Rúnar frá Marel til Aquatiq Rúnar Birgisson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Aquatiq á Íslandi. Rúnar hefur starfað fyrir Marel í kvartöld. Viðskipti innlent 4. janúar 2024 13:46
Tekur við sem forstöðukona nýsköpunar og atvinnulífs í HR Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðukona nýsköpunar og atvinnulífstengsla hjá Háskólanum í Reykjavík. Viðskipti innlent 4. janúar 2024 10:24
Berglind Lóa nýr vefstjóri Póstsins Berglind Lóa Sigurðardóttir hefur tekið við stöðu vefstjóra hjá Póstinum. Viðskipti innlent 3. janúar 2024 13:18
Tekur við sem framkvæmdastjóri Mývatnsstofu Úlla Árdal hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Mývatnsstofu og hefur hún þegar hafið störf. Viðskipti innlent 2. janúar 2024 09:49
Hulda Elsa aðstoðar dómsmálaráðuneytið Hulda Elsa Björgvinsdóttir, fyrrverandi aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, hefur verið fengin til að miðla af sérþekkingu sinni innan dómsmálaráðuneytisins. Innlent 28. desember 2023 15:08
Ráðnir framkvæmdastjórar hjá Wise Upplýsingatæknifyrirtækið Wise hefur tilkynnt um breytingar á framkvæmdastjórn en fyrirtækið hefur ráðið Ragnar Má Magnússon inn sem framkvæmdastjóra ráðgjafasviðs. Viðskipti innlent 28. desember 2023 10:52
Andri er nýr framkvæmdastjóri Landmark Andri Sigurðsson, fasteignasali og einn eigenda LANDMARK fasteignamiðlunar ehf., hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri félagsins. Tekur hann við af Þóreyju Ólafsdóttur, fasteignasala sem hefur gegnt starfinu undanfarin ár. Viðskipti innlent 27. desember 2023 16:48
Stefán nýr framkvæmdastjóri hjá Seðlabankanum Stefán Guðjohnsen hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs Seðlabanka Íslands en staðan var auglýst laus til umsóknar í nóvember. Viðskipti innlent 22. desember 2023 12:36
Tekur við sem forstöðumaður í Salnum í Kópavogi Bjarni Haukur Þórsson leikari hefur verið ráðinn forstöðumaður Salarins í Kópavogi. Hann tekur við stöðunni af Aino Freyja Järvelä. Menning 21. desember 2023 11:19
Þórdís Lind nýr forstöðumaður hjá N1 Þórdís Lind Leiva hefur verið ráðin forstöðumaður orkusviðs N1 og hefur hún þegar hafið störf. Viðskipti innlent 20. desember 2023 08:27
Guðlaug Rakel nýr forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir hefur verið skipuð forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) til næstu fimm ára af Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra. Fráfarandi forstjóri stendur nú í málarekstri gegn ráðherra. Innlent 19. desember 2023 16:42
Guðmundur að hætta sem ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu Guðmundur Árnason, sem hefur verið ráðuneytisstjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu í fjórtán ár, lætur senn af störfum í ráðuneytinu. Hann mun að eigin sögn taka við skipun sem sendiherra í utanríkisþjónustunni á næsta ári. Innherji 19. desember 2023 13:13
Átta sækja um embætti forstjóra Veðurstofunnar Átta sóttu um embætti forstjóra Veðurstofu Íslands sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið auglýsti laust til umsóknar í síðasta mánuði. Innlent 19. desember 2023 13:11
Lúðvík skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Lúðvík Þorgeirsson í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða til næstu fimm ára, frá 1. mars 2024. Lúðvík hefur síðustu ár starfað sem rekstrarstjóri hjá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Hann tekur við stöðunni af Gylfa Ólafssyni. Innlent 19. desember 2023 11:55
Ragnar yfirgefur Brandenburg eftir uppákomu í afmæli Ragnar Gunnarsson, einn af fimm eigendum auglýsingastofunnar Brandenburg, hefur ákveðið að selja hlut sinn í félaginu. Samkvæmt heimildum fréttastofu tengist sala hlutarins uppákomu á skemmtun sem starfsmenn auglýsingastofunnar sóttu á dögunum. Viðskipti innlent 19. desember 2023 09:56
