Í lífshættu eftir brunann á Funahöfða Þrír voru fluttir á slysadeild þegar eldur kom upp í dag í iðnaðarhúsnæði á Funahöfða, þar sem fjöldi fólks býr. Áður hafði verið greint frá því að aðeins einn hefði þurft aðhlynningu á sjúkrahúsi. 16.10.2023 19:47
Ákvarðanir Agnesar í máli séra Gunnars „markleysa“ Ákvörðun Agnesar M. Sigurðardóttur, biskups Íslands, um að víkja séra Gunnari Sigurjónssyni úr starfi embættis sóknarprests í Digranesprestakall, vegna kynferðislegrar áreitni, var ólögmæt. Þetta er niðurstaða úrskurðarnefndar Þjóðkirkjunnar, sem hefur komist að því að Agnes hafi ekki haft umboð til slíkra ákvarðana frá því um mitt síðasta ár. 16.10.2023 19:19
Nafn mannsins sem lést á Skógaheiði Maðurinn sem lést af slysförum á Skógaheiði síðastliðinn fimmtudag hét Sigurður Sigurjónsson og var bóndi á Ytri Skógum. 16.10.2023 19:07
„Ég hef ekki annan stað til að vera á“ Einn íbúa hússins á Funahöfða, þar sem eldur kom upp síðdegis í dag, segir um 20 til 30 manns búa á annarri hæð hússins. Eldur kom upp á fyrstu hæðinni síðdegis í dag. 16.10.2023 17:09
Leita af sér allan grun um að fleiri séu í húsinu Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst á fjórða tímanum í dag tilkynning um reyk í iðnaðarhúsnæði í Funahöfða. Einn var fluttur á slysadeild. Slökkvilið hefur slökkt eldinn, en er enn við störf á vettvangi, og leitar af sér grun um að fleiri hafi verið í húsinu. 16.10.2023 15:37
Gleymir deginum aldrei og þakkar fyrir ótrúlegan stuðning Tilfinningarnar voru blendnar í Laugardal í dag, eftir sérstakan fótboltaleik sem var haldinn til stuðnings vallarverði Þróttar. Fjöldi fólks mætti til að sýna honum stuðning, en til stendur að senda hann úr landi í fyrramálið. 15.10.2023 19:59
Ríkisstjórnin verði líka að fordæma það sem gerist á Gasa Mikill fjöldi safnaðist saman á Austurvelli í dag á samstöðufundi með Palestínu. Yfirskrift viðburðarins á Facebook var „Stöðvið fjöldamorð Ísraelshers“. 15.10.2023 16:56
Ísland verði að taka afstöðu gegn árásum Ísraels á Gasa Formaður félagsins Ísland-Palestína segir íslensk stjórnvöld verða að taka afstöðu gegn ástandinu á Gasaströndinni, sem Ísrael hafi skapað. Boðað hefur verið til samstöðufundar á Austurvelli, á meðan innrás Ísraelshers á Gasa er yfirvofandi. 15.10.2023 13:45
Þingflokkurinn fagni afsögn eigin formanns sem hans besta verki Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins skiptust á ráðuneytum í dag. Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja stjórninni haldið í öndunarvél og að hún minni á dauðadæmdan þjálfara sem fær stuðningsyfirlýsingu frá félagi sínu. Ólafur Harðarson telur að Bjarni sé nú búinn að koma böndum á villiketti flokksins. 14.10.2023 21:32
„Fyrst og fremst stólaskipti“ án þess að axla ábyrgð Formaður Samfylkingarinnar óskar nýjum fjármálaráðherra velfarnaðar í nýju hlutverki, en á ekki von á mikilli stefnubreytingu í efnahagsmálum frá ríkisstjórninni. Hún segir Bjarna ekki hafa viðurkennt misbresti í sölunni á Íslandsbanka, sem sé liður í því að axla ábyrgð. 14.10.2023 13:40