Brúar dómsmálaráðherra bilið? Meðalaldur barna við innritun á leikskóla Reykjavíkurborgar er nú 21 mánuðir og þrátt fyrir fögur fyrirheit hefur meirihlutanum í borginni ekki tekist að lækka innritunaraldurinn svo neinu nemi; það er staðan. Skoðun 16. mars 2023 07:30
Þögull barnamálaráðherra Fyrir sveitarfélögum liggur nú að taka afstöðu til samnings ríkisins um móttöku flóttafólks. Samningurinn er um margt ágætur en hann var lagður á borð sveitarfélaga án nokkurs samtals um hvað hann ætti að innihalda. Skoðun 16. mars 2023 07:01
Segir niðurstöðu umboðsmanns ekki áfellisdóm Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segist undrandi yfir þeirri niðurstöðu Umboðsmanns Alþingis að ráðherrann hafi brotið gegn góðum stjórnsýsluháttum þegar hann tók ákvörðun um aukinn vopnaburð lögreglu án þess að bera málið upp í ríkisstjórn. Innlent 16. mars 2023 06:49
Vilja sundlaugamenningu og laufabrauðsgerð á lista UNESCO Menningar- og viðskiptaráðherra kynnti tillögu fyrir ríkisstjórninni um að laufabrauðsgerð og sundlaugamenning verði tilnefnd á skrá menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna yfir menningarerfðir. Innlent 15. mars 2023 21:53
Útlendingafrumvarpið samþykkt Meirihluti Alþingis hefur samþykkt útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Fjölmargar breytingartillögur voru lagðar fram á Alþingi í dag en þær voru jafnóðum felldar. Minnihlutaþingmenn voru ómyrkir í máli og gagnrýndu meirihlutann harðlega. Innlent 15. mars 2023 20:47
Ölfus og Hveragerðisbær ekki í eina sæng í bili Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss segir sameiningu sveitarfélaganna Ölfuss og Hveragerðisbæjar ekki á dagskrá bæjarstjórnar þess fyrrnefnda. Bæjarfulltrúi í Hveragerði vill sameina sveitarfélagið að nýju. Innlent 15. mars 2023 20:17
Breytingartillögur felldar jafnóðum Þingmenn úr minnihluta Alþingis hafa lagt fram fjölmargar breytingartillögur á útlendingafrumvarpi Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra á fundi sem nú stendur yfir. Meirihluti þingmanna hefur fellt tillögurnar jafnóðum. Innlent 15. mars 2023 19:17
Kalla settan ríkisendurskoðanda á fund um Lindarhvol: „Mögulega tilgangslausasti fundur þingsögunnar“ Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar hefur ákveðið að boða settan ríkisendurskoðanda á opinn fund um Lindarhvolsmálið. Þingmaður Pírata velti því upp hvort sá fundur yrði „mögulega tilgangslausasti fundur þingsögunnar“ og sakaði meirihlutann um sýndarmennsku. Stjórnarliðar sögðu ekkert óeðlilegt við að boðað hafi verið til fundar, þó ekki megi birta greinargerð um málið. Innlent 15. mars 2023 18:08
Fjölgunin í Ölfusi og sameining þess Árið 1946 varð til nýtt sveitarfélag í Ölfusi, Hveragerðishreppur, en þá klauf þéttbýlið í Hveragerði sig úr Ölfushreppi. Íbúum í Hveragerði hafði þá um nokkra hríð þótt lítið tillit tekið til þarfa í hinu nýja þorpi og þótti hag sínum betur borgið í sérstöku sveitarfélagi. Skoðun 15. mars 2023 17:01
Lítið áunnist þrátt fyrir „fagurgala og falleg fyrirheit“ borgarinnar Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir stöðuna í leikskólamálum í Reykjavík óásættanlega þar sem staðan heldur áfram að versna. Fagurgalar og falleg fyrirheit komi frá stjórnsýslunni sem leggur ekki í vinnuna sem til þurfi. Foreldrar hafa lýst yfir þungum áhyggjum vegna stöðunnar og hefur verið óskað eftir því að leikskólamálin verði sett á dagskrá borgarráðs á morgun. Innlent 15. mars 2023 16:51
