Birtist í Fréttablaðinu

Landsliðsþjálfarinn fékk rautt í stórsigri
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu sigraði slakt lið Letta 6-0 í undankeppni Evrópumótsins. Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari fékk rautt spjald.

Kattarkonsert, en engin mús
Í einni myndinni um Tomma og Jenna er sá fyrrnefndi í hlutverki píanóleikara. Hann er í kjólfötum og gengur inn á svið, virðulegur á svipinn. Síðan byrjar hann að spila.

Hausaveiðarar leita að tíum
Algengara er að fyrirtæki noti svokallaðar hausaveiðar til að finna hæfa stjórnendur að sögn ráðgjafa. Ráðningar af þessu tagi sveiflist í takt við hagkerfið. Duglegt fólk sem vex í starfi kemst fljótt á radarinn.

Á 10 prósent í Loftleiðum Cabo Verde
Björgólfur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair Group, á 10 prósenta hlut í Loftleiðum Cabo Verde sem keyptu í febrúar 51 prósents hlut í ríkisflugfélaginu Cabo Verde Airlines á Grænhöfðaeyjum. Þetta kemur fram í ársreikningi.

Danskur tímaflakkari tékkar á Íslandi
Tímaflakkarinn Mortensen hefur borið hróður danska teiknimyndasöguhöfundarins Lars Jakobsen víða um lönd en þeir reyna nú fyrir sér á Íslandi í fyrsta sinn með fulltingi íslensks vinar, höfundarins Árna Beck Gunnarssonar, sem hefur þýtt bókina um Dularfulla handritið.

Verður sjálfur ekki á hátíðinni í holdinu en mjög nálægur í andanum
Fjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga eru á A! Gjörningahátíð sem opnuð verður á Akureyri á morgun, 10. október.

Teiknaði einstaklinga af Instagram
Melkorka Katrín Tómasdóttir gengur undir listamannsnafninu Korkimon. Hún bauðst til að teikna fólk á Instagram.

Litadýrð og femínísk gildi í Laugardalnum
Unnur Gísladóttir, framhaldsskólakennari og femínisti, býr ásamt manni og tveimur börnum í litríkri og hlýlegri íbúð í Goðheimum. Þegar þau hjónin ráku augun í fasteignaauglýsingu eina helgina þurftu þau ekki að hugsa sig um.

Meiri afköst og sömu gæði í Litháen
Styrmir Þór Bragason, forstjóri Arctic Adventures, segir offramboð í ferðaþjónustu. Eigendur fyrirtækja þurfi að leggja egóið til hliðar og skoða samruna af alvöru.

Helgi meðal stærstu hluthafa Iceland Seafood
Helgi Magnússon, fjárfestir og stjórnarformaður Bláa lónsins, er í hópi stærstu hluthafa Iceland Seafood International með 1,3 prósenta hlut.

Snarpur samdráttur í útlánum bankanna verulegt áhyggjuefni
Aðgerðaleysi stjórnvalda þegar kemur að rekstrarumhverfi bankanna getur orðið til þess að niðursveifla hagkerfisins verði dýpri en ástæða er til.

Verður fyrirtæki án hliðstæðu í svefni
Nox Medical og Fusion Health hafa sameinast í Nox Health. Sameinað fyrirtæki veltir rúmlega fjórum milljörðum og er skuldlaust. Sjóður í rekstri Alfa framtaks kemur inn í hluthafahópinn.

Skuldaraskattur
Árið 2010 var sérstakur skattur lagður á fjármálafyrirtæki m.a. til að afla ríkinu tekna til að vega upp á móti tapi þess vegna fjármálahrunsins.

Hver saga býr yfir sínum eigin heimi
Ragna Sigurðardóttir sendir frá sér smásagnasafn. Fimm sögur sem gerast á ólíkum tíma og stöðum. Leggur áherslu á það sammannlega.

Opinberum starfsmönnum fjölgar óháð árferði
Útgjöld hins opinbera hafa aukist um 80 prósent að raungildi frá aldamótum. Aukningin er 43 prósent á hvern landsmann. Ekkert lát er á útgjaldaþenslunni samkvæmt fjárlagafrumvarpi ársins 2020 þar sem áformuð eru 1.000 milljarða króna ríkisútgjöld.

