Allir séu meðvitaðir um ábyrgðina sem fylgi setu í ríkisstjórn „Það var í rauninni allt tekið fyrir en á mismikilli dýpt. Þetta var bara gaman, þetta var gott spjall í dásamlegu umhverfi. Hvergi er fallegra að vera heldur en á Þingvöllum. Hvort sem það er á sumrin eða í þessum vetrarbúningi sem var í gær.“ Innlent 4. janúar 2025 15:49
„Evrópusuðið“ hverfi ekki með þjóðaratkvæðagreiðslu Formaður hreyfingar þeirra sem eru andvígir inngöngu Íslands í Evrópusambandið, segir glórulaust að fara í vegferð sem miðar að inngöngu í sambandið. Ríkisstjórnarflokkarnir hafi komist til valda með því að ræða Evrópumálin sem minnst. Innlent 4. janúar 2025 12:03
Þrír og hálfur milljarður króna fyrir Perluna Eigendur Perlunnar þróunarfélags eru að ganga frá kaupum á Perlunni og tveimur tönkum í Öskjuhlíð af Reykjavíkurborg. Kaupverðið er rúmlega þrír og hálfur milljarður króna. Aðilar eiga eftir að klára samninginn og svo skrifum við undir segir forstjóri þróunarfélagsins. Viðskipti innlent 4. janúar 2025 07:03
Skilur ekki tilgang milljóna króna auglýsingar Skúli Gunnar Sigfússon, fjárfestir og einn hluthafa í Isavia ohf. líkt og allir Íslendinga eins og hann titlar sig að gefnu tilefni, ritar grein á Vísi þar sem hann furðar sig á óráðsíu Isavia ohf. Deildarstjóri hafnar því að almannafé fari í auglýsinguna sem fyrirtæki á Keflavíkurflugvelli fjármagni. Innlent 3. janúar 2025 16:48
Sparnaðartillögum snjóar inn: Leggja niður RÚV, loka sendiráðum og hætta að styrkja flokkana Víst er að landsmenn hafa tekið því boði Kristrúnar Frostadóttur fagnandi að fá að viðra sjónarmið sín opinberlega um hvað gæti orðið til sparnaðar í rekstri hins opinbera. Innlent 3. janúar 2025 14:51
Yrkjum lífsgæði í Dölunum Gleðilegt nýtt ár kæri lesandi, nú í upphafi árs 2025 langar mig til að vekja athygli á eftirfarandi verkefnum sem við í Dalabyggð höfum unnið með íbúum í Dölunum að undanfarin misseri í samstarfi við fleira gott fólk . Skoðun 3. janúar 2025 14:30
Þarf að taka hápólitískar ákvarðanir vegna Sundabrautar Framkvæmdir við Sundabraut verða boðnar út á Evrópska efnahagssvæðinu að sögn verkefnisstjóra hjá Vegagerðinni. Ef allt gangi upp verði Sundabraut komin í gagnið árið 2032. Margir komi að ákvörðunartöku og mismunandi hagsmunir sem þurfi að taka tillit til í ferlinu Innlent 3. janúar 2025 14:01
Bak við tjöldin í Kryddsíldinni 2024 Kryddsíld Stöðvar 2 var á sínum stað á Gamlársdag líkt og síðustu þrjátíu og fjögur ár. Með sanni má segja að þátturinn hafi verið sérstaklega fjörugur í þetta skiptið en Hulda Margrét ljósmyndari tók myndir af hamagangnum á bak við tjöldin. Lífið 3. janúar 2025 14:01
Ekki verði hróflað við kvótakerfinu Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði formenn ríkisstjórnaflokkanna loðna í svörum um stjórnarskrárákvæði um gjald af nýtingu auðlinda í þjóðareign. Hann segir nýja ríkisstjórn ósamstíga í málaflokknum. Innlent 3. janúar 2025 13:07
Vöruhúsið í Álfabakka - í boði hvers? Græni veggurinn, vöruskemman verður rædd í borgarstjórn Reykjavíkur 7. janúar 2025 af tveimur flokkum minnihlutans. Borgarfulltrúi Flokks fólksins mun leggja til að að borgarstjórn samþykki að fela innri endurskoðun og ráðgjöf Reykjavíkurborgar eða öðrum óháðum aðila að gera stjórnsýsluúttekt á skipulagsferli er varðar Álfabakka 2a, Suður-Mjódd, vöruskemmunni. Skoðun 3. janúar 2025 13:00