Mótmælt fyrir utan Alþingi Hópur flóttamanna frá Írak stendur fyrir mótmælum fyrir utan Alþingi í dag vegna umdeilds frumvarps Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum. Greidd verða atkvæði um frumvarpið á þingi í dag. Innlent 15. mars 2023 16:50
Trúir þú á réttlæti? Skrásetningagjöldin hafa mikið verið í umræðunni upp á síðkastið, þá sér í lagi vegna beiðni rektora opinberu háskólanna til háskólamálaráðherra um heimild til hækkunar á skrásetningargjöldum úr 75.000 kr. í 95.000. Röskva leggst alfarið gegn hækkun á skrásetningargjaldinu og hefur barist fyrir lækkun eða afnámi þess. Skoðun 15. mars 2023 16:30
Gera ráð fyrir þjóðarhöll í deiliskipulagsbreytingu Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur auglýst nýtt deiliskipulag fyrir Laugardal. Breytingin felur í sér rými fyrir þjóðarhöll en hámarks byggingarmagn hallarinnar er nítján þúsund fermetrar. Innlent 15. mars 2023 15:53
Rakel ráðin rekstrarstjóri Samfylkingarinnar Rakel Pálsdóttir hefur verið ráðin sem rekstrarstjóri á skrifstofu Samfylkingarinnar. Síðustu fjögur ár hefur hún starfað hjá stéttarfélaginu Eflingu sem kynningarstjóri og sem samskiptastjóri hjá BSRB. Innlent 15. mars 2023 14:38
Sterkari áherslur VG fyrir þau sem veikast standa í samfélaginu Undirritaður býður sig hér með fram til setu í stjórn Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs. Ástæða þess að ég sækist eftir setu í stjórn hreyfingarinnar er brennandi áhugi á stjórnmálum. Skoðun 15. mars 2023 13:31
Frumvarpið sé illa úthugsað og afleiðingarnar óljósar: „Þetta er mikil afturför“ Allar líkur eru á að útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra verði að lögum frá Alþingi eftir daginn í dag en lokaatkvæðagreiðsla fer fram síðdegis. Þingmaður Pírata segir að í grunninn sé um að ræða pólitíska yfirlýsingu sem lýsi tortryggni og jafnvel andúð í garð fólks á flótta. Flóttamenn hafa boðað mótmæli fyrir utan Alþingi í dag vegna málsins og munu Píratar gefa stjórnarliðum lokatækifæri til að skipta um skoðun á eftir. Innlent 15. mars 2023 13:01
Afgreiðsla Jóns á rafbyssuheimild ekki góð stjórnsýsla Umboðsmaður Alþingis segir þá ákvörðun Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra að afgreiða heimild til handa lögreglu til að bera rafvopn án þess að bera málið undir ríkisstjórn ekki samræmast kröfum um vandaða stjórnsýsluhætti. Innlent 15. mars 2023 12:46
Heiða Kristín ráðin framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans Heiða Kristín Helgadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans. Hún hefur við starfinu í sumar en hún hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri Niceland Seafood auk þess að hafa komið að stofnun og rekstri hugbúnaðarfyrirtækja hérlendis og í Bandaríkjunum. Viðskipti innlent 15. mars 2023 11:58
Ósáttur við aukið myndavélaeftirlit: „Hvert og eitt skref í þessa átt finnst mér hættulegt“ Sósíalistar eru ósáttir við fyrirhuguð áform um stóraukið öryggismyndavélaeftirlit í miðborg Reykjavíkur. Borgarfulltrúi segir óttann ekki mega taka yfir. Innlent 15. mars 2023 10:31
Metnaðarfull húsnæðisáætlun í Hafnarfirði Húsnæðisáætlun 2023 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 1. mars sl. Um er að ræða afar metnaðarfulla áætlun, mesta uppbyggingarskeið í sögu Hafnarfjarðar er hafið. Skoðun 15. mars 2023 09:00
