi 3. maí síðastliðinn en jafnréttismál voru áberandi á fundinum.
Ítalska liðið Internazionale er í fínum málum í undanúrslitum Meistaradeildarinnar eftir 2-0 sigur á nágrönnum sínum í AC Milan í fyrri leiknum í gærkvöldi.
Inter og AC Milan mættust í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn var skráður sem heimaleikur AC Milan en bæði lið spila leiki sína á San Siro-vellinum í Mílanó. Það var hins vegar Inter sem vann eftir tvö mörk snemma leiks, lokatölur 0-2.
Alfie Haaland, faðir Erling Braut Haaland framherja Manchester City, er sagður hafa sýnt af sér ögrandi hegðun á leik Real Madrid og Manchester City sem fór fram í Madríd á Spáni í gærkvöldi.
Erkifjendurnir í AC Milan og Inter mætast í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld en stuðningsmenn AC Milan hafa ástæðu til að gleðjast þó að leikurinn sé ekki hafinn.
Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Real Madrid, var mjög ósáttur með jöfnunarmark Manchester City í fyrri leik liðanna í gærkvöldi í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Pep Guardiola, þjálfari Englandsmeistara Manchester City, var nokkuð brattur eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Real Madrid í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Hann segir að framundan sé úrslitaleikur á þeirra eigin heimavelli.
Real Madrid og Manchester City gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Þetta er annað árið í röð sem þessi lið mætast í undanúrslitum keppninnar, en í fyrra fór Real Madrid áfram á dramatískan hátt.
Yaya Touré, fyrrverandi miðjumaður Manchester City, er búinn að fá sig fullsaddan af því að fólk sé að bendla hann við umræðu um „bölvun“ sem fylgi enska knattspyrnuliðinu í Meistaradeild Evrópu.
Vinícius Júnior og félagar í Real Madrid tryggðu sér spænska bikarmeistaratitilinn með sigri á Osasuna í úrslitaleik á laugardagskvöldið.
Wayne Rooney telur að Evrópumeistarar Real Madrid verði ekki mikil fyrirstaða fyrir Manchester City í undanúrslitum Meistaradeildarinnar en fyrri leikur liðanna fer fram á morgun.
Aleksander Ceferin, forseti Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, afskrifar alls ekki að spila stórleiki í Meistaradeildinni í fótbolta hinum megin við Atlantshafið.
Alls voru átta mörk skoruð í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gær, miðvikudag. Bayern München og Manchester City gerðu 1-1 jafntefli á meðean Inter og Benfica gerðu 3-3 jafntefli.
Pep Guardiola var ánægður með þá staðreynd að Manhester City væri komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu þriðja árið í röð en hann hefur miklar áhyggjur af leikjaálaginu næstu vikurnar.
Inter Milan stöðvaði Evrópuævintýri Benfica og tryggði sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu eftir 3-3 jafntefli á San Siro í kvöld. Inter vann fyrri leik liðanna í Portúgal 2-0 og einvígið því 5-3.
Bayern München þurfti kraftaverk til að komast áfram eftir 3-0 tap í fyrri leik liðsins gegn Manchester City í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Það gekk ekki eftir en leik kvöldsins lauk með 1-1 jafntefli.
Enn eitt vorið virðist sem Pep Guardiola hafi fundið hina fullkomnu blöndu þegar kemur að því hvað þarf að gera til að vinna Meistaradeild Evrópu. Það er þangað til eitthvað klikkar.
Fjögur mörk voru skoruð í leikjunum tveimur í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær.
Í gærkvöldi komst AC Milan í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í fyrsta skipti í 16 ár.
Það stefnir í töluverðar breytingar hjá Frakklandsmeisturum París Saint-Germain í sumar. Lionel Messi er talinn vera á leið heim til Katalóníu en í hans stað vilja forráðamenn PSG fá enska framherjann Harry Kane. Þá er talið að José Mourinho gæti verið næsti þjálfari liðsins.
Thomas Tuchel, tiltölulega nýráðinn þjálfari Þýskalandsmeistara Bayern München, segir sína menn þurfa kraftaverk í síðari leik liðsins gegn Manchester City í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Frank Lampard, bráðabirgðastjóri Chelsea, segir að liðið geti tekið margt jákvætt út úr einvígi sínu gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu þrátt fyrir að Lundúnaliðið sé nú úr leik.
Ítalíumeistarar AC Milan eru á leið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 1-1 jafntefli gegn verðandi Ítalíumeisturum Napoli í kvöld.
Evrópumeistarar Real Madrid eru komnir í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir góðan 2-0 útisigur gegn Chelsea í kvöld.