Stöndum öll saman Í ár eru 100 ár frá því fyrsta kröfuganga 1. maí var farin á Íslandi. Barátta launafólks á Íslandi er búin að vera löng og ströng. Verkalýðurinn sameinaðist með stofnun ASI árið 1916 og á sama tíma var Alþýðuflokkurinn stofnaður. Flokkurinn marg klofnaði á síðustu öld, en jafnaðarmenn sameinuðust undir merkjum Samfylkingarinnar í lok síðustu aldar. Skoðun 1. maí 2023 08:31
Segja ríki og borg spila með framtíðaröryggi landsbyggðarinnar Oddvitar Sjálfstæðisflokksins í fjórtán sveitarfélögum hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem áform innviðaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar um að hefjast handa við jarðvegsframkvæmdir og þar með undirbúning íbúðauppbyggingar í Skerjafirði eru fordæmd. Þau setji framtíð Reykjavíkurflugvallar, og þar með framtíðaröryggi landsbyggðarinnar í uppnám. Innlent 30. apríl 2023 23:07
Teikn á lofti um að markmið rammasamnings fyrir árið náist ekki Innviðaráðherra segir það ekki rétt að forsendur rammasamnings um uppbyggingu íbúða séu brostnar, líkt og Samband íslenskra sveitarfélaga heldur fram. Ef þörf verður á auknu fjármagni verði brugðist við en teikn eru á lofti um að markmið samningsins náist ekki strax. Innlent 30. apríl 2023 21:26
Tókust harkalega á um hvort fíkn væri smitsjúkdómur Þingmenn tókust á um hvort að fíkniefnaneysla sé smitsjúkdómur eða ekki í þættinum Sprengisandi í morgun. Yfirlæknir SÁÁ sagði ekki pláss fyrir refsingu á fíkniefnaneyslu. Innlent 30. apríl 2023 16:30
Krefjast þess að ákvörðunin verði endurskoðuð Stjórn Vinstri grænna í Kópavogi hefur lýst furðu sinni á samþykktum sem gerðar voru nýlegar á fundi bæjarstjórnar í sveitarfélaginu er varða starfsemi menningarhúsa í bænum. Er þess krafist að ákvarðanirnar verði endurskoðaðar. Innlent 30. apríl 2023 09:19
Hugmynd um flýtimeðferð ekki unnin í samráði við SÁÁ Heilbrigðisráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær hugmynd um að veita 170 milljónir króna í aðgerðir til að sporna við skaða af völdum ópíóðafíknar. Meðal boðaðra aðgerða var stofnun flýtimóttöku þar sem einstaklingum í bráðum vanda er tryggt aðgengi að gagnreyndri heilbrigðisþjónustu á borð við fráhvarfsmeðferð, vímuefnameðferð eða viðhaldsmeðferð sem mætir þeirra þörfum. Forstjóri Vogs fagnar áformunum en segist ekki hafa heyrt af þeim fyrr en hún las um þau í fjölmiðlum í gær. Innlent 29. apríl 2023 17:49
Aukið fjármagn til flugvalla um land allt Uppbygging varaflugvalla á Íslandi hafa ekki verið í samræmi við vöxt alþjóðarflugs síðustu misseri. Flestar ferðir til og frá landinu eru í gegnum Keflavíkurflugvöll en hins vegar erum við að sjá aukið millilandaflug gegnum flugvellina á Akureyri og Egilsstöðum. Skoðun 29. apríl 2023 10:31
Stuðningur við Úkraínu eini valmöguleikinn Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fór til Odessa í Úkraínu í morgun ásamt öðrum utanríkisráðherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja, sem höfðu verið á fundi í Moldóvu. Ekki hafði verið tilkynnt um heimsóknina fyrirfram af öryggisástæðum. Innlent 28. apríl 2023 22:43
Allar raddir muni heyrast og ekkert borðfast um sameiningu Til stendur að skoða mögulega sameiningu eða aukið samstarf sem nær til átta framhaldsskóla á landinu. Ráðherra segir samtal eftir að eiga sér stað, mál sem þessu séu viðkvæm og ekkert verið ákveðið. Sameining Kvennaskóla Reykjavíkur og Menntaskólans við Sund í nýju húsnæði hefur þó vakið hörð viðbrögð. Kvenskælingar sem fréttastofa ræddi við kvörtuðu ekki mikið en kennarar vara við slæmum áhrifum. Innlent 28. apríl 2023 21:28