Auðlindagjald hamlar þekkingariðnaði
Mikilvægt skref fyrir nýsköpunarstefnu Íslands, sem kynnt var á föstudag, væri að afnema auðlindagjald á sjávarútveg. Tæknifyrirtækjum hér á landi ætti að vera hægara um vik að ná fótfestu á þeim vettvangi vegna aðstæðna í atvinnulífinu.

Áskoranir og tækifæri í lánveitingum til fyrirtækja
Fyrir tveimur vikum fjallaði Kári Finnsson, viðskiptastjóri hjá Creditinfo, um muninn á sjálfvirkum lánveitingum til einstaklinga annars vegar og fyrirtækja hins vegar.

Mikil fjölgun leigusamninga
Alls var 963 íbúðarleigusamningum þinglýst í september.

Bankamenn hafa áhyggjur af veru Íslands á gráum lista
Líkur eru á því að Ísland lendi á gráum lista þar sem ekki hafi verið gripið til fullnægjandi aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Kvika leggur Upphafi til um 500 milljónir króna
Kvika banki mun leggja Upphafi fasteignafélagi, sem er í eigu sjóðsins Novus í stýringu GAMMA, til um 500 milljónir króna í aukið fjármagn með kaupum á forgangsskuldabréfi til tveggja ára, samkvæmt heimildum Markaðarins.

Átök á tveimur vígstöðvum
Eins og búist var við tóku leiðtogar Evrópusambandsríkjanna fálega í tillögur Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, um útgöngusamning.

Allir tapa
Ríkið féll á prófinu, enn eina ferðina, í liðinni viku. Meintu skattsvikamáli heimsfrægrar hljómsveitar var vísað frá dómi, eftir að hafa velkst um í kerfinu í rúmlega 1.300 daga.

Saman til sjálfbærni
Vart líður sá dagur að við fáum ekki nýjar fréttir af þeim miklu umhverfisbreytingum sem eiga sér stað á norðurslóðum vegna hlýnandi loftslags.

UNESCO spyr líka um Gjábakkaveg
Mechtild Rössler, aðalframkvæmdastjóri Heimsminjaskrifstofu UNESCO, segir ráðgefandi stofnanir harma að endurnýjun Gjábakkavegar á Þingvelli hafi ekki farið í umhverfismat.

Litla Grá sögð frökk en Litla Hvít er feimin
Aðlögun mjaldrasystranna í Eyjum gengur hægt en vel. Reiknað er með að þeim verði sleppt í sjókví í Klettsvík í vor.

Stefna Reykjavíkurborg vegna innviðagjalda
Verktakafyrirtæki og SI standa að baki stefnu á hendur borginni vegna þess sem þau telja ólögmæt innviðagjöld. Numið milljörðum króna síðustu ár. Lögmaður hagsmunaaðila segir að málið muni hafa víðtækt fordæmisgildi.

Hasspípur liggja eins og hráviði
Heimatilbúnar hasspípur úr plastflöskum hafa fundist eins og hráviði víða um Norðlingaholtshverfi. Áhyggjufullur íbúi deildi mynd af slíku verkfæri inn á íbúasíðu hverfisins á dögunum og kvaðst hafa rekist á tug slíkra á göngu sinni í Björnslundi í vikunni.

Stefnumót
Daði Guðbjörnsson og Lulu Yee sýna saman málverk og leirverk í Galleríi Fold.

Kulnun í starfi er flókið og alvarlegt fyrirbæri
Mikið hefur verið rætt um kulnun í starfi á undanförnum mánuðum hér á landi. Að sögn Lindu Báru Lýðsdóttur, sálfræðings og sviðsstjóra hjá VIRK, þarf þó margt að koma til svo að fólk endi með alvarleg einkenni kulnunar.

Ertu í heilbrigðu sambandi?
Þótt ástin sé funheit í byrjun og tilveran virðist tindra í rósrauðum bjarma er gott að hafa í huga að ekkert samband er fullkomið. Í upphafi sambands er því mikilvægt að vera nákvæmur og skýr.