Forgangsröðum forgangsröðun Ríkisstjórnin hefur kallað eftir hugmyndum að leiðum til að spara ríkinu pening. Hér er hugmynd: forgangsröðum í heilbrigðiskerfinu. Skoðun 3. janúar 2025 12:30
Vinnufundur ráðherra á Þingvöllum hafinn Ráðherrar í ríkisstjórn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins komu saman á tíunda tímanum í forsætisráðherrabústaðnum á Þingvöllum. Um er að ræða vinnufund ríkisstjórnarinnar til að þétta hópinn enn frekar að sögn forsætisráðherra. Innlent 3. janúar 2025 10:39
Viðreisn og Framsókn dala en sósíalistar yfir kjörfylgi Fylgi Viðreisnar mælist nú tveimur prósentum minna en flokkurinn fékk í þingkosningunum í nýjum þjóðarpúls Gallup. Framsóknarflokkurinn dalar enn eftir sögulega lélega kosningu en Sósíalistaflokkurinn er tveimur prósentustigum yfir kjörfylgi sínu. Innlent 3. janúar 2025 09:04
„Ekki gera lítið úr þriðja formanninum“ Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, sagði Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Miðflokksins, að gera ekki lítið úr Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins og félagsmálaráðherra. Það gerði Kristrún í Kryddsíldinni á gamlársdag eftir að Sigmundur gagnrýndi Ingu og sagði hana þurfa að tala af ábyrgð. Innlent 2. janúar 2025 22:04
Bjarni sveiflaði servíettunni af gleði Flestir landsmenn virðast telja Sjálfstæðisflokkinn halda bestu partýin. Formaður Framsóknarflokksins telur landsmenn vanmeta stuðið hjá flokknum. Lífið 2. janúar 2025 21:02
Metfjöldi sparnaðarráða til nýrrar ríkisstjórnar Sparnaðarráðum rignir inn í Samráðsgátt stjórnvalda eftir að forsætisráðherra kallaði í dag eftir tillögum frá almenningi, fyrirtækjum og hagsmunaaðilar um hvar og hvernig megi hagræða í rekstri ríkisins. Forsætisráðherra býst við mörgum gagnlegum ábendingum enda hafi hún góða reynslu af slíku samráði. Innlent 2. janúar 2025 18:42
„Það eru fleiri með köggla en þú“ Inga Sæland spennti tvíhöfðana í Kryddsíldinni og sagði fleiri vera með köggla en Sigmundur Davíð þegar rætt var um litla þingflokka. Sigurður Ingi sagði Sigmund ekkert þurfa að mæta á þingið fyrst Miðflokkurinn væri kominn með átta þingmenn. Lífið 2. janúar 2025 17:21
Með Loga þegar hann skreið inn á þing og núna í ráðuneytinu Tómas Guðjónsson, fráfarandi framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar mun vera aðstoðarmaður Loga Einarssonar, nýs menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Innlent 2. janúar 2025 16:57
Hugtakið þjóðarmorð sé lagatæknileg skilgreining Utanríkisráðherra segir hugtakið þjóðarmorð vera lagatæknilega skilgreiningu. Atburðirnir á Gasa séu hræðilegir en hún vill að Ísland tali skýrari röddu en hefur verið gert. Innlent 2. janúar 2025 16:56
Útgáfuáætlun ríkisbréfa upp á um 180 milljarða í hærri kantinum Áætlað er að heildarútgáfa ríkisbréfa á árinu 2025 verði um 180 milljarðar króna, nokkuð meira en í fyrra, en til að mæta lánsfjárþörf ríkissjóðs kemur jafnframt til greina að ganga á innstæður í erlendum gjaldeyri hjá Seðlabankanum. Umfang nýbirtrar útgáfuáætlunar Lánamála er heldur í hærri kantinum miðað við væntingar fjárfesta og markaðsaðila og hefur ávöxtunarkrafa lengri ríkisbréfa hækkað á markaði í dag. Innherji 2. janúar 2025 15:06