Kemur ný í framkvæmdastjórn Nova Renata Blöndal hefur verið ráðin í starf fararstjóra (Chief Strategy Officer) Nova og tekur hún jafnframt sæti í skemmtana- og framkvæmdastjórn hjá félaginu. Viðskipti innlent 19. desember 2023 09:56
Ólöf kveður Kviku og heilsar Íslandsbanka Ólöf Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Einstaklingssviðs Íslandsbanka. Hún hefur undanfarið verið framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Kviku banka. Viðskipti innlent 18. desember 2023 08:20
Jóhanna Guðrún stýrir Dineout í Danmörku Jóhanna Guðrún Jóhannesdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Dineout í Danmörku. Hún hefur á síðustu misserum leitt útrás hugbúnaðarfyrirtækisins þar í landi. Viðskipti innlent 15. desember 2023 10:34
Rut, Rúna Guðrún og Skúli til KPMG Rut Gunnarsdóttir, Rúna Guðrún Loftsdóttir og Skúli Valberg Ólafsson hafa öll verið ráðin nýir verkefnastjórar á ráðgjafarsviði KPMG. Viðskipti innlent 14. desember 2023 12:59
Ólafur Helgi, Stefanía Guðrún og Finnur Þór í dómarastól Dómsmálaráðherra hefur skipað Ólaf Helga Árnason og Stefaníu Guðrúnu Sæmundsdóttir í embætti héraðsdómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjavíkur frá og með 18. desember 2023. Jafnframt hefur Finnur Þór Vilhjálmsson verið settur dómari við sama dómstól frá og með 18. desember 2023 til og með 28. febrúar 2029 vegna leyfis skipaðs héraðsdómara. Innlent 14. desember 2023 12:50
Guðjón hættir sem forstjóri í apríl Guðjón Auðunsson, forstjóri fasteignafélagsins Reita, hefur tilkynnt stjórn félagsins að hann muni láta af störfum sem forstjóri félagsins 1. apríl næstkomandi. Hættir hann í framhaldi af aðalfundi félagsins sem fram fer 6. mars. Viðskipti innlent 14. desember 2023 07:24
Fjögur ráðin í stjórnendateymi Helix Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir, Elfa Ólafsdóttir, Héðinn Jónsson og Gunnar Ingi Widnes Friðriksson hafa öll verið ráðin til starfa í stjórnendateymi Helix. Viðskipti innlent 13. desember 2023 12:37
Birta hættir sem varafréttastjóri Birta Björnsdóttir varafréttastjóri hjá Ríkisútvarpinu hefur ákveðið að einbeita sér alfarið að starfi sínu sem yfirmaður erlendra frétta hjá RÚV. Ragnhildur Thorlacius tekur við sem varafréttastjóri ásamt Valgeiri Erni Ragnarssyni um áramótin. Innlent 13. desember 2023 12:24
Ráðin nýr framkvæmdastjóri hjá Vök Baths Kristín Dröfn Halldórsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri hjá Vök Baths ehf. Viðskipti innlent 13. desember 2023 07:05
Ráðin framkvæmdastjóri hjá RÚV Hrefna Lind Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra stafrænnar þróunar hjá Ríkisútvarpinu. Starfið var auglýst í október og sóttu 47 um. Intellecta annaðist ráðningarferlið sem var bæði vandað og ítarlegt að því er segir á vef RÚV. Innlent 12. desember 2023 16:06
Þorvaldur til Einingaverksmiðjunnar Þorvaldur Helgi Auðunsson hefur verið ráðinn aðfanga-og birgðastjóri hjá Einingaverksmiðjunni. Hann hefur þegar hafið störf. Viðskipti innlent 12. desember 2023 13:25
Jón nýr prófessor við verkfræðideild HR Dr. Jón Guðnason hefur hlotið framgang í stöðu prófessors við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík eftir mat alþjóðlegrar hæfisnefndar. Viðskipti innlent 12. desember 2023 11:02
Árni tekur stoltur við sem forstjóri Marel Árni Sigurðsson hefur verið ráðinn forstjóri Marel. Hann hefur gengt starfinu tímabundið undanfarnar vikur eftir að Árni Oddur Þórðarson lauk störfum hjá fyrirtækinu. Viðskipti innlent 11. desember 2023 17:26
Kemur til Heimkaupa frá Krónunni Lára Björg Ágústsdóttir hefur verið ráðin sem vöruflokkastjóri hjá Heimkaupum og hefur þegar hafið störf. Hún kemur til félagsins frá Krónunni. Viðskipti innlent 11. desember 2023 10:06
Ólafur tekur við stöðu Ólafs hjá Carbfix Ólafur Elínarson hefur verið ráðinn til Carbfix þar sem hann mun starfa að samskiptamálum og samfélagstengslum fyrir hönd fyrirtækisins. Viðskipti innlent 8. desember 2023 14:39