Lokaatkvæðagreiðsla um útlendingafrumvarpið á morgun Þriðju umræðu um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra lauk á Alþingi skömmu eftir klukkan sex nú síðdegis. Atkvæðagreiðslu var frestað en hún fer fram á morgun klukkan korter yfir fimm. Verði frumvarpið samþykkt verður það að lögum frá Alþingi. Innlent 14. mars 2023 19:45
Zelensky þakkar Íslendingum fyrir stuðninginn allt frá upphafi innrásar Úkraínuforseti þakkaði Íslendingum fyrir stuðning þeirra við Úkraínu allt frá upphafi innrásar Rússa á sameiginlegum fundi með forsætis- og utanríkisráðherra ytra í dag. Forsætisráðherra segir mikilvægt að sjá afleiðingar stríðsins með eigin augum og undirbúa leiðtogafund í Reykjavík í maí um málefni Úkraínu. Innlent 14. mars 2023 19:10
Sammála um að uppfæra Samgöngusáttmálann Ríkið og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið að hefja undirbúning að uppfærslu Samgöngusáttmálans svokallaða með að markmiði að viðauki vð sáttmálann verði gerður. Upphafleg skuldbinding vegna sáttmálans hefur farið úr 120 milljarða króna í 153 milljarða. Innlent 14. mars 2023 15:58
Fundi Katrínar og Zelenskys lokið Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu áttu um klukkustundar fund í Kænugarði í dag. Þar ræddu þau meðal annars um væntanlegan leiðtogafund Evrópuráðsins í Reykjavík í maí þar sem Úkraína verður aðal dagskrárefnið. Innlent 14. mars 2023 15:23
Eldræða Jódísar: Þingmenn verði að standa í lappirnar gegn „hryllingi“ á Seyðisfirði Þingmaður Vinstri grænna flutti eldræðu á Alþingi í dag og sagði öðrum þingmönnum að standa í lappirnar gegn erlendum fjárfestum. Tilefni ræðunnar er áætlað fiskeldi á Seyðisfirði en þingmaðurinn er þaðan. Innlent 14. mars 2023 14:38
Foreldrar krefjast svara frá borginni: „Þetta er algjörlega óviðunandi ástand“ Neyðarástand blasir við í leikskólamálum að sögn foreldris barns á leikskólaaldri. Úthlutun leikskólaplássa hófst í dag en takmörkuð mönnun og framkvæmdir hafa áhrif á hversu mörg börn komast að eftir sumarið. Stór hópur foreldra hefur tekið höndum saman og krefur borgina um skýr svör eftir innantóm loforð. Staðan sé óviðunandi. Innlent 14. mars 2023 14:00
Fundurinn einn sá einkennilegasti að mati Sigmars Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, segir að opinn nefndarfundar Allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, sem haldinn var að beiðni Birgis Þórarinssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins hafi verið einn einkennilegasti opni nefndarfundur í sögu Alþingis. Innlent 14. mars 2023 13:38
Einfaldað regluverk Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga Sumt dregur bara það versta fram í fólki. Skortur á peningum er eitt af því sem sálarlífið ræður illa við með auknum kröfum samfélagsins um fjárútlát. Skoðun 14. mars 2023 12:30
Katrín segir sláandi að sjá afleiðingar innrásar Rússa Forsætisráðherra segir sláandi að sjá ummerkin eftir innrás Rússa í Úkraínu og hitta íbúana sem urðu vitni af hryllingnum á fyrstu dögum innrásarinnar. Hún og utanríkisráðherra funda með forseta, forsætisráðherra Úkraínu og fleirum í Kænugarði í dag. Innlent 14. mars 2023 11:26
Mörg ríki með verra drykkjarvatn en Venesúela að mati Birgis Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði gæði drykkjarvatns í Venesúela að umtalsefni á opnum nefndarfundi á Alþingi í dag þar sem rætt var um alþjóðleg vernd vegna aðstæðna í Suður-Ameríkuríkinu. Formaður kærunefndar útlendingamála benti Birgir hins vegar á að heildarmat á aðstæðum þar í landi benti til algjörs hruns réttarkerfisins. Innlent 14. mars 2023 11:11