Alþingis- og sveitar­stjórnar­menn

Alþingis- og sveitar­stjórnar­menn

Skoðanagreinar eftir kjörna fulltrúa á Alþingi og í sveitarstjórnum.

Fréttamynd

Hafnar­fjörður í gíslingu þéttingarstefnu Reykja­víkur

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa vaxið mikið undanfarin ár og þar er Hafnarfjörður engin undantekning. Íbúðum hefur fjölgað og hér rísa ný hverfi með blandaðri byggð. Það hljómar allt vel en segir ekki alla söguna. Eins og staðan er nú hefur Hafnarfjörður í raun lítið annað val en að byggja upp á forsendum þéttingarstefnu þvert á vilja íbúa skv. búsetukönnunum HMS, þrátt fyrir að bærinn hafi nægt byggingarland sem hægt væri að nýta til skynsamlegs vaxtar, meira svigrúms, aukinna lífsgæða fyrir íbúa, og atvinnulíf.

Skoðun
Fréttamynd

Það kemur ekki til greina að rífa upp samgöngusáttmálann

Umræðan fyrir komandi kosningar hefur færst frá bílastæðum yfir í að endurskoða samgöngusáttmálann frá grunni. Þegar samgöngusáttmálinn var undirritaður árið 2019 markaði það tímamót í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu. Þar sameinuðust öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, leidd af ýmsum flokkum, um forgangsröðun framkvæmda enda höfuðborgarsvæðið eitt atvinnu- og búsetusvæði.

Skoðun
Fréttamynd

8. sætið

„Ég hefði nú viljað sjá þig ofar á listanum“ er setning sem ég hef heyrt seinustu daga og er nú líklega gott dæmi um að hverjum þykir sinn fugl fagur og allt það. Fyrir utan hvað listinn okkar er stútfullur af harðduglegu og hæfileikaríku fólki, þá er sko engin tilviljun að ég vermi áttunda sætið. Nei, nei, þetta er allt saman vel úthugsað.

Skoðun
Fréttamynd

Kópa­vogur í sókn: Að þora meðan aðrir sitja hjá

Þann 16. maí kjósum við ekki aðeins um fulltrúa til að stýra Kópavogsbæ næstu ár, heldur um stefnu, hugarfar og framtíðarsýn. Við kjósum um hvort við ætlum að sitja hjá eða taka skref fram á við. Kjörorð Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi eru skýr: Kópavogur í sókn. En hvað þýðir það í raun?

Skoðun
Fréttamynd

Frelsi kvenna er ekki vanda­málið

Ég elskaði að ganga með börnin mín þrjú. Elskaði að hugsa um þau sem ungabörn og elskaði þann dýrmæta fjölskyldutíma sem fylgir því að eignast börn. Að sama skapi þótti mér gott, og í raun nauðsynlegt, að komast aftur út á vinnumarkaðinn, taka fullan þátt í samfélaginu að nýju samhliða því sem ég sinnti fjölskyldunni.

Skoðun
Fréttamynd

Hrein torg, fögur borg

Hér áður stóð gjarnan á sorptunnum í Reykjavík „hrein torg, fögur borg“. Það eru orð að sönnu. Snyrtimennska og hreinlæti skipta öllu máli þegar kemur að upplifun á borgarlífi og virðingu fyrir því sem fyrir augu ber.

Skoðun
Fréttamynd

Reykja­vík getur gripið börn fyrr

Í Reykjavík eru börn sem þurfa hjálp, en fá hana ekki nógu snemma. Mörg börn eru að takast á við erfiðar aðstæður – veikindi í fjölskyldu, ofbeldi, fátækt, fordóma eða félagslegan þrýsting – sem getur haft mikil áhrif á líðan þeirra.

Skoðun
Fréttamynd

Höfnum fram­tíðinni sem aldrei kom

Reykvíkingum hefur um árabil verið seld sú hugmynd að allt verði betra í framtíðinni. Ef bara fólk hefur þolinmæði til að bíða eftir borgarlínu, lausn á biðlistavanda leikskólanna eða hinni ofurþéttu framtíðarborg þar sem bílar verða allt að því óþarfir.

Skoðun
Fréttamynd

Nýjar skýrslur um hrauna­vá styrkja undir­búning Hafnar­fjarðar­bæjar

Mikilvægar skýrslur um hraunavá á Reykjanesskaga og höfuðborgarsvæðinu komu út í vikunni. Skýrslurnar eru mikilvægt framlag til þess að sveitarfélög, almannavarnir, sérfræðingar og aðrir viðbragðsaðilar geti undirbúið sig betur, styrkt innviði og tekið upplýstar ákvarðanir með öryggi íbúa að leiðarljósi.

Skoðun
Fréttamynd

Þið eruð bara eins og hlaup­ár

Í einum af fjölmörgu heimsóknum mínum, í íþróttafélögin síðustu vikur, hitti ég mann sem var greinilega kominn með nóg af sinnuleysi borgarinnar. 