Segir meinta ritskoðun á Ríkisútvarpinu ritstjórn Pistlahöfundurinn þekkti Sif Sigmarsdóttir heldur því fram að hún hafi mátt sæta ritskoðun þegar hún lagði til pistla í Morgunútvarp Rásar 2 Ríkisútvarpsins. Dagskrárstjórinn segir þetta úr lausu lofti gripið, um hafi verið að ræða ritstjórn, ekki ritskoðun og á þessu tvennu sé munur. Innlent 28. apríl 2023 15:41
Breyta aðferðafræði við útrýmingu riðuveiki Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur fallist á tillögu yfirdýralæknis um breytta aðferðafræði við útrýmingu riðuveiki. Tillagan hefur verið kynnt í ríkisstjórn, en hún felst í því að markvisst verði unnið að hraðari ræktun riðuþolins sauðfjársstofns á ræktunarsvæðum sem eru skilgreind sem áhættusvæði. Innlent 28. apríl 2023 15:36
170 milljónir settar í aðgerðir vegna ópíóðafaraldurs Heilbrigðisráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í dag hugmynd um að veita 170 milljónum króna í aðgerðir til að sporna við skaða af völdum ópíóðafíknar. Þróuð verður flýtimóttaka, tryggt verður aðgengi að gegnreyndr lyfjameðferð við ópíóðafíkn, neyðarlyfið Naloxon verður ókeypis og úrræði á vegum félagsamtaka verða efld. Í fyrstu tilkynningu vegna málsins kom fram að ríkisstjórnin hefði samþykkt breytingarnar en það reyndist ekki rétt. Innlent 28. apríl 2023 14:26
Ásgerður nýr dómari við Landsrétt Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur ákveðið að setja Ásgerði Ragnarsdóttur héraðsdómara í embætti dómara við Landsrétt frá og með 8. maí 2023 til og með 28. febrúar 2029. Hæfisnefnd hafði metið Ásgerði og Kjartan Björgvinsson héraðsdómara jafnhæf og þurfti ráðherra því að gera upp á milli þeirra. Innlent 28. apríl 2023 14:01
Ásgeiri brugðið þegar hann heyrði að Íslendingum hafi fjölgað um 3.000 á árinu Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra var brugðið þegar hann fékk að vita það á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í morgun að Íslendingum hafi fjölgað um þrjú þúsund frá áramótum. Viðskipti innlent 28. apríl 2023 11:59
Fljótagöng og samgöngur í Fljótum og til Siglufjarðar Nú í vikunni var birt sláandi mynd af ástandi Siglufjarðarvegar. Þar sést greinilega hversu mikið hefur hrunið úr hlíðinni, en það er stutt í að vegurinn verði í raun ófær eða honum lokað sem öryggisráðstöfun. Skoðun 28. apríl 2023 11:30
Páley segir afglæpavæðingu auka neyslu Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri á Norðurlandi eystra og formaður lögreglustjórafélags Íslands vill gjalda varhug við afglæpavæðingu neysluskammta. Hún telur engum blöðum um það að fletta að ef varsla neysluskammta verði gerð refsilaus þá auki það neyslu ávana- og fíknefna. Innlent 28. apríl 2023 11:29
Skólar á Akureyri og Suðurnesjum einnig undir smásjá ráðherra Stýrihópur sem mennta- og barnamálaráðherra skipaði í síðustu viku lagði fram að skólameistarar Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Keilis - miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs myndu hefja samtal um sameiningu eða aukið samstarf. Sama á við Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskólann á Akureyri. Innlent 28. apríl 2023 11:11
Bindur vonir við nýja forystu ASÍ Ásgeir Jónsson segist binda miklar vonir við að ný forysta ASÍ komi sambandinu á þann stað að það verði aftur leiðandi á vinnumarkaði. Vinnumarkaðurinn þurfi að taka ábyrgð á sínum þætti í verðbólgunni og fara að grípa til aðgerða til að árangur náist í baráttu gegn henni. Viðskipti innlent 28. apríl 2023 10:32