Kristrún leitar ekki langt yfir skammt að hægri hönd Ólafur Kjaran Árnason verður aðstoðarmaður forsætisráðherra. Hann hefur starfað sem aðstoðarmaður Kristrúnar Frostadóttur í tæplega þrjú ár. Innlent 2. janúar 2025 14:42
Valdimar tekinn við af Rósu sem bæjarstjóri Valdimar Víðisson tók við starfi bæjarstjóra Hafnarfjarðar um áramótin af Rósu Guðbjartsdóttur sem gengt hefur embættinu síðan í júní 2018. Bæjarstjóraskiptin eru í samræmi við samkomulag Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eftir sveitarstjórnarkosningar í maí 2022 um að oddviti Sjálfstæðisflokks myndi sitja í stóli bæjarstjóra til 1. janúar 2025 þegar oddviti Framsóknarflokks myndi taka við. Innlent 2. janúar 2025 14:13
Jakob Birgisson og Þórólfur Heiðar aðstoðarmenn Þorbjargar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur ráðið Jakob Birgisson, uppistandara og Þórólf Heiðar Þorsteinsson, lögfræðing, sem aðstoðarmenn sína. Innlent 2. janúar 2025 13:47
Kristrún auglýsir eftir sparnaðarráðum Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra lætur hendur standa fram úr ermum strax á nýju ári. Nú var að detta inn á samráðsgátt stjórnvalda nýtt mál þar sem auglýst er eftir umsögnum um það hvernig hagræða megi í rekstri ríkisins. Innlent 2. janúar 2025 13:39
Ingileif aðstoðarmaður í utanríkisráðuneytinu Ingileif Friðriksdóttir verður aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Hún tók við starfinu af eiginkonu sinni í kosningabaráttunni. Innlent 2. janúar 2025 12:32
Sundabraut forgangsmál, fjármögnuð með veggjöldum Ný ríkisstjórn hittist á vinnufundi í ráðherrabústaðnum á Þingvöllum á morgun og er búist við að fundurinn standi allan daginn að sögn samgöngu-og sveitarstjórnarráðherra. Hann segir að forgangsverkefni sitt sé að hefja framkvæmdir á Sundabraut. Framkvæmdin verði fjármögnuð með innheimtu veggjalda Innlent 2. janúar 2025 12:15
Greiða atkvæði um tillögu Kristrúnar um „flottan einstakling“ Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist vera búin að ákveða sig hvaða „flotti einstaklingur“ verði formaður þingflokksins. Hins vegar eigi eftir að greiða um það atkvæði á þingflokksfundi. Innlent 2. janúar 2025 11:56
„Ég þekki mann sem að móðgast yfir dagskránni á RÚV“ Einar Lövdahl steig á stokk í Kryddsíld Stöðvar 2 þetta árið og flutti nýtt lag sitt Um mann sem móðgast. Árið var gjöfult hjá Einari sem gaf út Gegnumtrekk, fyrstu skáldsöguna sína, og svo lagið sem fékk áhorfendur Kryddsíldar til að brosa. Lífið 2. janúar 2025 11:31
Stefanía aðstoðar Hönnu Katrínu Stefanía Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar, verður aðstoðarmaður Hönnu Katrínar Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. Innlent 2. janúar 2025 11:26
Hersir og Rósa eiga von á barni Hersir Aron Ólafsson, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, og Rósa Kristinsdóttir, sérfræðingur í framtaksfjárfestingum hjá Vex, eiga von á sínu fyrsta barni í byrjun júlí. Lífið 1. janúar 2025 17:06
Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ Innlent