Skoðun
Fréttamynd

Krýsu­víkur­samtökin 40 ára

Í gær, á sumardaginn fyrsta, var einstaklega ánægjulegt að taka þátt í hátíðarhöldum í tilefni af 40 ára afmæli Krýsuvíkursamtakanna.

Skoðun
Fréttamynd

Mennta­mál ættu ekki að vera pólitískt þrætu­efni

Þegar menntamál eru til umræðu líður oft ekki á löngu þar til einhver er farinn að tala um hægri og vinstri, aðhald eða fjárfestingu og hvort stefnt sé í rétta eða ranga átt. Skyndilega snýst umræðan ekki um börn heldur einstaka stjórnmálamenn og flokka.

Skoðun
Fréttamynd

Fjár­festum í börnum

Á síðustu tíu árum hefur börnum af erlendum uppruna fjölgað hratt í skólum landsins. Hlutfall þeirra hefur víða meira en tvöfaldast síðan 2015 og er nú á bilinu 15–20% í grunnskólum, hærra í sumum hverfum Reykjavíkur. Þessi börn eru flest komin hingað til að vera, fjölskyldur þeirra eru að byggja sér líf á Íslandi og það er á okkar ábyrgð að tryggja þeim jöfn tækifæri til þátttöku í samfélaginu.

Skoðun
Fréttamynd

Öruggt hús­næði jafn­gildir mann­réttindum

Öruggt húsnæði er ein af grunnforsendum þess að fólk geti byggt upp líf sitt með reisn. Og þegar húsnæðiskostnaður hækkar hraðar en það sem getur talist sjálfbært verða húsnæðismál að félagslegu réttlætismáli. Óöryggi á þessu sviði leiðir til kvíða og jafnvel vonleysis.

Skoðun
Fréttamynd

Engin fyrir­tæki engin þjónusta

Grunnrekstur borgarinnar er fjármagnaður af útsvari og fasteignagjöldum borgarbúa. Launatekjur fólks standa því að stórum hluta undir rekstrinum, og því ekki ofsögum sagt að atvinnurekendur séu grunnstoð velferðar í Reykjavík. Borgaryfirvöld virðast þó ekki meðvituð um það.

Skoðun
Fréttamynd

Vönduð niður­staða Feneyjanefndarinnar

Þegar tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við Evrópusambandið kom til umræðu á Alþingi kom fram hugmynd frá Guðrúnu Hafsteinsdóttur um að óska eftir áliti Feneyjanefndar Evrópuráðsins á tillögunni.

Skoðun
Fréttamynd

Nýr golf­völlur í Reykja­vík

Golf hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem ein stærsta lýðheilsu- og fjölskylduíþrótt landsins. Á landsvísu eru hátt í 30 þúsund einstaklingar skráðir í golfhreyfinguna og fjölgunin hefur verið meiri en í flestum öðrum íþróttagreinum.

Skoðun
Fréttamynd

Lægri húsnæðis­vextir með evru (stað­fest)

Morgunblaðið afrekaði að breiða yfir stórfrétt sem blaðið þó birti og vann. Í fréttinni, sem birtist 11. apríl, staðfesta sérfræðingar stærstu banka landsins að lánakjör almennings af húsnæðislánum myndu lækka og batna með upptöku evru.

Skoðun
Fréttamynd

Dóna­skapur Reykja­víkur­borgar

Íþróttafélögin í Reykjavík eru einstök. Þau eru sjálfseignastofnanir sem hafa byggst upp af sjálfboðaliðum og eru í dag ein af grunnstoðum Reykjavíkur í þjónustu við borgarbúa. Mikil fjölgun hefur orðið í iðkendafjölda íþróttafélaganna á síðustu árum og á sama tíma er aukin krafa um aukna þjónustu og fagmennsku.

Skoðun
Fréttamynd

Snúum Reykja­vík við

Reykvíkingar kjósa nýja borgarstjórn eftir 24 daga. Í mínum huga snúast kosningarnar um næstu kynslóð Reykvíkinga. Velur unga fólkið að búa í höfuðborginni okkar? Er húsnæði hræðilega dýrt? Er gaman að stofna fyrirtæki? Er ég stanslaust á bið?

Skoðun
Fréttamynd

Ís­lensk orka er svarið við olíukrísunni

Hækkanir og sveiflur á alþjóðlegum orkumörkuðum vegna innrásar Bandaríkjanna í Íran og lokunar Hormússunds minna okkur á að orkuskiptin eru ekki aðeins umhverfis- og loftslagsmál heldur líka grjóthart efnahagsmál.

Skoðun
Fréttamynd

Blár, rauður, gulur og C+

Töluvert hefur verið rætt um matskerfi grunnskólanna sl. daga. Lítill hópur forystu kennara og nokkrir kennarar berjast á móti þeim breytingum sem ráðherra vill koma á.

Skoðun