Rétt að kjósa um Carbfix Á opnum kynningarfundi í Hafnarfirði í vikunni kynnti fyrirtækið Coda Terminal áform sín um að byggja móttöku- og förgunarmiðstöð fyrir koldíoxíð (CO2) á lóð ÍSAL í Straumsvík. Til stendur að farga allt að þremur milljónum tonna á ári af efninu sem verður flutt inn til landsins og dælt djúpt niður í jörðina þar sem það „steinrennur“ á tiltölulega stuttum tíma. Skoðun 28. apríl 2023 10:30
Skatturinn vill slíta Reykjavíkurlistanum Skatturinn hefur farið fram á slit á þrjátíu félögum í umdæmi Héraðsdóms Reykjavíkur. Meðal félaga eru Skákfélagið Hrókurinn, Íslenska sundþjálfarasambandið og Reykjavíkurlistinn. Innlent 28. apríl 2023 10:21
Ólafur G. Einarsson er látinn Ólafur G. Einarsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, er látinn, níræður að aldri. Innlent 28. apríl 2023 09:17
Áfall í kjölfar riðu Áfallið þegar riðusmit kemur upp í fjárstofni getur verið verulegt og afleiðingarnar af riðusmiti geta verið mjög miklar og erfiðar fyrir bændur. Við sem stöndum hjá sýnum samkennd en getum lítið gert í þessum aðstæðum. Skoðun 28. apríl 2023 09:01
Bein útsending: Ræða skýrslu peningastefnunefndar til þingsins Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund um skýrslu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis klukkan 9:15 í dag. Viðskipti innlent 28. apríl 2023 08:46
Segir þetta bara einn nagla í kistu Reykjavíkurflugvallar Sú ákvörðun innviðaráðherra og borgarstjóra að hefja uppbyggingu í Nýja Skerjafirði skerðir notagildi Reykjavíkurflugvallar og er einn naglinn í kistu vallarins, að mati talsmanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Borgarstjóri segir að þarna rísi eftirsótt hverfi samkvæmt verðlaunaskipulagi. Innlent 27. apríl 2023 22:12
„Af hverju má mér ekki líða vel?“ Íbúi á tjaldsvæðinu í Laugardal segir þá sem sjá um að finna langtímastæði fyrir íbúana þar þurfi að girða sig í brók. Leigusamningar þeirra sem búa í hjólhýsum á tjaldsvæðinu renna út um miðjan maí. Innlent 27. apríl 2023 21:45
„Hér er um að ræða fullkominn forsendubrest“ Samband íslenskra sveitarfélaga telur að rammasamningur ríkis og sveitarfélaga um aukið framboð íbúða sé vanfjármagnaður í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Um sé að ræða „fullkominn forsendubrest“ og íbúðaþörf næstu ára verði ekki fullnægt. Innlent 27. apríl 2023 20:39
Framhaldsskólanemar gagnrýna nemendaskort í starfshópi Samband íslenskra framhaldsskólanema gagnrýnir að starfshópur mennta- og barnamálaráðherra um eflingu framhaldsskóla hafi ekki innihaldið einn nemanda. Bæði er verið að skoða að sameina annars vegar Flensborgarskólann í Hafnarfirði og Tækniskólann, og hinsvegar Kvennaskólann í Reykjavík og Menntaskólann við Sund. Innlent 27. apríl 2023 19:45
Hitafundir í Kvennó og MS vegna mögulegrar sameiningar Menntamálaráðuneytið vill kanna fýsileika þess að sameina Kvennaskólann í Reykjavík og Menntaskólann við Sund í húsnæði í Stakkahlíð. Kennurum skólanna var tilkynnt þetta á fundum síðdegis. Innlent 27. apríl 2023 16:25
Willum Þór með afglæpavæðinguna á ís Willum Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra upplýsti á þinginu fyrr í dag að hann hefði ákveðið að leggja ekki fram fyrirhugað frumvarp um afglæpavæðingu að svo stöddu. Innlent 27. apríl 2023 15:01
Hildur: Málaflokkur fatlaðra skýrir aðeins brot af framúrkeyrslu borgarinnar Rekstrarhalli Reykjavíkurborgar var nærri sexfaldur miðað við fjárhagsáætlun. Halli á A-hluta, sá hluti rekstrar borgarinnar sem fjármagnaður er með skatttekjum, var 15,6 milljarðar króna en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir 2,8 milljarða halla. Á sama tíma fyrir ári nam tapið 3,9 milljörðum króna. Hlutfall skulda á móti tekjum jókst á milli ára úr 116 prósentum í 131 prósent. Innherji 27. apríl 2023 14:51